Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1968, Blaðsíða 4

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1968, Blaðsíða 4
Björgunaráhöld borgarbúans Sú var tíð, a8 málarar fengust helzt ekki við annað en landsl agsmyndir, enda var þá ást á landinu sjálfu, fjöMum og fljót. um, ofarlega í huga fólks. En borgarbúinn á sér nú gerólíkan hugarheim. Gamburmosatóin er honum jafnóraunveruleg og bústnu smáenglarnir, sem fyrr á tímum voru ómissandi á málverkum. Eftir að málarar hafa nú um langt skeið gert abstrakt, þ. e. óhlutkenndar myndir, og rannsakað ótal vandamál f samleik lita og lína, þá hafa hinlr yngri nú snúið sér að þvf að skilgreina líf nútfmamannsins. Sú stefna er kölluð pop-stefna. Við sjáum hér að ofan eina siíka mynd frá Englandi. Hér leitast listamaðurinn við að tjá sem sannasta lýsingu á borgar- Iffi með því að raða saman nokkrum hlutum á þann hátt, að þeir geti ýtt undir hugmyndaflug áhorfandans. Það eð óttast má, eð sitthvað fari forgörðum f prentun skal hér talið það helzta, sem á myndinni sést af hálmstráunum okkar. Efst til vinstri er pakki af blásnu morgunverðarhveiti, sem sagt er magna lífsþrótt neytandans, þá kók-flöskur tvær og krukka af Nes-kaffi, þá pakki af þurru, niðursneiddu brauði. Vörumerkið er Dásemdahleifur. Byrjað frá vinstri aftur er viskiflaska, hraðfrystar baunir „úr garðinum“, þvottaefnið DAZ, sem gerir þvottinn svo hvitan, að munurinn er augljós, en plata svertingjans við hliðina heitir: Á morgun, það er spurningin. Til þess að ekkert fari milli mála, er viðvörunarmerki f forml fannkremstúbu sett hjá. Yzt eru timburmannatöflur. Neðra hornið hægra megin er helgað ástum (varalitur, púðurdóslr, tímaritið Playboy), og fjármálum (lagður undir skammbyssu). Neðst er ofurlitlll káppakstursbíll. Hornpunktar neðst til vinstri og efst tll hægri eru plötur bandariska saxófónleikarans Coltrane með auglýsingaseðlum, sem æpa: Nýjung, nýjung. Kannski vill listamaðurinn þar með gefa tóninn I lífslag borgarfoúans, hver veit? Með þvi að skoða afstöðu þessara hluta hvers til annars, má lesa út úr myndinni marga þurrafyndni um llfið I engil- saxneskri stórborg. Sigurjón bendir á, að samsvarandi mynd mætti gera um lifið I Reykjavik, ef breytt væri um tákn. H|á okkur yrði óleysfur vandi svertingjans ekkl á miðri mynd, né verða óigandi ástriður djasstónlistar heimfærðar upp á þá borg, sem hæst rls I Hallgrimskirkjuturnl. Og enn önnur yrðl mynd um lif I lltlum kaupstað eða þorpi. 12 T I M » N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.