Pressan - 22.07.1993, Blaðsíða 31
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993
PRESSAN
31
Pasta Basta breiðir úr sér
tirloið
VIÐ PRSTR
BRSTR.
Þamaverð-
ur hægt að
dvelja í
makindum
úti við í
vetur og
snæða
pastarétti
á milli þess
sem menn
synáa jóla-
Tó@n i snjó-
komunni.
Vegfarendur setn leið eiga um
Klapparstíg hafa tekið eftir stakka-
skiptum sem orðið hafa á veitinga-
húsinu Pasta Basta. Þar hefur verið
reist tjald eitt mikið og skrautlegt yf-
ir pall sem nýlokið er að smíða svo
nú geta gestir staðarins notið veður-
blíðunnar úti um leið og þeir mat-
ast. Ætlunin er að hafa pallinn opinn
í vetur og veita þjónustu þangað út,
en PRESSAN þorir að fullyrða að
slíkt hafi ekki áður verið gert hér-
lendis. Aðspurður er Ingvi Rafn
þjónn og eigandi staðarins bjart-
sýnn á að þetta gangi upp og hristir
bara höfuðið er blaðamaður setur
upp efasemdasvipinn og spyr hvort
staðurinn bjóði gestum einnig upp á
hlífðarfatnað við hæfi. „Við höfum
keypt gashitara sem hægt er að
kveikja á þegar fer að kólna, og svo
erum við með færanlega gasofna
sem við komum til með að nota í
vetur. Á kvöldin verður tjaldið lýst
upp með ljóstýrum sem hanga niður
úr loftinu svo hér skapast hin róm-
antískasta stemmning“.
í tilefni opnunarinnar hefur verið
útbúinn sérstakur matseðill fyrir
garðinn þar sem gestir geta valið sér
forrétt, aðalrétt og eftirrétt, allt fyrir
1850 krónur. Vert er að geta þess að
á Pasta-Basta er boðið upp á ferskt
pasta sem er lagað á staðnum og nýr
og endurbættur matseðill hefur ver-
ið tekinn í notkun.
POPP
Átján misjafnir grœðlingar
YMSIR
ÍSLENSK TÓNLIST
★★
GUNNAR
HJÁLMARSSON
í gegnum árin hafa sumar-
safnplöturnar verið kjörinn
vettvangur fýrir ung bönd til
að koma sér á framfæri, en eft-
ir að „risarnir“ settu stólinn
fýrir dyrnar hafa græðlingar í
íslenska tónlistarheiminum
þurft að leita annað til að fá
efni útgefið. Sjálfs er höndin
hollust í þessu sem mörgu
öðru og því tóku tveir græð-
lingar, þeir Sveinn Kjartans-
son og Kristján Már Hauksson
í hljómsveitinni Lifun, það
upp hjá sjálfum sér að gefa út
safnplötu og buðu mörgum
jafngrænum í plötuútgáfunni
með. „íslensk tónlist“ heitir
ffumkvæðið, og var plötunni
jafnframt fylgt vel eftir með
Þjórsártónleikunum fyrir
nokkrum vikum.
Líkt og flestar aðrar safn-
plötur er „íslensk tónlist“ æði
misjöfn bæði í stíl og gæðum.
Ekkert hefúr verið passað upp
á að halda í einhvern heildar-
svip heldur ægir öllu saman;
graðhestarokk og ffoðupopp
eru hlið við hlið eins og ekkert
sé sjálfssagðara. Lögin átján
sveiflast úr því að vera fínasta
tónlist yfir í metnaðarlaust
glamur, en meginparturinn er
þó þokkalegt miðjumoð. Byij-
um á byrjuninni. Hljómsveit-
in Orgill sýndi hvað hún gat
með plötunni fyrir síðustu jól,
en lagið hér er ekki sannfær-
„Ekkert aflögum
þessara sveita er
ýkja merkilegt, en
maður hefur svo
sem heyrt það
verra. Lipstick Lo-
vers eru hér líka á
ferðinni með
þokkalegt blús-
rokk. “
andi. Regn er ný sveit sem
stofnuð var upp úr leifum
„óheppnustu hljómsveitar ís-
lands“, E-X. Það er gott að
þeir séu farnir að syngja á ís-
lensku, en þeir eru enn að fást
við heldur sviplaust rokkpopp
í ætt við R.E.M. Næstur er
hræðilegur lönguvitleysublús
frá Stripshow. Þeir kunna
kannski að taka gítarsóló effir
bókinni, en það er langt í að
þeir geti samið heillegt lag.
