Pressan - 15.07.1993, Síða 33

Pressan - 15.07.1993, Síða 33
SKI LA BOÐ Fimmtudagurinn 15. júlí 1993 pressan 33 Athugasemd við skrifjakobs Frímanns Magnússonar PRESSUNNI hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Hildi Helgu Siguröardóttur og Önnu Hildi Hildibrandsdóttur Jakob Frímann Magnússon, menningarfúll- trúi við sendiráð íslands í Lundúnum, gerir í síðustu Pressu athugasemd við litla frétt, sem blaðið birti 1. júlí sl. af þjóðhátíðarsamkomu íslendinga í Lundúnum. AthygU okkar hefur verið vakin á því að í at- hugasemdinni notar Jakob Frímann, undir fyr- irsögninni „SkynviJlt Gróa“, starfsheitið ffétta- ritari eigi sjaldnar en fjórum sinnum í lýsing- um sínum á ónafngreindri konu, sem er líka kölluð „okkar manneskja í London“. Þennan „fréttaritara" telur Jakob Frímann hafa selt Pressunni ffásögnina af þjóðhátíðar- samkomunni, sem menningarfulltrúinn átti veg og vanda af að skipuleggja. I frétt Pressunnar var m.a. sagt ffá því að brennivínsflaska var meðal vinninga í boð- ftlaupi bama og niðurlag athugasemdar Jakobs Frímanns hljóðar svo: „Þess var ekld að vænta að okkar manneskja í London kynni að meta slíkt spaug, hvað þá verðlaunin hneykslanlegu, enda er yfirskrift pistils hennar, „Brennivín fyrir bömin !!“ Það skyldi þó aldrei vera ritstjóri góður, að einmitt sá hættulegi vímugjafi, brennivínið, kynni að vera valdur að þeim heilaskaða og skynviUum sem virðast einkenna ffásagnir tíð- indamanneskju Pressunnar í Lundúnum. Nema að í fréttaritaranum bærist lítið fól, eða jafhvel bældur og blankur rithöfundur sem er hreinlega undir of mikilli fjárhagslegri Pressu?“ Svo mörg voru þau orð menningarfulltrú- ans. Hvað varðar umrædda samkomu, þá var fféttaritari Ríkisútvarpsins þar eldd viðstödd og því ekki til ffásagnar, meðan fféttaritari Bylgj- unnar og Stöðvar 2 mætti á staðinn með dætr- um sínum, átti góðar stundir í hópi landa sinna og var almennt ánægð með daginn. Hún hafði áður getið þess á Bylgjunni að samkoman stæði fyrir dyrum. Að öðru leiti stóð hvorug okkar fyrir neinum fréttaflutningi af þessari samkomu, beint eða óbeint. Það er rétt í ffétt Pressunnar að brennivín hafi verið veitt sem verðlaun í boðhlaupi bama og mæltist það vissulega misjafnlega fyrir, þó að enginn gengi fram fyrir skjöldu og mót- mælti að sá háttur væri hafður á. Að ýmsu öðru leyti var frásögnin ónákvæm og þess eðlis að skiljanlegt er að Jakob Frímann hafi fundið hjá sér þörf til að gera við hana at- hugasemd. Honum var hins vegar í lófa lagið að sýna örlítið meiri sjálfsvirðingu í svari sínu og sleppa öllum dylgjum um að starfandi fféttaritarar ættu þama hlut að máli. Þar sem ffétt Pressunnar er mál, sem Jakob og Pressan hljóta alfarið að eiga sín á milli, sjá- um við ekki ástæðu til að ræða hana frekar, enda olckur óviðkomandi og Jakob búinn að svara henni sjálfur. Erfitt er að átta sig á til hvaða íslensku konu í Lundúnum Jakob er að höfða í svargrein sinni, en víst er að undirritaðar þekkja ekld sjálfar sig af ofangreindum lýsingum þessa opinbera fúll- trúa þjóðarinnar