Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1968, Síða 3
Nkff.
Sum skordýr eru búin geigvænlegum vopnum, er fátt
stenzt fyrir í veröld þeirna. Eitt þeirra er þessi Víga-
Styr eyöimerkurinnar. Hann er hiö mesta rándýr, en
Múhammeðstrúarmenn segja, að hann biðjist fyrir og
snúi þá andliti sínu til Mekka.
Piltur þessi er um margt vel úr garði gerður, líkt og fæddur
tll þess að berjast og sigra. Grafkyrr bíður hann fórnar-
lambanna og snýr höfðinu með hægð, svo að hann geti
fylgzt með hreyflngum þeirra. Framlappirnar eru ekkert
annað en hryllilegar griptengur.
Hætti eitthvert kvikindl sér of
nærri,, leggur kappinn til atlögu og
grípur það. Síðan tensar hann sig
og biður næsta fórnardýrs.
Veiðin heppnast þó ekkl alltaf. En
sumar tegundir eru í þokkabót likar
biómi að sjá, og þær eiga flugur,
sem fljúga á milli blóma, illt með að
varast.
Fætur þessara morðvarga eru
um nauðalíkar fögrum bikarblöðum.
En hér dylur fegurðin banvæn vopn,
líkt og oft er flagð undir fögru skinni
í mannheimum
iel
Itinihininiiirrturriiiíi
Kvendýrin eru gráðugri, enda þarfn
ast þau meiri næringar vegna þunga
síns. Karldýrin sæta hörðum kostum
Kerlingarnar éta þá hálfa við mök-
unina. Sleppi þeir þá, éta þær þá á
eftir.
Eggjum sínum kemur móðirin fyrlr
i hylki, sem hún býr til úr kvoðu, er
hún gefur frá sér. Þó að grimm sé,
bregzt ekkl umhyggja hennar fyrlr
afkvæminu og viðhaldi kynstofnsins.
í hverju hylki eru 100—200 egg. Hylk
in eru nálega jafnstór og dýrið sjálft,
og eggln geymast i þeim vetrartangt.
Höfuð karldýrsins minnir á hyrnda
sauðkind eða villigeit.
Telbnlngar og lesmál: Charlie Bood
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ
11