Pressan - 22.07.1993, Síða 34

Pressan - 22.07.1993, Síða 34
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993 29. tbl. 4. árg. HAFA SKAL DnECCA Af“ ***&% jf iíís;>» flW BB s BBBBBm wsssti^ Jr ■■ WtBBán SEM BETUR HLJOMAR ~ Leynibragð hjálparkokka Jóns Baldvins Settu Rannveigu í hringekjuna í tívolíinu í heilan sólarhring Hafnarfirði, 18. júli. Kvöldið áður en flokks- stjórnarfundur Alþýðu- flokksins hófst á sunnudag birtust grímuklæddir menn heima hjá Rannveigu Guð- mundsdóttur, bundu hana og kefluðu og fluttu í tívol- íið á hafnarbakkanum í Reykjavík. Þar var hún sett í “'-hraðskreiða hringekju, svo- kallaðan Draugabana, og látin snúast í henni í einn sólarhring. Tilgangurinn virðist hafa verið að fá Rannveigu til að taka að sér varaformennsku í Alþýðuflokknum. Það gerði hún á sunnudagskvöld, en hafði lýst yfir skömmu áður að það kæmi ekki til greina. Forráðamenn tívolísins virð- ast ekki hafa séð ástæðu til að kalla til lögreglu, en álitið að þarna væru drukknir unglingar á ferð. Aðspurður kannaðist Jón Baldvin Hannibalsson ekki við að neitt þessu líkt hefði gerst. „Ég beiti ekki brögð- um í stjórnmálum,“ sagði hann við blaðamann GP. Flokkstjórnarmenn í Al- þýðuflokknum höfðu á orði á fundinum að Rannveig hefði ekki verið eins og hún átti að sér. Þegar GP reyndi að spyrja Rannveigu út í at- vikið umlaði hún eitthvað óskiljanlegt, en viðstaddir túlkuðu það sem merki um sættir í flokknum. En ekki langt undan heyrðist Kiddi rótari segja við Áma umboðsmann: „- Þetta tókst bara vel hjá okk- ur, Ámi. Hún var svo ringl- uð að hún hefði tekið að sér að vera varaformaður í Tófúvinafélaginu.“ „Helt forvirret," voru iýsingin sem danskir gestir á fundinum höfðu um Rannveigu Guðmundsdóttur. ísienskt hugvit Debetkort úr gúmmíi — hönnuð sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. „Ég bind miklar vónir viö útbreiöslu gúmmíkortanna hér á landi, en reikna ekki með aö aörar þjóöir séu reiöubúnar aö taka upp þessa nýjung,“ segir Ólafur Ágeirsson, markaösstjóri Búnaöarbankans. Davíð lætur 100 milljónir í samstarfsverkefni Hóskóla íslands og Stjórnarróðsins „Vonandi að fréttamenn fari að sjá hlutlna í réttu Uósi" Sjálfboðaliði prófar tilraunaútgáfu af nýju gleraugunum en þau eiga að veita fréttamönnum betri innsýn í þau mál sem eru efst á baugi hverju sinni. Stjómqrráðinu, 22. júlí. Davíð Oddsson forsætisráðherra hefúr ákveðið að 100 milljónir af milljarðin- um, sem á að renna til atvinnuskapandi aðgerða, skuli veitt í samstarfsverkefni Raunvísindastofnunar Háskóla íslands og Stjómarráðsins. Hugmyndin er sú að smíða sérstök réttsýnisgleraugu sem hjálpi fréttamönnum að sjá atburði Uð- andi stundar í réttu ljósi. „Mér hefur löngum verið raun að brengl- uðum fréttaflutningi ykkar GP-manna“, sagði Davíð í viðtali við blaðið. „Áhrif fjölmiðlanna eru orðin það mikil að Stjórnarráðið neyðist til að taka í taum- ana og hjálpa til við fréttamatið“. Samkvæmt heimildum GP var hug- myndin fyrst sú að senda blaðamenn í endurhæfingarnámskeið í Kína en við nánari athugun þótti stefna þarlendra