Pressan - 22.07.1993, Qupperneq 35
PRESSAN
S P R I K L
Fimmtudagurinn 22. júlí 1993
Fallhlífastökk:
Oruggara en kynlff
Fyrir flestum er fallhlífa-
stökk fjarlægur draumur eða
hreinasta martröð. Það er út-
breiddur misskilningur að
þetta sé hættuleg íþrótt enda
vekur það alltaf mikla athygli
fjölmiðla þegar slys verða. I
raun er þetta mjög öruggt
sport og ólíkt hættuminna að
stökkva í fallhlíf úr 4.000 feta
hæð heldur en að keyra bíl.
Það er einnig auðveldara en
margir halda að láta draum-
inn rætast því Fallhlífaklúbb-
ur Reykjavíkur býður uppá
námskeið fyrir þá sem vilja
prófa. Hægt er að velja um
svokallað static-línu námskeið
eða hraðþjálfun í fijálsu falli.
Static-línu námskeiðið tekur
tvö kvöld, kostar 15.000 krón-
ur en innifalið í því verði eru
tvö stökk. Stokkið er úr 4.000
feta hæð (ámóta og sautján
Hallgrímskirkjuturnar) en
fallhlífin opnast sjálfkrafa.
Hraðþjálfun í frjálsu falli er
hins vegar viðameira nám-
skeið. Þá er stokkið úr 12.000
feta hæð með kennara og fall-
hlífin opnuð í 4.000 fetum.
Þátttökugjaldið er 75.000
krónur og sjö stökk innifalin.
Þeir sem vilja einungis prófa
að stökkva einu sinni geta far-
ið í svokallað farþegastökk en
þá er viðkomandi festur fram-
an á kennara og stokkið út í
10.000 fetum en fallhlífin
opnuð í 5.000 fetum. Slíkt æv-
intýri kostar 9.800 krónur.
Snorri Hrafnkelsson hjá
Fallhlífaklúbbnum sagði í
samtali við PRESSUNA að
talsverð ásókn væri í þessi
Víkingar skora
grimmt
með öðrum liöum
Það vakti athygli manna að það voru tveir fyrrum leik-
menn Víkings, þeir Helgi Sigurðsson og Atli Einarsson,
sem skoruðu öll mörk Fram í 5-0 sigri yfir Fylkismönnum.
Lánið virðist aftur á móti ekki leika við hina gpmlu félaga
þeirra í Víkingi. Þeir töpuðu nú síðast 3-2 fyrir ÍBV úti í Eyj-
um eftir hörkuleik og mikla baráttu. Það var greinilegt af
leiknum að Víkingar eru síður en svo búnir að gefast upp
þó svo að á móti hafi blásið í allt sumar. Tomasz Jaw-
oreck, hinn pólski, og markahrellirinn Guðmundur
Steinsson virðast ná ágætlega saman og eiga ugglaust
eftir að vera hættulegir í næstu leikjum.
Helgi Sigurðsson gerði sér lítið fyrir og skoraði hat- trick gegn Fylki á dögun-
um. Fyrrum féjögum hans í Vikingi hefði ekkert veitt af þessum mörkum í
Að sögn kunnugra jafnast ekkert á við að þjóta um loftið í frjálsu falli en menn verða að muna að opna fallhlrfina áður en það er orðið um seinan
námskeið. Aldurstakmark er
16 ár en annars getur hver
sem er prófað. Fólk þarf ekki
endilega að vera í góðu líkam-
legu formi og Snorri tók sem
dæmi að stokkið hefði verið
með 120 kg mann og flugvélin
hækkaði sig um 20 fet þegar
hún losnaði við þungann. AÍft-
ur á móti segjr hann eftirtekt-
arvert hve íslenskar konur séu
ragar við að stökkva. Konur
eru almennt liðugri en karl-
menn og því betri stökkvarar
frá náttúrunnar hendi. Úti í
hinum stóra heimi eru 20-
40% stökkvara konur en hér á
landi er einungis ein kona
virkur stökkvari.' Stöðugt er
unnið að því að gera fallhlíf-
arnar öruggari og í því sam-
bandi má nefna að tölvur
bandarísku geimferðastofn-
unarinnar NASA eru notaðar
við hönnun faUhlífa.
Þeir sem ætla að hella sér út
í fallhlífastökk af einhverri al-
vöru þurfa að punga út rúm-
lega 120.000 krónum fyrir al-
mennilegum búnaði. Fall-
hlífastökksklúbburinn hefur
vél til afnota en hvert stökk
kostar 1.100 krónur fyrir
meðlimi.
I Bandaríkjunum eru kjör-
orð fallhlífastökkvara: „Rem-
ember when sex was safe but
sky diving was dangerous.
Nowadays sky diving is safe
but sex is dangerous."
Leikmannamyndirnar renna út
eins og heitar lummur
íþróltir og sljórnmál
Mitterand styður Tapie
Francois Mitterand hefur
lýst fullum stuðningi sín-
um við Berndard Tapie
eiganda Olympique Mar-
seille en framkvæmda-
stjóri þess hefur verið
ákærður fyrir að múta
leikmönnum Valencien-
nes til að leggja ekki of
hart að sér í leik gegn OM
þann 20. maí, einungis
sex dögum fyrir úrslitaleik-
inn í Evrópubikamum.
Þessi stuöningsyfirlýsing
kom fram á blaðamanna-
fundi á Bastilludeginum
14. júlí, þjóðhátíðardegi
Frakka.
