Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 12.07.1964, Qupperneq 15

Tíminn Sunnudagsblað - 12.07.1964, Qupperneq 15
búinn að semja um það áður, að skipið taki fyrir hann girðingar- staura, sem hann ætlar að koma í verð fyrir sunnan, og nú er hann með staurana tilbúna í fjörunni. Þetta eru fallegar spýtur og vel til höggnar (enda líta sauðfjárveiki- varnirnar eflaust ekki við öðru), og allt er þetta rekaviður. Ég tek Ein- ar tali og spyr hann um rekann. Hann segir mér, að þetta sé ekkert orðið, reki hafi farið hraðminnk- andi, og síðasta árið geti ekki heit- ið, að neitt hafi rekið. Meginástæð- ur þess telur hann tvær. í fyrsta lagi er reki yfirleitt minni alls stað- ar nú en hann var fyrrum, sem staf- ar af bættum útbúnaði og öruggari stíflum í skógarhöggslöndunum, en þaðan hefur drýgstur hluti íslenzka rekaviðarins ævinlega borizt, kannski mest frá Síberíu. Síðast liðinn vetur var þar að auki ólíkur flestum öðr- um vetrum að því leyti, að norð- austanátt var afar sjaldgæf, en sú átt hefur hingað til verið ríkjandi á þessum slóðum að vetrarlagi og er sú átt, sem helzt flytur með sér reka. Þetta var sama sagan og ég heyrði alls staðar í rekasveitum. Reki hef- ur hvarvetna dregizt saman, og síð- asta vetur var hann nær enginn. Jafnvel á Hornströndum hefur ekki verið umtalsverður reki síðustu árin, þótt ekki sé fyrir að synja, að spýtu og spýtu hafi skolað þar á land. En gullöid rekaviðarins virðist vera liti, að minnsta kosti um sinn. Þegar búið er að skila áburði vita- varðarins á land, snúa skipverjar sér að staurunum. Einar er helzt á því að láta þá bíða um stund, en fara í staðinn með hópinn heim til sín og veita honum góðgerðir, en stýrimaður er aldeilis ekki á því að tefja skipið á því. Framhald á bls. 644. Erlendur Magnússon, vitavörður á Siglunesi. Fyrir framan hann sér í bakið á Jóni stýrjmanni Kristjánssyni. Þessi mynd er eins og hinar Tímamynd-KB. S»íS':<v ■ ■ Rekaviður Einars á Reyðará er handlangaður út í bátinn j S iglunesfjöru. T I M I IM !M — SUNNUDAGSBLAB 639

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.