Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1973, Qupperneq 13
Oddný Guðmundsdóttir við störf f skrifstofu, þar sem hiin vann fyrir nokkrum árum að miklu áhugamáli sínu að
loknum farkennslustörfum að vetri.
vor. Og nú er spáð rafmagni í Bitru lika. Annars er langt
siðan þar kom ljósavél á hvern bæ.
— Er ekkierfitt, að fá menntaða kennara á svona staði?
— Þú orðar þetta ekki rétt. Þú átt að segja ,,hæfir” kenn-
arar. Og hæfir kennarar eru þeir, sem náð hafa einhvers
konar prófi úr Kennaraskóla tslands. Hinir, sem ekki hafa
verið þar innan dyra, kallast ,,óhæfir”, og þar sem þeir
kenna, er kallað „neyðarástand”.
Kennaraskólinn er nú orðinn háskóli, og þvi verður vott-
orðaframleiðslan ekki eins ör á næstunni. Hins vegar hlýtur
skólinn að standa betur að vigi næst, þegar hann hættir sér
út i spurningakeppni við sjómenn, sem frægter orðið.
— Hvað segir þú um nýja reikninginn — mengið?
— Ég reyni ekki að kenna það. Mér virðist það kerfi eink-
um til þess að gera einfalda hluti flókna.
Kunningi minn, sem er frábær reikningsmaður, hefur
undanfarin tvö sumur verið mánuð i Reykjavik til að læra
að kenna krökkunum þetta. Mér skilst, að foreldrar séu
hvattir til að læra þessar kúnstir, til þess að geta hjálpað
börnunum. Það hlýtur að verða óþægilegt, þegar fólkið i
landinu skilur ekki hvað annað, þegar um reikning er að
ræða.
Nú ættu menntaleiðtogarnir að fara að bæta úr þessum
mistökum. Það er mannlegt að yfirsjást, en ómennska að
bæta ekki úr yfirsjón sinni.
— Lenging skólatfmans er umræðuefni manna núna.
— En verður vonandi aldrei framar. Ég get ómögulega
kallað það sérstök mannréttindi ef börnin eiga að sitja inni
hálfan daginn, meðan sýslað er við lambfé, gengin varplönd
og hlynnt að g .óðri jarðarinnar. Einhverjir gátu þess í um-
ræðum í vetur að gott væri ef sveitabörnin fengju að njóta
sin heima um sauðburðinn, en til mála kæmi þá að hafa þau
i skóla um mitt sumarið.
Ég segi eins og maðurinn, sem spurður var álits um ör-
nafnakenninguna hans Þórhalls: „Þaðer ekki hægtað tala
um þetta”.
Sunnudagsblað Timans
517