TAPIE Andstæð-
ingar hans vilja
óðir og uppvægir
tengja hann mú
málinu.
MiTTERAND Forsetinn styður fyrrum ráðherra sinn en ýmsum kom á óvart
hvað hann fylgist vel með frönsku deildinni.
Tapie er einn dyggasti
stuðningsmaður Mitter-
ands og gengdi embætti
ráðherra í ríkisstjórn
sósíalista árið 1992.
Mitterand átaldi
menn fyrir aö
blanda Tapie í mál-
ið þar sem enn
hefði ekki verið
minnst á nafn hans
1yrir dómstólum.
Það kom ýmsum á
óvart hve vel forsetinn
er heima í frönskum fót-
bolta. „Eins og flestir
aðrir veit ég ekkert
um þetta mál. Ég
fylgist aftur á móti dálítið
með fótbolta og hef mínar
skoðanir á vissum leik-
mönnum... ég er mjög
hrifinn af OM. Þetta er frá-
bært lið sem á Bernard
Tapie mikið að þakka."
Forsætisráðherran benti
einnig á að þó svo að 1-0
sigur OM yfir Valencien-
nes hafi tryggt þeim
franska meistaratitilinn
hafi ekki þurft neinar mút-
ur til. OM var með fjög-
urra stiga forskot og betri
markatölur en Paris St.
Germain sem var í öðru
sæti, þegar einungis tveir
leikir voru eftir.
Rauða spjaldið
komið á loft
Sala á rauðu spjöldunum svo-
kölluðu, gengur vonum fram-
ar. Jón Bjömsson hjá Nóa-
Síríusi, en það fyrirtæki sér
um dreifinguna, sagði í sam-
tali við PRESSUNA að nú
þegar hafi hundmð þúsunda
mynda selsL Þetta em lit-
myndir af öllum leikmönnum
fyrstu deildarinnar með upp-
lýsingum um aldur og leikja-
fjölda.
Misjafnt er hve mörgum
myndum af einstökum leik-
mönnum er sleppt í um- . , „„
ferð í einu. Myndir af WÐMUNDUR STEINSCnu u
vinsælum leilónönnum 1 sum:,r " •*
em sjaldgæfari en hinar.
Nú þegar er farinn að mynd-
ast skiptimarkaður og Nói-
Síríus hefur í hyggju að hlúa
að slíkum markaði. Þar eiga
saftiarar að geta skoðað allar
myndirnar og séð hvað þá
vantar í safnið. Meðal vinsæl
ustu leikmannanna em þeir
Izudin Daði Dervic, Rúnar
Kristinsson, Birkir Kristins-
IJ
son,
Tómas Ingi Tómasson, Ól-
afur Þórðarsson, Sigurður
Jónsson, Trausti Ómarsson
og Andri Marteinsson.
Einnig hefur verið gefin út
bók þar sem safnarar geta límt
inn myndimar sínar. Allar
bækurnar em númeraðar og í
haust verða dregin út 20
numer
oghinir
heppnu
fá áritað
plakataf
landsliðinu
og boðs-
miða á leikinn gegn Lúxem-
borg 8. september.
Það verður forvitnilegt að
sjá hvert skiptihlutfallið verð-
ur milli hinna ýmsu leik-
manna þegar líða tekur á
sumarið.
Er kominn tími tíl að breyta fyrirkomulagi Islandsmótsins?
Engra breytinga að vænta
Eins og staðan í Islands-
mótinu er um þessar mundir
virðist fátt geta komið í veg
fyrir að ÍA verði íslandsmeist-
arar þó svo að mótið sé ein-
ungis hálfnað. Þar sem þetta
dregur óneitanlega úr spennu
og áhuga fyrir íslandsmótinu
lék PRESSUNNI forvitni á að
vita hvort hugmyndir væru
uppi um að breyta fyrirkomu-
lagi Islandsmótsins líkt og gert
var í handboltanum með góð-
um árangri. Eggert Magnús-
son, forseti KSI segir þessi mál
hafa verið í umræðu manna á
milli í fyrra en þetta sé ekki
sambærilegt við það sem hafi
verið að gerast í hand-
boltanum. Þetta hafi ver-
ið reynt víða erlendis en
flestar slíkar tilraunir
hafa endað á þann veg
að menn hafi snúið sér
að upprunalega deildar-
fyrirkomulaginu eins og
það er hjá okkur. „Sví-
amir eru til dæmis búnir
að fara í heilan hring.
Þeir byrjuðu á úrslita-
keppni, breyttu henni
svo en núna eru þeir aft-
ur komnir í gamla syste-
mið. Það sem gerir fót-
boltann frábrugðinn
handboltanum er að þú
EGGERT MAGNÚSSON segir reynslu annarra
þjóða af breytingum á keppnisfyrírkomulag-
inu eiga að vera okkur víti til varnaðar.
spilar ekki 90 mínútna leiki
dag eftir dag“, segir Eggert.
„Ef eitthvað yfirburðarlið er í
deildinni, búast auðvitað allir
við að það vinni, hvort sem
um úrslitakeppni er að ræða
eða ekki.“
Hann bendir einnig á að á
haustin sé allra veðra von og
því erfitt að koma þessu fyrir.
„Auk þess skapast vandræði ef
fótbolta- og handboltatíma-
bilin skarast. Svíarnir lentu í
því að fótboltatímabilið skar-
aðist við íshokkítímabilið en
íshokkí er gríðarlega vinsæl
íþrótt þar í landi.“