Morgunblaðið - 17.05.2004, Blaðsíða 14
ERLENT
14 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DONALD Rumsfeld, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, samþykkti
leynilega áætlun, sem leyfði þær yf-
irheyrsluaðferðir, sem notaðar voru í
Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Er
þessu haldið fram í tímaritinu The
New Yorker en talsmenn varnar-
málaráðuneytisins vísa því á bug
sem „samsæriskenndu slúðri“.
Rannsóknarblaðamaðurinn
Seymour Hersh segir í greininni,
sem sagt hefur verið frá á fréttavef
tímaritsins en kemur á götuna eftir
viku, að Rumsfeld hafi á síðasta ári
samþykkt „háleynilega áætlun“, sem
„hvatti til, að fangar væru beittir lík-
amlegum þvingunum og kynferðis-
legri niðurlægingu til að fá þá til að
segja frá starfsemi uppreisnar-
manna í Írak“. Hefur Hersh þetta
eftir ónefndum leyniþjónustumönn-
um, núverandi og fyrrverandi.
Lawrence Di Rita, talsmaður
varnarmálaráðuneytisins, segir í yf-
irlýsingu, að „enginn ábyrgur emb-
ættismaður í ráðuneytinu hefur lagt
blessun sína yfir þær aðferðir, sem
sjá má á nýbirtum myndum og
myndböndum“. Segir hann ennfrem-
ur, að fullyrðingarnar séu „firra og
ónafngreint, samsæriskennt slúður“.
„Gerið það, sem þið viljið“
Í greininni í The New Yorker seg-
ir, að fyrrnefnd áætlun sé kölluð
SAP (Special-Access Program) og að
reglurnar séu í sem stystu máli þess-
ar: „Takið alla, sem þið þurfið að
taka. Gerið það, sem þið viljið.“
Í greininni segir einnig, að ákvörð-
un Rumsfelds um að beita þessum
aðferðum í Írak, eftir að þeim hefði
verið beitt í Afganistan, hefði mætt
andstöðu hjá fulltrúum bandarískra
leyniþjónustustofnana.
„Þeir sögðu: „Kemur ekki til mála.
Við féllumst á þetta við yfirheyrslur í
Afganistan yfir mikilvægum hryðju-
verkamönnum en nú viljið þið, að
þessum aðferðum verði beitt við
leigubílstjóra og aðra óbreytta borg-
ara, við ættingja þeirra og fólk, sem
handtekið er úti á götu,““ segir
Hersh og hefur eftir fyrrverandi
leyniþjónustumanni.
Segir þessi heimildamaður að því
er fram kemur hjá Hersh, að CIA,
bandaríska leyniþjónustan, hafi mót-
mælt starfsaðferðunum í Abu
Ghraib og hætt afskiptum af fangels-
inu.
Átti ekki að spyrjast
Hersh segir, að Rumsfeld hafi lát-
ið Steve Cambone, yfirmann leyni-
þjónustu varnarmálaráðuneytisins,
um að útfæra áætlunina en hafi síðan
samþykkt hana ásamt Richard
Myers hershöfðingja og yfirmanni
bandaríska herráðsins. Við yfir-
heyrslur fyrir þingnefnd neitaði
Rumsfeld, að nokkur yfirmaður
hefði samþykkt misþyrmingar.
„Hvað þá varðaði var þetta leyni-
leg áætlun, sem átti ekki að spyrjast
út fyrir varnarmálaráðuneytið,“ hef-
ur Hersh eftir heimildamanni sínum
en Hersh, sem er margverðlaunaður
blaðamaður, kom fyrstur með frétt-
ina um morðin í My Lai í Víetnam
1968 þegar bandarískir hermenn
tóku af lífi óbreytta borgara.
Einnig í Camp Cropper
Dagblaðið The New York Times
sagði frá því á laugardag, að mis-
þyrmingar á föngum hefðu einnig átt
sér stað í Camp Cropper við Bagdad
og raunar fyrr en í Abu Ghraib-fang-
elsinu. Íraki, sem þar var fangi,
skýrði Rauða krossinum frá því, að
hann hefði verið handjárnaður, hetta
dregin yfir höfuð honum og hann
barinn, hótað dauða, migið á hann og
sparkað í höfuðið, bak og klof. Þá
hefði honum verið haldið vakandi í
fjóra sólarhringa og hafnaboltakylfa
bundin upp í munninn.
