Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1973, Page 19

Tíminn Sunnudagsblað - 23.06.1973, Page 19
Mér barst nýlega i hendur úrklippa og er eftir guðfræðistúdent að nafni úr dönsku blaði. Þar skrifar prestur- Holger Lissner. inn séra Poul Falk Hansen grein um Sálmurinn er þannig til orðinn, að nýjan danskan sálm, sem hann birtir Kristeligt Dagblad i Kaupmannahöfn Nýr sálmur Af stað þú oss, Drottinn, til starfs hefir leitt á stórborgar þysmikla vangi. Þar bústað vér reistum með útsýni eitt, sem óhreinir strompar og hús geta veitt. Af himni sést ei nema angi. Vor efasjúk önd vart eygir þá hönd, sem heldur oss föður i fangi. Ótt bárufall timans oss ber fram á við, þó bæn vor sé rósemd og næði Um óskalönd frelsis, um friðarins hlið æ fylgir oss spenna og veitir ei grið með hugann við heimslystar æði. Ei gleymd vorum vér, þó gleymdum vér þér. Þú gefur oss friðarins gæði. Metta oss áhrif hvern einasta dag, þitt orð virðist stakt í þeim flaumi. Og hér kunna áróðursöflín sitt fag að ummynda skoðanir bezt sér í hag með viljann svo veikan í taumi. I frelsi frá þér þó frjáls erum vér að helgast þér heimsins í glaumi. Ó, kenn ossað lifa. ( lögum við þig á lífið i bænum að vera. Lát mildi oss tjá, þeim, er misstíga sig, sem máttvana hrekjast um þrautanna stig og lífs með þeim byrðarnar bera. Guð, gef að þitt orð megi geisla um storð Allt líf vort til lofs þér skal vera. Holger Lissner efndi til samkeppni um sálm, er sér- staklega skyldi ortur meö tilliti til viö- horfa í nútima þjóöfélagi. Falk Hansen getur þess ennfremur i grein sinni að Danir eigi margar svip- myndir i dönskum sálmakveðskap, sem minni á llf sveitarinnar, bylgjandi kornakra, sveitar-sælu og þar fram eftir götunum, en fátt sé um sálma, sem lýsa viðhorfum Ibúans i borginni. Margir tóku þátt i samkeppninni. Að mati dómnefndar var þó aðeins einn sálmur talinn hæfur til verðlauna og bar hann af öörum. Sá sálmur fékk 1. verðlaun. t greinni fer Fálk Hansen lofsamlegum orðum um sálminn, og telja honum það mjög til gildis, að hann höfði til nútimamannsins i stór- borginni. Ég hefi gert tilraun til þess að þýða þennan danska sálm, og birtist þýð- ingin hér. Ég þakka Kristjáni skáldi frá Djúpalæk ágætar ábendingar við þýðinguna. — Sömu sögu er að segja hér hjá oss, að i umhverfi hinnar gamalgrónu sveitamenningar urðu til flest Ijóð vor og sálmar. Ný og óþekkt viðhorf þétt- býlis og borgarlifs skapa ný viöhorf, sem þörf er á að glima við. Og mikill fjöldi fólks býr við þær aðstæður i dag. Sunnudagsblað Timans 523

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.