Pressan - 15.07.1993, Síða 2
FYRST O G FREMST
2 PRESSAN
Fimmtudagurinn 15. júlí 1993
1ÚN BALDVIN HANNIBALSSON Sagt er að brestir séu að koma í samband
jieirra Davíðs og Jón Baldvin ætlar að nota ólátabelgina í flokknum til að
styrkja stöðu sína. GUÐMUNDUR flRNI STEFÁNSSON Peð í valdatafli Jóns Bald-
vins
Jón Baldvin íhug-
ar stjórnarslit
Kunnugir segja sambandið
á milli Jóns Baldvins og Dav-
íðs Oddssonar hafa kólnað
svo að Jón leiti nú leiða til að
slíta stjórnarsamstarfinu.
Hann er sagður líta til hausts-
ins og munu vilja nýta sér þá
Össur Skarphéðinsson og
Guðmund Áma Stefánsson til
andófs gegn Sjálfstæðisflokkn-
um með meðfylgjandi stjórn-
arslitum. Það styrkir þessa
skoðun að með þessu tækist
Jóni að veija sig væntanlegum
árásum frá vinstri í flokknum
og búa til alveg nýtt pólitískt
landslag áður en kemur að
átakamiklu flokksþingi næsta
sumar...
Mel Gibson til ís-
lands______________
Miklar líkur eru á að eitt
mesta stórstirni kvikmynd-
anna um þessar mundir,
kvennagullið Mel Gibson,
muni seint á þessu ári stíga sín
fyrstu skref á íslandi. Ástæðan
fyrir hingaðkomu hans er
frumsýning Regnbogans á
kvikmyndinni „Man Without
a Face“, en Gibson bæði leik-
stýrir myndinni og fer með
aðalhlutverkið. Myndin verð-
ur frumsýnd í Bandaríkjun-
um í september en í Regnbog-
anum verður hún að öllum
líkindum jólamyndin í ár.
Fleiri en Islendingar munu
verða goðsins aðnjótandi því
hann hyggst fara í heimsreisu
með haustinu til að vera við-
staddur frumsýningar á
myndinni í kvikmyndahúsum
víða um heim.
Margrét hættir
endurskoðun
þiéðminjqlagq
Margrét Hermanns-Auðar-
dóttir fornleifafræðingur
gegnir nú þriggja ára rann-
sóíoiarstöðu sem kennd er við
Kristján Eldjárn, fyrrum
þjóðminjavörð og forseta Is-
lands. Á þessum tíma hefur
hún unnið talsvert við endur-
skoðun þjóðminjalaganna og
mun meðal annars hafa boðið
Össuri Skarphéðinssyni um-
hverfisráðherra að minjavarsla
yrði sett undir hans ráðuneyti.
Endurskoðun laganna heyrir
þó ekki undir rannsóknar-
stöðuna og hefur hún nú hætt
því samkvæmt ábendingu.
Margrét, sem áður var Her-
mannsdóttir, hefur vakið tals-
verða athygli í gegnum tíðina.
I frægri grein í Morgunblað-
inu talaði hún um getuleysi
Þórs Magnússonar sem þjóð-
minjavarðar og síðar gróf hún
í Herjólfsdal og sagði upp-
gröftinn sýna að byggð hefði
verið í landinu frá 7. öld.
Íón Tryggva og
tvikmynaamóg*
úlarnir_____________
Þessa dagana standa yfir
samningaviðræður nokkurra
íslendinga við stór nöfn í
bandarískum og kanadískum
kvikmyndaheimi um fjár-
mögnun nýrrar íslenskrar
gamanmyndar. íslendingarnir
eru þeir Jón Tryggvason kvik-
myndaleikstjóri og pródú-
sentamir Halldór Þorgeirsson
og Jón Ólafsson í Skífunni.
Jón Tryggvason semur
handritið og leikstýrir en aðal-
leikararnir koma til með að
vera íslenskir. Hafa nöfn
þeirra Helga Björnssonar og
Ladda helst verið nefnd í
þessu sambandi. Náist samn-
ingar munu tökur hefjast í
haust og fara fram á íslandi, í
New Mexico, Californíu og
New York og í Vancouver í
Kanada. Þrátt fyrir að samn-
ingaviðræður séu enn í gangi
eru kanadísku kvikmynda-
mógúlarnir þegar búnir að
ráða „Casting director“.
Pelicananum fat-
ast flugið
Allt útlit er fyrir að hljóm-
sveitin endurvakta Pelican
með Guðmund Jónsson og
Pétur Kristjánsson í farar-
broddi muni leggja upp laup-
ana á næstunni enda virðist
hún ekki ganga vel í landann.
Samkvæmt upplýsingum
PRESSUNNAR hefur aðsókn
að böllum sveitarinnar verið
grátleg það sem af er sumri, til
að mynda voru ekki nema
sextán manns sem hlýddu á
sveitina á skemmtistaðnum
Þotunni í Keflavík, og nær
enginn mætti til að berja hin
Valdimar ætlar a5 reyna að koma mér á framfæri í Bandaríkjunum.
til
að
Tilbúinn
skútur
bóna
Valdimar Örn Flygenring
leikari sagði í vor upp samn-
ingi sínum hjá Borgarleik-
húsinu og hyggst freista gæf-
unnar Vestanhafs. Valdimar
segir ástæðuna fyrir upp-
sögninni vera þá að honum
líki ekki á hvem hátt leikhús-
inu er stjórnað. „Þeir sem
ættu að stjórna stjórna ekki.