stjórnvalda of frjálslynd eftir breytingar í umbótaátt síðustu árin. Þá ku Jón Gerreksson, deildarstjóri í Arnarhváli, hafa fengið þessa snilldarhug- mynd með samstarfsverkefnið. Harri Gerreksson, bróðir Jóns og pró- fessor við Verkffæðideild HÍ, segir verk- efnið ganga vonum framar og nú þegar er farið að prófa út- búnaðinn á nokkr- um sjálfboðaliðum. „Eins og stendur sjá þeir bara fréttir í innrauða spektrúm- inu og þótt það hafi gefist vel við frétta- ílutning af átökun- um í Alþýðuflokkn- um vonumst við til að geta bætt útbúnaðinn þannig að hann nái yfir breiðara svið. Það er mikilvægt að við verðum búnir að ná útfjólubláa svið- inu fyrir landsfund SUS í haust“, segir Harri.Þeir bræður vísa alfarið á bug öll- um ásökunum um einkavinavæðingu og segja þær gott dæmi umttamat GP. Raunir skipstjórans ð Guðnýju ÍS íshjörn réöst á skipstjórann í svetni Á vegum Magnúsar Skarphéðinssonar, “ segir skipstjórinn. Smáauglýsingar Set nafnið mitt undir greinar í Moggann gegn vægu gjaldi. Skiptir ekki höfuðmáli hvaða skoðanir koma fram ef verðið er rétt. Tilvalin þjónusta fyrir þá sem hafa vondan mál- stað að verja, en er aö öðru leyti annt um mann- orö sitt. Tilboð sendist merkt „Ámi“, Alþýðuhús- inu, 101 Reykjavík. Bolungqrvik, 22. júli. Björn ísberg úr Hengingar- hyl syðra og skipstjóri á Guð- nýju ÍS, búsettur í Bolungar- vík, lenti í óhuggulegri reynslu í fyrrinótt þegar villt- ur bjamarungi réðst á hann þar sem hann var sofandi á heimili sínu. Björninn beit skipstjórann í fingur og klór- aði hann á handleggjum og bringu þegar hann reyndi að ná á honum taki. Bangsi slapp út um glugga i íbúð skipstjórans og hefur enn ekki náðst. Björn segist ekki skilja af hverju ísbjörninn gerði hon- um þetta. „Maður er hvergi hultur lengur fyrir þessum skepnum og ég skrl ekki af hverju þeim hefur ekki verið útrýmt,“ sagði hann við GP. „Ég er sannfærður um að Magnús Skarphéðinsson hef- ur sent hann á mig, enda eru þessar skepnur persónulegir kunningjar hans. Það er líka þó nokkur svipur með þeim, svona eftir á að hyggja. Þegar ég opnaði augun var bjarnarandskotinn að stökkva á mig og byrjaði strax að bíta í fingurna. Ég gat lokað svefn- herbergishurðinni og fór að eltast við kvikindið.“ Björn segist oft hafa náð taki á hon- um en bangsi hafi bitið fast og hann jafnharðan þurft að sleppa takinu. Gert var að sárum Björns í gærmorgun, en auk meiðsla á fingrum, handleggjum og bringu missteig hann sig í átökunum. Þá þuríti hann að fá stífkrampasprautu og væn- an valíumskammt. „Það var heppni að ég var einn í íbúðinni þegar þetta gerðist því skipverjar mínir hefðu eflaust orðið fyrir ís- biminum á undan mér,“ segir hann. Þess má geta að Björn er nýkominn heim úr löngum túr þar sem hann var sólar- hringum saman á viliidýra- slóðum án þess að verða fyrir óþægindum. Að hans sögn er ísbjörninn, sem á hann réðst, greinilega hvítur, stór og feitur, drukk- inn og illa þefjandi. Hann er Áhafnarmeðlimir í Guðnýju ÍS hlú hér að skipstjóra sínum eftir átökin.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.