Tíminn Sunnudagsblað - 13.10.1968, Side 13

Tíminn Sunnudagsblað - 13.10.1968, Side 13
Básar í Grímsey, nyrzta ból á íslandi. Þaðan sást ekki tif annarra bæja og enda- laust úthafið girðir mestan hluta sjónbaugs. firði til frændfólks síns með tvö eliitu börnin, en Kristjana varð vinnukona hjá séra Árna Jóhann- essyni á Þönglabakka með Sig- mund iitia, yngsta barnið. Kona séra Árna var Karólína Guðmunds dóttir frá Brettingsstöðum á Flat- eyjardal. Næsta vor fékk séra Árni Grenivíkurprestakall og flutt ust mæðginin þangað með þeim hjónum. Um sumarið fótbrotnáði Sigmundur litli. Þar man hann fyrst eftir sér, leiðindum í inni- setu, og hve prestsfrúín annaðist hann eins og sitt barn, er móðir hans var við útivinnu. Vorið 1893 flutti Kristjana með Sigmund að Þönglabakka og var þar vinnukona hjá Kristni Guð- mundssyni. Hjálmar, faðir Sig- mundar, var enn að Hóli með tvö eldri börnin. Hann var smiður góð ur og var á ýmsum bæjum við smíðar á vetrum tíma og tima. Þennan vetur var hann að smíða á Þönglabakka. Þar veiktist hann af inflúensu og dó. Tvö elztu börnin voru þá tekin í fóstur á Hóii af frændfólki Hjálmars. Næstu tvö árin var Kristjana vinnukona að Botni í Þorgeirsfirði með dreng sinn. Vorið 1896 réðist Kristjana með drenginn sem ráðskona til Geir- finns Magnússonar í Keflavík. Hann var ekkjumaðuir og átti tvær dætur og einn son af fyrra hjóna- bandi. Hann heitir Þórhallur og er enn á lífi og búsettur á Svalbarðs- strönd. Hann hefur mjög stundað vegavinnu á sumrum. Þeir Sig- mundur urðu miklir vinir og fé- lagar. Kristjana og Geirfinnúr gift ust og áttu saman einn son. Sig- urgeir að nafni. Ilann ér nú bú- settur að Auðnum í Öxnadal. Keflavík var einangruðust allra norðlenzka bæja, og þurftú til Hornstranda til að finna hliðstæð- Gu'ðný Jénsdðtllr. Slgmundur Hjátmarsson. T I M I N N - SUNNUHAGSBLAM 805

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.