Grein eftir Seymour Hersh í bandaríska tímaritinu The New Yorker
Rumsfeld sagður hafa sam-
þykkt yfirheyrsluaðferðirnar
Talsmaður Pentagons vísar því á bug
sem „samsæriskenndu slúðri“
Washington. AP, AFP.
AP
Donald Rumsfeld og Richard Myers, yfirmaður bandaríska herráðsins, á
fundi með varnarmálanefnd öldungadeildarinnar í síðustu viku. Hersh seg-
ir, að þeir hafi báðir samþykkt háleynilega áætlun um yfirheyrsluaðferðir.
JACK Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að Tony
Blair forsætisráðherra ætlaði ekki
að segja af sér þrátt fyrir vaxandi
gagnrýni vegna Íraksstríðsins.
Kannanir sýna, að vinsældir Blairs
hafa aldrei verið minni.
„Forsætisráðherrann er við
stjórnvölinn og mun stýra áfram ár-
angursríkustu ríkisstjórn, sem setið
hefur í Bretlandi í 60 ár,“ sagði
Straw í viðtali við BBC, breska rík-
isútvarpið. Sagði hann, að það væri
misskilningur ef fólk héldi, að Blair
myndi hlaupast undan merkjum
vegna orðróms og vangaveltna í fjöl-
miðlum. Undir þetta hafa tekið sum-
ir aðrir frammámenn í Verka-
mannaflokknum og segja þeir, að
Blair ætli sér að leiða Íraksmálin til
lykta.
Ýmsir fréttaskýrendur spá því, að
Blair muni segja af sér fyrir kosn-
ingar á næsta ári og skoðanakönn-
un, sem Sunday Times birti í gær,
sýnir, að 46% kjósenda vilja, að
hann segi af sér fyrir kosningar og
önnur 22%, að hann geri það strax
eftir kosningarnar. Aðeins 20%
vildu, að hann yrði áfram forsætis-
ráðherra bæri Verkamannaflokkur-
inn sigur úr býtum. 93% sögðu, að
Blair væri nú að gjalda Íraksstríðs-
ins.
The Sunday Telegraph sagði í
gær, að margir þingmenn Verka-
mannaflokksins ætluðu að krefjast
samþykkis þingsins við að senda
fleiri hermenn til Íraks en talið er,
að það verði fellt. Sagði blaðið, að
það gæti aftur flýtt fyrir falli Blairs.
AP
Tony Blair á tröppum Downing-
strætis 10. Breskir fjölmiðlar segja,
að innan Verkamannaflokksins séu
menn farnir að skipa sér í fylkingar
með tilliti til nýs leiðtoga.
Segja Blair
ekki vera
á förum
Hefur aldrei verið
óvinsælli meðal
kjósenda
London. AFP.
TUTTUGU og átta manns slösuðust
þegar farþegalest fór út af tein-
unum fyrir norðan Genúa á Ítalíu í
gær. Fyrstu fréttir hermdu, að alls
hefðu þrjár farþegalestir farið út af
sporinu en hið rétta er, að örfáum
mínútum eftir slysið rákust á hana
tvær lestar, sem voru að fara í
gagnstæða átt. Björgunar- og
slökkviliðsmenn voru fljótir á vett-
vang ásamt þyrlum og Rauði kross-
inn flutti um 100 farþega, sem ekk-
ert amaði að, á áfangastað með
bílum. Ekki er ljóst hvað slysinu olli
en haft var eftir lestarstjóranum,
að eitthvað hefði verið athugavert
við teinana. Þegar lestin fór út af
þeim rakst hún á hús, sem enginn
var í á þeim tíma, og skemmdi það
töluvert.AP
Lestar-
slys á
Ítalíu
ÁFENGISNEYSLA Finna hefur
stóraukist vegna þeirrar ákvörðunar
finnsku stjórnarinnar að lækka álög-
ur á áfengi um tæpan þriðjung, að
sögn finnska dagblaðsins Huvud-
stadsbladet. Hefur verið lagt að
stjórninni að hækka álögurnar aftur
en hún segir það sé ekki hægt vegna
reglna Evrópusambandsins.
