Pressan - 15.07.1993, Page 20
20 PRESSAN
Fimmtudagurinn 15. júlí 1993
Bjarni Þórarinsson myndlistarmaður segist vera kannski fyrsti alvöru heimspekingurinn á íslandi
Það er best að reyna að hitta
hann á 22ur á Laugaveginum.
Þangað kemur hann flesta
daga vikunnar til að vinna.
Hann situr úti í homi með
bjórkrús, Gamel Dansk og
kafifibolla, þegar blaðamann
ber að garði. Hárið er sítt, dá-
lítið grásprengt og greitt aftur
frá enninu. Hann er í græn-
um buxum, hvitri skyrtu og
með rauð axlarbönd með
alpamynstri. Held ég. Það á
vel við, því í haust er hann á
leið til Austurríkis, til borgar-
_ innar Linz, þar sem honum
hefur verið boðið að sýna
með Franz Graf, Christie
Astuy og tíu öðrum lista-
mönnum, þar á meðal Joseph
Kosuth. Bjami Þórarinsson
segist líklega munu verða „að
heiman frægur“ áður en hann
verður frægur á íslandi. Þó er
ekki eins og hann sé óþekkt-
ur. Andlitið er kaffihúsagest-
um kunnuglegt og hann er
þekktur í myndlistarkreðsum
borgarinnar, þó svo Aðal-
steini Ingólfssyni hafi hafi
láðst að geta hans í bókinni
Northern Poles. Nokkuð sem
hafði alvarlega afleiðingar, að
sögn Bjama.
Þann 21. júlí næstkomandi
ætlar Bjarni að halda upp á
fimm ára afmæli sitt sem sjón-
háttarfræðingur — á 22ur að
sjálfsögðu. Sjónháttarfræðin
er eitt af fimm kerfiim í Vísi-
akademíunni sem Bjarni hef-
ur hug á að stofna, en það er í
kringum þessi kerfi sem hann
byggir hugmyndafræðina í
verkum sínum.
Geturðu útskýrt nánar hvað
þú átt við með vísiakademíu?
„Ég er með 17 nýgreinar í
vísiakademíunni. Fyrst er
sjónháttarfræðin, en hún leið-
ir til benduheimspeki, sem
byggir á formúlunni T = 5B°o.
Síðan koma vísibókmenntir,
vísihandritafræði, vísitungu-
málafræði, vísimyndunar-
fræði, vísiskýringarfræði, vísi-
mynsturfræði, vísitáknfræði
og vísilíffræði. Þá eru það
dúxgreinarnar vísigjörhygglis-
háttarfræði og vísitilfinninga-
háttarfræði. Þetta er kjarninn í
vísiakademíunni.
Ennfremur er ég að þróa
nýjungar á sviði ljóðlistar. Er
búinn að finna upp nýja brag-
arhætti sem ég kalla þing-
hendu og lýsistrýtu. Ég beiti
þeim óspart í tveimur nýjum
gerðum af leikhúsum sem ég
nefni annarsvegar oj-peru og
hinsvegar oj- pýru.“
Bjarni segir oj-peruna vera
dulbúna list í vísindaformi,
en oj-pýruna dulbúin vís-
indi í listrænu formi. Gestir
á nýafstaðinni gjörningahá-
tíð Nýlistasafnsins fengu að
kynnast þessu nýja leikhús-
formi Bjarna.
Viskutungumál fyrir
snobbaða
„Sextánda greinin er raflat-
ónar, sem eru nýjungar á sviði
tónlistar." Bjarni hefur gert
snældu með þessari tónlist, en
segist ekki þora að gefa hana
út. Ekki ennþá. „Sautjánda og
síðasta greinin er ennvara-
mennt, en þar er ég að þróa
nýtt tungumál sem ég kalla
visku.“ Bjarni mælir nokkur
orð á þessu nýja tungumáli,
sem blaðamaður treystir ekki
til að hafa eftir, en ímyndar
sér að liggi einhversstaðar á
milli íslensku og færeysku.