Eina kvennahljómsveitin á
plötunni heitir Hljómsveit Jar-
þrúðar og frá þeim kemur
ágætt popp með háskólaleg-
um vísnavinablæ.
Þótt heildarsvipurinn sé
ekki mikill á plötunni eins og
áður segir eru þó flest böndin
nýstigin út úr bílskúrunum
þar sem þau voru að spila
þungarokk þangað til Seattle
komst í tísku og bætti nýjum
vessum i þungarokkið. „Sjald-
an situr stúlka ein með fætur
upp á gátt“ syngja drengimir í
Svívirðingu. Þó textinn sé
aulalegur í meira lagi er lagið
þó gott og með því besta hér.
Hljómsveitin Lifun á líka
sterkt lag. Þeir þræða nettri
melódíu í rokkið og vinna á
með hverri hlustun. Sveitimar
Bláeygt sakleysi, Jötunuxar,
Wonderplugs (með lag eftir
Bubba og Rúnar), Brainchild
og 13 (áður Bleeding Volc-
ano) spila líka rokk með mis-
þungum áherslum. Ekkert af
lögum þessara sveita er ýkja
merkilegt, en maður hefúr svo
sem heyrt það verra. Lipstick
Lovers eru hér líka á ferðinni
með þokkalegt blúsrokk.
Nokkrar sveitir falla í popp-
deildina; Sirkus Babalú eru
með fínt léttpopp en textinn,
grín um ostaétandi mennta-
mann, er þreytandi. Gleði-
mennimir Jójó eru snúnir aft-
ur með gleðiverk um sveppi.
Þeir rokka stífar en áður en
það er alveg jafngaman hjá
þeim í skúrnum. Hljómsveitin
Örkin hans Nóa er Upplyfting
í öðru veldi, svo gjörsamlega
gerilsneytt froðupopp að
maður getur ekki annað en
hrifist með. Vinir vors og
blóma blanda fönki í poppið í
ágætu stuðlagi. Það er hægt að
veifa bokku við sveitina á úti-
hátíð en lítið annað. Bogomil
Font tekur „Papermoon“ og
er sama stuðið á sjarmörnum
hér og á nýju plötunni hans.
Þá er aðeins eftir að nefna
besta lag plötunnar, „Laut“
með hljómsveitinni Los. Þessir
piltar voru einu sinni í bandi
sem hét Guði gleymdir sem
var ekki skemmtilegt band,
svo hér er um glæsilega ffam-
för að ræða. Lagið er frumlegt,
kraftmikið og skrítið. Til að
segja eitthvað mætti segja að
lagið hljómi eins og Ný dönsk
í tímavél djammandi með
Trúbrot 1969, allir á róandi og
einhver smiglaði saxafóni inn í
æfingarhúsnæðið. Eða eitt-
hvað! Meira Los sem fyrst,
takk!
„Islensk tónlist" er gott
frumkvæði, það er engin
spurning. Þeir sem nenna ekki
að þræða bílskúra borgarinnar
og liggja á hleri ættu að fá sér
eintak!
GREENJELLY
CEREAL KILLER
SOUNDTRACK
★★
Hljómsveitin Green Jelly ffá
New York hefur verið til í ein
tólf ár. Meðlimirnir hafa alltaf
hreykt sér af því að vera léleg-
asta hljómsveit í heimi. Göf-
ugur tilgangur það, og því
hlýtur að vera leiðinlegt fyrir
meðlimina að vera ekkert
mjög lélegir, því það eru þeir
alls ekki. Það er til hellingur af
miklu lélegri hljómsveitum
bæði hér og erlendis! Kannski
er einn allsheijar heilaskurður
eina von sveitarinnar til að ná
markmiði sínu.
Þeir sem hafa séð Green
Jelly á sviði hafa orðið glaðir.
Hljómsveitin gengur mikið út
á sjónrænu hliðina og gegna
skímslabúningar þar viða-
miklu hlutverki. Það var því
rökrétt ákvörðun hjá sveitinni
að gefa út fyrsta „vidéó-al-
búm“ í heimi. Nú er þessi
myncíbandaplata komin á
geislaplötu, en einnig er hægt
að kaupa myndbandið og fá
tónlistina ásamt leirbrúðum,
skrímslabúningum og plast-
kúm.