Verðlækkunin hefur orðið til þess
að ofbeldisglæpum hefur fjölgað og
fleiri hafa verið staðnir að ölvun við
akstur, að sögn Huvudstadsbladet.
Fregnir herma einnig að fleiri en áð-
ur hafi verið lagðir inn á sjúkrahús
vegna ofdrykkju og áfengisneysla
unglinga hafi stóraukist.
„Aðeins um slæma
kosti að velja“
Liisa Hyssälä, umönnunarráð-
herra Finnlands, segir að áfengis-
neyslan hafi aukist meira en stjórnin
hafi búist við. Hún segir þó, að ekki
liggi fyrir tölur um áfengissöluna
eftir að álögur á brennda drykki
voru lækkaðar um 30% í mars vegna
inngöngu Eistlands í ESB 1. maí.
Markmið stjórninnar var að koma í
veg fyrir að Finnar flykktust til Eist-
lands, þar sem áfengisverð er miklu
lægra.
Liisa Hyssälä sagði að þótt tekjur
ríkisins minnkuðu um 15 milljónir
evra á mánuði (1,3 milljarða kr.)
vegna verðlækkunarinnar teldi
stjórnin að ákvörðunin væri rétt.
„Við getum ekki afturkallað lækk-
unina, það er ekki hægt samkvæmt
reglum Evrópusambandsins. Það er
aðeins um slæma kosti að velja.“
Finnar flykkjast
til Eistlands
Þrátt fyrir verðlækkunina hafa
Finnar flykkst til Eistlands í því
skyni að kaupa áfengi eftir inngöngu
landsins í Evrópusambandið.
„Jussi, sjáðu! Koskenkorva-flask-
an kostar bara 10 evrur, þetta er
brjálæði,“ hrópaði ungur Finni upp
yfir sig þegar hann sá verðið á eft-
irlætis finnska vodkanu sínu í áfeng-
isverslun í Tallinn, höfuðborg Eist-
lands.
„Og þetta er lítraflaska,“ sagði
verslunareigandinn, finnskur at-
hafnamaður. Lítri af Koskenkorva
kostar 10,80 evrur í Eistlandi (950
kr.) en 20,20 evrur í Finnlandi (1.800
kr.).
Búist er við að innganga Eistlands
í Evrópusambandið leiði til upp-
gangs í svokallaðri „áfengisferða-
þjónustu“ í landinu. Ferjuflotinn,
sem siglir milli Helsinki og Tallinn,
hefur því verið stækkaður og alls
geta ferjurnar flutt um 20.000 manns
í hvora átt á dag.
Þrítugur Finni var á meðal þeirra
fyrstu sem fóru til Tallinn eftir inn-
göngu Eistlands í ESB og hann
keypti þar áfengi fyrir brúðkaup sitt
síðar í mánuðinum. „Ég keypti 25
kassa af bjór, 100 flöskur af léttvíni
og 12 lítra af brenndum drykkjum.
Ég sparaði um helminginn af verð-
inu í Alko [áfengisverslun finnska
ríkisins], að minnsta kosti 1.500 evr-
ur [132.000 krónur].“
„ESB er frábært,“ hrópaði Finn-
inn þegar hann var spurður álits á
inngöngu Eistlands í sambandið.
Liisa Hyssälä er þó ekki hrifin.
„Það er tilgangslaust að vera
áfram í Evrópusambandinu ef það
verður til þess að fólk svolgrar eins
og kameldýr,“ sagði ráðherrann.
Áfengisneysla Finna stóreykst vegna verðlækkunar
Stjórnin hvött til að
hækka áfengisskattana
’Það er tilgangslaustað vera áfram í ESB ef
það verður til þess að
fólk svolgrar eins og
kameldýr.‘