Morgunblaðið - 25.04.2004, Page 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. APRÍL 2004 31
Leikrit
um síldar-
ævintýrið á
Sauðárkróki
LEIKFÉLAG Sauðárkróks frum-
sýnir gamanleikinn Síldin kemur og
síldin fer eftir þær systur Iðunni og
Kristínu Steinsdætur í Bifröst á
Sauðárkróki kl. 21 í dag, sunnudag.
Þröstur Guðbjartsson sér um að
leikstýra hópnum. Leikritið gerist í
kauptúninu Fagrafirði þar sem segja
má að síldin ráði ríkjum. Er hún kom-
in? Hvenær fer hún? Hverjir koma
með henni? Hverjir koma með hana?
Hvað situr eftir þegar hún og hennar
fylgifiskar fara?
Margir gamlir og góðir slagarar
setja svip sinn á sýninguna og undir-
strika tímabilið þar sem allar vonir
og þrár eru bundnar þessu silfri hafs-
ins.
Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki.
Næstu sýningar verða á þriðjudag,
miðvikudag og fimmtudag kl. 20.30.
5. sýningin verður laugardaginn 1.
maí kl. 17.
Söngnemar
semja óperu
ÓPERUDEILD Nýja söngskólans
„Hjartansmál“ sýnir óperuna Hvar
er Fígaró? í Tónlistarhúsinu Ými í
kvöld, sunnudagskvöld, mánudags-
og miðvikudagskvöld kl. 20.
Fígaró hefur orðið nokkrum tón-
skáldum uppspretta í óperur og er
þessi uppsetning sambland af þrem-
ur þeirra, þ.e. Rakaranum frá
Sevillla eftir Giovanni Paisiello
(1782), Rakaranum frá Sevilla eftir
Gioacchino Rossini (1816) og síðast
en ekki síst Brúðkaupi Fígarós eftir
W.A. Mozart (1785).
Sagan í þessum þremur óperum er
eftir Beaumarchais og fengu nem-
endur það hlutverk að semja handrit
byggt á þessari sögu.
Stjórnandi og leikstjóri er Guð-
björn Guðbjörnsson. Píanóleikari er
Julian Hewlett.
♦♦♦
♦♦♦
Höfundur Íslands eftir Hallgrím Helga-
son er komin út í kilju.
Fremsti rithöfundur Íslands vaknar í
brekku í afskekktum dal við það að lítill
strákur potar í
hann. Ekki minnk-
ar undrun hans
þegar þungstígur
bóndi tekur hann í
fangið og ber hann
heim í sitt frum-
stæða kot þar
sem margt er
kunnuglegt. Er
hann staddur í eigin höfundarverki?
Höfundur Íslands kom út árið 2001
og hlaut íslensku bókmenntaverðlaun-
in í ársbyrjun 2002.
Útgefandi er Mál og menning. Bókin
er 511 síður og prentuð í Danmörku.
Kápa: Jón Sæmundur Auðarson í sam-
starfi við höfundinn. Verð: 1.799 kr.
Kilja
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
RV
2
44
31
04
/2
00
4
www.urvalutsyn.is
*Innifali›: Flug, flugvallarskattar, fer›ir til og frá flugvelli erlendis
og íslensk fararstjórn.
Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 • Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666
Allt ver› er netver›. Bóka flarf og grei›a sta›festingargjald,
e›a fullgrei›a fer› á netinu. Ef bóka› er símlei›is e›a á skrifstofu,
grei›ist bókunar- og fljónustugjald, sem er 2000 kr. á mann.
Paradís Eyjahafsins
Sættu flig a›eins vi› fla›
sem er betra!
Trygg›u flér bestu kjörin og bóka›u strax á netinu!
á mann m.v. tvo fullor›na og 2 börn, 2ja til 11 ára,
í íbú› me› 1 svefnherbergi á Helios.
58.733 kr.*
Ver›dæmi í 1 viku
á Helios 5. júlí
Reikna›u fer›akostna›inn og bóka›u á www.urvalutsyn.is
á mann m.v. tvo fullor›na í stúdíói.
70.422 kr.*
Ver›dæmi í 1 viku
á Cretan Dream 12. júlí
Strendurnar á Krít eru margver›launa›ar fyrir hreinleika og draumblár
sjórinn er einstaklega tær. Mannlífi› er heillandi og ósviki› í litlum
bygg›akjörnum me› fram strandlengjunni. fiú n‡tur lífsins á veitingastö›um
vi› sjávarsí›una flar sem í bo›i er n‡veiddur fiskur, ferskt grænmeti,
ljúffengt kjöt og heimalaga› vín. fiarf a› segja meira . . .