á erlendri gmnd. Varla gera ættingjar okkar og vinir, vinnuveitendur og Wustendur heima á íslandi það heldur. Pressan hefur hér engann fféttaritara, þó að blaðið kunni auðvitað að eiga sér hér tíðinda- menn -og konur- líkt og flestir fjölmiðlar. Þó að okkur sé hulið hvaða íslensku konu í Lundúnum starfsmaður íslensku Utanrílds- þjónustunnar á við í þessum nærfærnu lýsing- um, kemur það skýrt ffam í athugasemd hans að hann er sjálfur ekld í neinum vafa um hver húner. Við feljum því liggja beinast við að Jakob Frímann Magnússon nafngreini konuna, þannig að hún fái borið hö'nd fyrir höfuð sér og þau Jakob Frímann geti gert upp málin sín á milli. Á meðan fáunl yið fréttaritararnir kannski vinnuffið. Lundúnum, 13. júlí, 1993. Hildur Helga Sigurðardóttir, fréttaritari Ríkisútvarps og Sjónvarps Atina Hildur Hildibrandsdóttir, fréttaritari Bylgjunnar og Stöðvar 2. HREÐAVATNSSKÁLI Föstudagskvöldið 1 ó. jú Konukvöld með Heiðari Jónssyni ásamt pastahlaðborði. Verð kr. 1.850.- og mœting kl: 20.30. Síðast komust fœrri að en vildul Laugardagskvöldiö 17. júlf Sniglabandið leikur fyrir dansi frá kl: 23.00 til 03.00. Hópmatseðlar, gisting. Skemmtikvöldið 24. júlf Argentfsk grillveisla. Gestakokkurinn Óskar Finnsson sér um matinn, Heiöar Jónsson skemmtir og Bogomii Font og Milljónamœringarnir leika frá kl:23.00 til 03.00. Matseðill: Grafinn nautavöðvi með rommrúsínusósu, kolagrilluð nautalund og kolagrillað lambafile og í eftirrétt verður Pinacolada ís, verð litlar kr. 3.300.- B O G O l\/l OG MI LJÓNAMÆRIN G ARN I R SMÁAUGLÝSINGAR Ódýrt... Til sölu BMW 316 árgerð 1982 í ágætu standi. Útvarp og segulband fylgja. Verð kr: 85.000.- með afborgunum eða kr: 70.000.- staðgreitt. Upplýs- ingar í síma 91-12707. Nudd... Djúpt sænskt nudd. Ef þú ert þreyttur í fótunum, með bak eða höfúðverki eða orkulaus, hafðu samband við Beatrice Gu- idoísíma91- 39948. Skrifstofa... Ný björt rúmgóð skrifstofa með allri almennri aðstöðu til leigu. Upplýsingar í síma 91- 688222. Tilsölu... Til sölu vel með farinn Silver Cross bamavagn. Verð kr: 17.000,- Einnig mjög vel með farið baðborð. upplýsinar í síma 91-611594. Garðúðari frá... .HGARDENA or/mrrr/ Gleðilegt sumar! S T E I K H Ú S V 0, o’. Á laugardagskvöldum er boðið upp á hópmatseðla og er dansleikurinn innifalinn sem auka desert, og fyrir þá sem vllja glsta er boðið upp á svefnpokapláss (kr. 1200.- fyrir 2) einnig uppábúin rúm (kr. 3600 - fyrir 2) ^ p\Ð U R Sis ALDURSTAKMARK 20 ÁR SNYRTILEGUR KLÆÐNAÐUR EFTIR EINN EIAKI NEINN BORÐAPANTANIR OG AÐRAR UPPLYSINGAR I SIMA (93) 50011 Konukvöld a A. Hansen Föstudaginn 16. júlí Vegna fjöldans sem ekki komst inn endurtökum við fjörið. Meðal annars tískusýningu frá First, Strandgötu, spá- maðurinn mætir, frfir drykkir & ostur frá Ostabúðinni Strandgötu milli kl. 20-21. Toppurinn á tilverunni dansandi karlkyns fatafella. Lif- andi músík. Karlmenn eru velkomnir eftir kl. 23:30. því við verðum í urrandi stuði fram eftir nóttu. A. Hansen Staður fyrir konur.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.