„Viskan er hugsuð fyrir
snobbdeildina í akademíunni,
en sá sem ætlar virkilega að
forframast í henni lærir þetta
tungumál.“
Bjarni er nú orðinn óstöðv-
andi. Hann segist ætla að hafa
fimm deildir í akademíunni,
ritmenntadeild, mynd-
menntadeild, sjónleikjadeild,
uppfinningadeild, sem hann
segir langerfiðasta, og loks
léttmenntadeild, þar sem
nemendur fá að ráða öllu.
Hann hefur líka gefið nem-
endum ákveðið heiti eftir því
hve langt þeir eru komnir í
náminu. Þannig eru íýrsta árs
nemar busar, annars árs nem-
ar bisar, þriðja árs nemar
brasar, íjórða árs nemar bessar
og fimmta árs nemar kvæsar,
sem er jafnframt starfsheiti
kennara á fyrsta ári. Þeir verða
síðan
bendukvæsar, vísikvæsar,
kvæsi-kvæsar og kvæsi-vísi-
kvæsar. Bjarni hefur sótt um
húsnæði undir Vísiakadem-
íuna hjá borginni, en við-
brögðin sem hann hefur feng-
ið hafa verið dræm.
Tilboöið um Vísiaka-
demíuna stendur ekki
ævilangt
Ég er ekki þessi tegund af heimspekingi sem er með þvinguna á gagnaugunum
„Mér er sagt að fýrst þurfi
ég að leggja ffarn tíu milljónir.
Annars stendur þetta tilboð
mitt um Vísiakademíuna ekki
ævilangt svo ef þessir herrar
ætla etói að missa af lestinni,
þá verða þeir að fara að hugsa
sinn gang. Það er nefnilega
hægt að reisa vísiakademíu á
fleiri stöðum en á þessu skeri.
- Ég gef þeim fimm ár,“ segir
hann.
Hvað með tilganginn. Hver
er hann?
„Þetta var bara stefnuyfir-
lýsingin. Ég á eftir að segja þér
frá þessum fimm kerfum. All-
ar þessar nýgreinar sem ég er
búinn að vera að segja þér frá
tilheyra kerfunum sem ég hef
hannað til að takast á við þær.
Kerfi eitt kalla ég vísi-,
mynd-, stafa- og stuðlakerfi. í
því kerfi hefur sjónháttarfræð-
in mjög sterka skýrskotun til
ritháttar bragfræðinnar. Þetta
kerfi er skáldamál Vísiaka-
demíunnar, en í stað þess að
yrkja, t.d. ferskeytlu, þá teikn-
arðu, málarðu eða mótarðu
eftir sjónhætti sem er fjór-
hentur.
Kerfi tvö stjórnar endur-
reisn handritagerðar og kallast
vísimyndlyklakerfi. Þar tek ég
upp þráðinn frá 14. öld, en þá
hættu menn skyndilega að
gera handrit. Ég er búinn að
uppgötva 120 lykla sem
stjórna handritagerðinni.“
Hann sýnir blaðamanni
dæmi um íó-lykil, sem hann
hefur teiknað í svokallaða vísi-
rós. Inni í rósinni eru orð sem
öll hafa endinguna -íó: pýríó,
þeríó, eríó, kveríó o.s.ffv. Vísi-
rósirnar hans Bjarna minna
einna helst á mynstur.
Heimspeki meö form-
úlu
„Til að byrja með reyndi ég
að halda mig við orð sem hafa
ákveðna merkingu, en svo
gafst ég upp og lét lykilinn
ráða ferðinni. Þá fóru að
koma inn orð sem hafa enga
merkingu, en það er aldrei að
vita nema síðar eigi þau effir
að fá hana.“ Hann glottir. „En
nú förum við í kerfi þrjú, sem
ég kalla vísimyndríklakerfi.