Eins og oft er með grínplöt-
ur er ekki beinlínis gaman að
hlusta á þessa trekk í trekk.
Green Jelly geta vel spilað
pönkað þungarokk en þeir eru
ekkert sérstaklega fyndnir.
Stjörnurnar tvær eru fyrir
fyrstu hlustun meðan maður
gat glott út i annað, en það er
stutt í hauskúpuna með ffek-
ari spilun. Sveitin er groddaleg
og hrá og ólíkt þvi þegar Laddi
lék pönkara eru hér pönkarar
að leika enn heimskari pönk-
ara en þeir eru. Það er svo sem
affek út af fyrir sig að blanda
Fred Flintstone saman við Sex
Pistols eins og þeir gera í
pönklummunni „Anarchy in
the U.K.“, og „Three little
pigs“ er fínt, en eins og allt
annað hér verður græna
pönkgrínið þreytandi, og eig-
inlega gjörsamlega óþolandi
við mikla spilun. Þessi plata
verður þó eflaust vinsæl í
landapartíunum hjá ferming-
arbömunum í framtíðinni.
POPP
FIMMTU DAG U R I N N I
22. JÚLÍ
• Rokktríóið Sultarleikur
fyrir gesti efri hæðar Veit-
ingahússins 22. Meðlimir
tríósins eru félagarnir Ágúst
Karlsson gamall Kamarorg-
hestur, Alfreð Alfreðsson og
Harrý Óskarsson en tveir hin-
ir síðarnefndu leika einnig
með hljómsveitinni Leiksviði
fáránleikans. Strákarnir lofa
skemmtilegri uppákomu.
• Dansveisla á Berlín.
Hljóðgerflahljómsveitirnar
(leiðinlegt orð) Hydema sem
inniheldur þá Hlyn frá Horni
og Gumma, og Bubble Flies
sem skipuð er Pétri og Páli
og fleirum.
• Gaukurinn býður upp á
sýnishorn úr dagskrá Þjóð-
hátíðar í Vestmannaeyjum
sem verður um næstu helgi. í
kvöld er það Hálft (hvoru og
Dr. Sáli sem gestir fá aö
berja augum, en þess má
geta að báðar sveitirnar eiga
ættir sínar að rekja að ein-
hverju leyti til eyjanna vinda-
sömu. Fjölbreytt blanda af
þjóðlagaflaututónlist og rokki.
• Hljómsveitin Thirteen
ásamt Reptilicus og Majdan-
ek spila á Hressó. Ef við byrj-
um á byrjuninni þá er ýmis-
legt hægt að segja um strák-
ana í Prettán. Þeir eru þrír,
Hallur Ingólfsson, Eirikur Sig-
urðsson og Guðmundur Sig-
urðsson. Hallur er alla jafna
trommari en þar sem hann
býr einnig yfir ágætis radd-
böndum, þá þenur hann þau
og lætur DAT tækið um
trommuslátt. Ásamt því að
syngja spilar hann einnig á
gítar og sér um uppvaskið
þetta kvöldið á veitingastaðn-
um. Hvað hinir gera í hljóm-
sveitinni er oss hulin ráðgáta.
Reptilicus og Majdanek
(hvurslags heiti eru þetta eig-
inlega) ætla líka að láta í sér
heyra eftir uppákomu þeirra í
Þrettán.
• Fimmtudagsfestival á
L.A. Café. Sólarsamba og
sumarkokteilar. Mallorka-tón-
list, grillmatur og mexíkóskur
bjór.
• Guðmundur Rúnar Lúð-
víksson heimsfrægur á Fóg-
etanum.
• Stjórnin tekur aö sér að
trylla Hafnfirðingana og vini
þeirra í Firðinum þetta kvöld-
ið.
FOSTUDAGURINN
23. JÚLÍ
• Hilmar Sverrisson slær
um sig og á hljómborðið á
Mímisbar.
• Landskeppni kaupstaða
í karoke. Úrslitakvöld á Hótel
íslandi. Hvaða kauptún skyldi
TaimiBPaaian
I lilm I mm m AAllulfel
Þú hringir í síma B11720 kvöldib fyrir
brottför og pantar bílinn. Símaþjónusta
BSR sér um aö vekja þig é réttum tíma.