Aðrir einstaklingar vaða uppi
með öll völd án ábyrgðar. Ur
þessu verður listrænt öng-
þveiti sem ég get ekki lengur
tekið þátt í.“
Hann mun engu að síður
leika í Spanskflugunni, sem
hann byrjaði að æfa í vor, og
frumsýnd verður f7. septem-
ber, auk þess sem hann fer
með hlutverk í kvikmynd
Þráins Bertelssonar sem tekin
verður í sumar.
„En þegar það er búið fer
ég að hugsa mér til hreyfings,
líklega einhverntíma á næsta
ári,“ segir Valdimar.
Hann 'ætlar að fara út
með konu og börn og
tekur stefnuna á Vest-
urströnd Bandaríkj-
anna. „Ég ætla að
reyna að koma mér á
framfæri úti, en ef það
gerist eitthvað verður
það líklegast fyrir heppni
eða tilviljun. En ég er nú
búinn að prófa ýmislegt
og er að vona að það komi
mér til góða. En ef þetta
gengur ekki er ég alveg
tilbúinn til að fara
að bóna skútur
eða gera við
mótorhjól. Og svo tek ég
auðvitað gítarinn með mér.
Maður getur þá alltaf sungið
ættjarðarlögin á götuhorn-
um.“ Hann segist ekki vera
hræddur við það að vera að
brenna allar brýr að baki sér.
„Ég hef aldrei verið hræddur
við það. Öryggið hvorki byrj-
ar né endar á íbúð í
Drápuhlíð-
inni,“ segir
leikarinn.
fornu goð augum á Dalvík. I
bransanum er talað um að
Guðmundur hefði betur hald-
ið í Stefán Hilmarsson Plá-
hnetu heldur en taka svona
stórt stökk niður á við. En það
er víst ekki hægt að sjá allt fyr-
ir.
Friðrik Þór qerir
usla í Skarpnéð-
insgötu______________
Upptökur eru hafnar í
Skagafirði á Bíódögum, mynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar,
en um miðjan ágúst flyst
sögusviðið suður til Reykja-
víkur. Ekki gekk það þrauta-
laust fýrir sig að finna hentug-
an stað í borginni sem hæfði
handritinu. Friðrik Þór kaus
helst að búa aðalsöguhetjun-
um heimili í Norðurmýrinni.
Húsagarðar þar um slóðir
reyndust hins vegar margir
hverjir vera of grónir til að
umhverfið væri í takt við sjö-
unda áratuginn en myndin á
að gerast 1964. Eftir langa leit
var ákveðið að söguhetjumar
yrðu til heimilis að Skarphéð-
insgötu. Upptökum á Bíódög-
um fýlgir nokkurt rask fyrir
íbúa götunnar, sem sumir
þurfa að skipta um gardínur
og gluggaskraut á meðan á
tökum stendur. Þá voru íbú-
amir vinsamlegast beðnir um
að slá öllum garðafram-
kvæmdum og hellulögnum á
frest, uns tökum væri lokið.
Gert er ráð fýrir að það verði í
september og þá geti íbúar
Skarphéðinsgötu aftur horfið
til nútímans.
MEL GIBSON Hjartaknúsarinn mikli á leið til landsins. ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Margrét Hermanns-Auðardóttir bauð honum minjavörslu í heimildarleysi. JÓN TRYGGVASON Er kominn í bland við stóru
nöfnin í íslenska kvikmyndaheiminum. LADDISIGURÐSSON Volgur í hlutverk hjá Nonna Tryggva. GUÐMUNDUR JÓNSSON Hefði betur látið það ógert að fara að djamma með gömlu köllunum. FRIÐRIK
ÞÓR FRIÐRIKSSON Setur allt á annan endann í Norðurmýrinni.
UMMÆLI VIKUNNAR
„Vont kynlífer eftil vill
betra en gott kynlíf “
Gunnar Smári Egilsson ristjóri
Magnús Lenín í
Verslunarmannafélaginu
„íslenskar aðstæður hafa leitt til þess að
kristilegir sósíaldemókratar úr Sjálfstæðis-
flokknum hafa haft sterk ítök í hinni faglegu
samfýlkingu öreiganna."
Mörður Ámason, hvalavinur.
Einveran er hægdrepandi
„Það er best að vera einn — þá drepur
maður engan.“
Guðrún Jónasdóttir ódrepandi í Galtarey.
Spillt og duglaus stjórnarandstæða
„Mjög fáum óspilltum og dugandi borgarfulltrúum er til
að dreifa í stjórnarandstöðunni í Reykjavík.“
Magnús Skarphéðinsson, litli bróðir.
„Það kemur ekkert nýtt varaformanns-
efiri utan úr geimnum fýrir haustið.“
Stefán Hrafn Hagalín, smákrati
GLERKASSAMENNIN6ARSTEFNA
„Ef til er íslensk menningarsteftia er hún fýrst og ffemst
glerkassamenningarstefna, sem gengur út á að menning sé
eitthvað sem til er og eigi að varðveita."
Þórhildur Þorleifsdóttir.
Reynir Hugason lagði sig niður
„Ég fæ ekki séð hvemig atvinnulaus maður getur
tekið sér sumarffí.“
Rúna Baldvinsdóttir, stjómarmaður í niður-
lögðum atvinnuleysingjasamtökum.