Þar eru ríkjandi: háttur, form,
efni og gangur. Nú er ég far-
inn að útskýra fyrir þér T =
5B°°. Ég hugsa ekki um neinn
nema út frá því hvernig við-
komandi er í eðli sínu, hætti
sínum, efni sínu nú ert þú t.d.
að taka efni fyrir PRESSUNA
— og gangi sínum, — hvernig
þér muni ganga með þetta
viðtal.“
Skyndilega er hann kominn
út í allt aðra sálma. Fer að
velta því fyrir sér hvort hann
sé fyrsti heimspekingur sög-
unnar til að setja ffam hreina
og ómengaða formúlu. Hlær
svo og fer aftur að tala um
kerfin.
„Kerfi fjögur kalla ég vísi-
myndstaðla. Það eru sjónar-
hólar, jafn margir og sekúnd-
urnar í sólarhringnum eða
86.400. Ég er búinn með
fyrstu 20 sjónarhólana.
Fimmta kerfið er vísimynd-
vísa og -víslakerfi. Ég er
skemmst á veg kominn með
það.“
Hvað áttu við með sjónar-
hóll?
„Þetta er viðmiðun sem ég
set sjálfum mér til að koma
benduheimspekinni saman.
Það er í sjónarhólunum sem
hin raunverulega heimspeki
kemur fram. Ég gæti líldega
eins kallað þetta sjónarmið, en
kýs frekar orðið sjónarhóll.“
Hver sjónarhóll reiknaður út
frá formúlunni T = 5ZL°.
„Ég held að ef ég eigi eftir
að verða heimspekingur, þá
verði það fyrir þetta. Ég er
ekki þessi tegund af heim-
spekingi með þvinguna á
gagnaugunum. Ég er víðffæð-
ingur. Það kernur held ég
mjög glögglega fram í þessum
sjónarhólum.
Gunnar Dal, þessi ágæti
drengur sem er búinn að
glugga mikið í heimspeki,
hann kallar sig ekki heimspek-
ing. Hann hefur heiðarleika
yfir svo marga aðra íslenska
ffæðimenn, sem leggja stund
á og nema heimspeki. En þeir
eru ekki heimspekingar, þeir
bara stunda hana. Ég veit ekki
nema ég sé bara með fyrstu
mönnum á íslandi til að
smíða raunverulega heim-
speki. Það er kannski kok-
hreisti að segja þetta, en ég
verð bara að kannast við
þetta.“ Hann hækkar röddina.
„Það er ekkert um annað að
ræða.“
Fékk hrossaflugu í
höfuðið
Hvernig dastu niður á þessi
sjónháttarfrœði?
„Hvernig datt ég niður á
þetta? Ég held það hafi verið
eitthvað sem datt niður á mig.
Að ég hafi fengið á mig
hrossaflugu.“ Fyrst vill hann
ekki segja meira. Fer út í aðra
sálma. Síðan:
„Listfræðingurinn Aðal-
steinn Ingólfsson ritaði í ágæt-
isbók sem heitir Northem Po-
les. Þessi vitleysingur sem situr
hér á móti þér var ekki nafh-
greindur í þessari bók. Samt
var ég aðalhvatamaðurinn,
ásamt Friðrik Þór Friðriks-
syni, að því að stofha galleríið
Suðurgötu 7 á sínum tíma, þó
fleiri hafi komið við sögu síð-
an. Ég varð svo stjörnubrjál-
aður að það leiddi til uppgötv-
unar á sjónháttunum. í stað
þess að verða víðáttubrjálað-
ur, þá fékk ég þessa hrossa-
flugu í höfuðið. Það var upp-
götvunin á sjónhættinum.“
Sjónarháttarmyndir Bjarna
verða til sýnis á Mokka kaffi
ffá og með 18. júlí.
Margrét Elísabet Olafsdóttir.