Bíllinn kemur stundvíslega,
hlýr og notalegur.
Og þú ferð í loftiö afslappaöri en ella.
Viö bjóðum nú þessa þjónustu á
tilboösveröi, kr. 3SOO.- eöa aðeins
975.- á mann miöað viö fjóra.
iJinit
«117120
'ý/ó<f(t/ejHÍmeó
BSR
nú hreppa hinn eftirsótta titil
konungur karokekaup-
staðanna?
• Magnús Eiríksson og
Pálmi Gunnarsson ásamt
blásaranum Rúnari Gorgs-
syni skemmta í Firðinum og
kynna fyrir gestum nýtt frum-
samið efni. Þar er Ijúf
stemmning og opið hús.
• Grillveisla í tilefni fjögurra
ára afmælis Nilla karlsins á
„Niels Public House“ í Hafn-
arfirði. Gunni og Konni þeyta
skífur til klukkan þrjú.
• Dr. Sáli á Gauki á Stöng.
• Magnús Einarsson Fáni
og stórtrúbadúr spilar og
syngur og kætir menn og
konur á Feita dvergnum.
Hvað skyldu hinir Fánarnir
vera að brasa?
• Trúbadúrinn Bjössi greifi
á Fógetanum. Heimsfrægur
þar og á Húsavík.
LAUGAR DAGU RIN N I
24. JÚLÍ
• Todmoblle á Tveimur vin-
um. Þetta er upphitun fyrir
Þjóöhátfð í Vestmannaeyj-
um, en einhvers konar upp-
hitunaræði gengur nú yfir
höfuðborgina. Todmobile
hyggur á sumar- og vetrar-
leyfi eftir verslunarmanna-
helgina svo það er eins gott
að drífa sig og hrista sig með
toddunum. Með þríeykinu eru
að vanda þeir Matthías, Eið-
ur og Kjartan.
• Svartur Pipar í Súlnasal
Hótel Sögu frá klukkan 22.00
til 03.00. Þau voru með gott
innlegg í landslagskeppnina
á síöasta ári og skarta Margr-
éti, hinni stórskemmtilegu
söngkonu.
• Hilmar Sverrisson heldur
áfram þar sem frá var horfið í
gærkveldi.
• Kynningasúpa pizza, bjór
og snafsar hjá Nilla blessuð-
um sem er enn í afmælisfíl-
ingi.
• Dr. Sáli heldur áfram sál-
greiningu sinni á Gauknum.
• Maggi „mike“ Einarsson
heldur uppi dampinum á
Feita dvergnum með sínum
þéttu gítargripum og söng.
• Björn greifi heldur áfram
að vera heimsfrægur á Fóg-
etanum.
SUNNUDAGURINN
25. JÚLÍ
• Haraldur Reynisson ung-
ur trúbador úr Breiðholti sýnir
af hverju hann varð heims-
frægur, á Fógetanum.
SVEITABÖLL
FOSTUDAGURINN
23. JÚLÍ
• Félagsheimilið Hnífsdal.
Þar slá saman í púkk stór-
hljómsveitirnar SSSól og
GCD og því má búast við
mikilli gleði í dalnum.
• Félagsheimilið Blöndu-
ósi. Pláhnetan í öllu sínu
veldi.
• Sjallinn Akureyri.Frítt
inn og heimahljómsveitin
Kredit. Diskótek í Mánasal.
• Sjallinn ísafirði SSSól
sem smekkfyllti Miðgarð í
Skagafirði um síðustu
helgi. Hér eru þeir á heima-
slóðum söngvarans og þá
er víst að fleiri en pabbi og
mamma mæta.
Þotan Keflavík. Hin lands-
kunna hljómsveit Stjórnin
stígur á svið um miðnætur-
bil.
•Félagsheimlli Patreks-
firðinga. Býður upp á
Bubba, Rúnar Begga og
Gulla í GCD.
•Ýdalir í Aðaldal. Enn
er Pláhnetan iðin við kol-
FOSTU DAGURI N N
24. JÚLÍ
ann.
•Sjallinn Akureyri. Hljóm-
sveitin Sú Ellen frá Nes-