Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1968, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 06.01.1968, Blaðsíða 14
um, hvort íslenzkum bifreiðastjór- um hætti til þess að tjá sjálfstæði sitt með því að aka þeim megin á veginn, sem þeim sjálfum sýnd- ist, þvi að mér virtust þeir halda sig ekki síður vinstra megin en hægra megin. Þegar ég hafði orð á þessu, var mér svarað: , „Hér er vinstriakstur". Þó að mest bæri á nýjum far- þegabílum, mættum við býsna mörgum jeppum, amerískum, þýzkum og rússneskum. Tveir snjó bílar stóðu meira að segja við göt- una. Þegar við höfðum búið um tréð okkar á vörubílnum, skimaði öku- maðurinn í kringum sig, líkt og hann væri að gæta að þvi, hvort við værum tveir einir. Síðan seild- ist hann laumulega eftir leður-, hylki, sem merkt var „Voltmeter“. Hann veitti athygli furðusvipnum, sem á mig kom, og sagði því um leið og hann opnaði töskuna og dró upp úr henni viskíflösku, sem hann otaði að mér: „Við megum ekki láta sjást, að við drekkum við akstur á sumrin, því að þá kemur svo margt að- komufólk hingað í fjörðinn“. Og svo saup hann sjálfur hressi- lega á flöskunni, þegar ég fékk honum hana aftur. „En á veturna gegnir allt öðru máli. Þá er snjór á heiðinni, og þá eru ekki neinir hér á ferð nema fólkið, sem býr hér — og þá get- um við drukkið eins og okkur sýn- ist, því að hér vita allir, að maður ratar heim til sín, hvað fullur sem maður er“. Gagntekinn af hagsýni og sam- félagsiþroska þessa kumpánlega manns klöngraðist ég upp i vöru- bílinn, innan lítillar stundar vor- um við farnir að bjástra við að taka tréð af pallinum á auðu svæðf ofan við bryggjuna. Ungur trésmið ur, sem kunni ensku, beið okkar þar, og byrjaði undir eins að birkja það og hefla. .. Við vorum alltaf þreyttir, og stundum var þolinmæði okkar of- boðið í leit okkar að því, sem okk- ur vantaði. Einu sinni kom Axel æðandi út úr búð, sem svo hittist á, að landi hans rak. „Þessi helivitis danski asni“, hrópaði hann. ★ Við vildum létta á Merton og á- kváðum því að matast á landi að mestu leyti. En það var bjart all- an sólarhringinn, og þess vegna hætti okkur til þess að gleyma tímanum. Þar að auki var svo margt að gera, að við gátum varla slitið okkur frá vinnunni, fyrr en við vorum orðnir alveg uppgefn- ir. Af þessu leiddi, að við komum venjulega of seint á eina matsölu- staðinn, þar sem við gátum feng- ið steiktan þorsk með soðnum kart öflum og bræddu smjöri, því að þar var lokað klukkan sjö. Það var Axel, sem fann sjó- mannaheimilið, sem Noregsstjórn rak vegna norska fiskimanna. Starfsliðið er flutt til Seyðisfjarð- ar á hverju sumri á herskipi úr norska flotanum. Þó að við ættum ekki neina heimtingu á greiðasemi af hálfu Norðmannanna, opnuðu þeir okkur allar dyr, og við vild- um miklu'heldur eggin og svína- fleskið þeirra, er fram var reiít með kúfuðum diskum af smurðu brauði, kjöti, mauki og osti og nægð af mjólk og kaffi, en gisti- húsamatinn, sem þar á ofan var dýrari. Seyðfirðingar voru senn albúnir að veita síldinni viðtöku. Fúlan mökkinn, sem seinna hvíldi yfir firðinum eins og kæfandi þoka, var þegar tekið að leggja frá síld- arbræðslunum. Þetta var peninga- toófið, sem íslendingar nefna svo af heimspekilegri gerlhygli. Það var smár fiskur, sem unn- inn var í verksmiðjunum. Höfuð- önnin var í vændum innan fárra vikna, er stórsíldin nálgaðist land- ið. Það var síldartiminn svokall- aði, þegar þessi fiskur var maga- Áhöfnin i káetu aö morgni 3. júnímánaðar, er lagt var af stað í siglinguna fyrirhuguðu til íslands og Grænlands. 22 T t M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.