Morgunblaðið - 17.05.2004, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 17.05.2004, Qupperneq 15
DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 15 UFFE Balslev blómaskreytinga- maður ætti að vera mörgum kunn- ur, þar sem hann hefur búið hér á landi í rúm 20 ár og unnið í mörg- um blómaverslunum og haldið fjölda námskeiða. Á sumarsýning- unni í Laugardal vakti Uffe verð- skuldaða athygli fyrir rúm, lampa, stól, og fleira sem hann hafði smíðað og fléttað úr íslenskum víði. Uffe segist hafa lært körfu- gerð sem nýtist honum við gerð þessara hluta en hann hefur líka lært að rafsjóða, sem er nauðsyn- legt vegna járnvirkisins sem er í húsgögnunum. „Mesta vinnan við að búa til rúmið, fór í að rafsjóða, en það tekur sjö til tíu vinnudaga að búa til svona rúm,“ segir Uffe sem ekki hefur prófað sjálfur að sofa í rúminu. „En dóttir mín og tengdasonur koma bráðum í heim- sókn frá Danmörku og þá ætla ég að láta þau prufa fletið.“ Uffe segir best að flétta og vinna með víði þegar greinarnar eru nýklipptar af trénu, því þá eru þær enn mjúkar. „En það er líka alveg hægt að klippa þær á fyrstu mánuðum ársins, í janúar, febrúar og mars og geyma þær svo á köld- um stað og þurrka þær. En síðan þurfa þær að liggja lengi í vatni áður en unnið er úr þeim,“ segir Uffe sem hefur fléttað úr víðinum í nokkur ár en nú ætlar hann að fara að gera þetta „af alvöru“ og búa til fleiri húsgögn. Uffe er alltaf með sýningu á vinnustofu sinni heima í Hvassa- hrauni 2 á Vatnsleysuströnd, á öllu því sem hann býr til. „Um að gera að banka bara upp á, ef fólk á leið um,“ segir Uffe hinn danski að lokum. Húsgögn og stóll fléttað úr íslenskum víði  HANDVERK Uffe Balslev: Stoltur við rúm- ið góða og ljósið stóra. Rúm- teppið er handverk kærustu hans, Sæunnar Ragn- arsdóttur. Morgunblaðið/Árni Torfason Stóll: Úr fléttuðum víði. Þeir sem hafa áhuga á að komast á námskeið hjá Uffe og læra að flétta úr íslenskum víði geta hringt í síma 555– 3932 eða 897–1876. Spurning: Hvað er það sem getur valdið þessum einkennum hjá mér, stöðugum náladofa í fótum og höndum og stundum verkjum? Ástandið hefur varað í nokkur ár. Svar: Sá sem er með stöðugan dofa eða náladofa í höndum og fót- um á að fara til læknis og fá sjúk- dómsgreiningu og meðferð. Orsak- ir svona náladofa geta verið fjölmargar, bæði tiltölulega mein- lausar en einnig alvarlegs eðlis. Þær geta verið bundnar við út- taugakerfið eða miðtaugakerfið. Dofi stafar af truflun á starfsemi taugakerfisins, áverka á taug eða sjúkdómi sem veldur truflun á starfsemi tauga. Til dæmis getur dofi í fæti átt sér margar og marg- víslegar orsakir sem sumar eru upprunnar í taug í fætinum en aðrar í miðtaugakerfinu. Algeng ástæða fyrir afmörkuðum dofa í öðrum fæti eða hendi er áverki á taug sem getur verið hvar sem er frá hrygg, þar sem taugin gengur út úr mænunni, og niður að svæð- inu þar sem dofinn er. Slíkur áverki getur m.a. verið þrýstingur (t.d. brjósklos í hrygg), högg, kuldi eða notkun verkfæra sem titra mikið. Ein tegund af þrýst- ingsáverka á taug sem liggur nið- ur í fót kemur stundum hjá fólki sem situr mikið með krosslagða fætur en þá verður þrýstingur á taug, utanfótar, rétt neðan við hné. Þetta getur valdið dofa og máttleysi í fæti. Dofi í hendi getur einnig stafað af þrýstingi á taugar við olnboga eða úlnlið. Einnig get- ur verið um að ræða sykursýki, bandvefssjúkdóm, vanstarfsemi skjaldkirtils, alnæmi, sýkingu í eða við taugina, vítamínskort (einkum B-vítamínskort), áhrif eiturefna eða lyfja og illkynja sjúkdóm. Ýmsir sjaldgæfir sjúkdómar í mið- taugakerfi, og þá einkum í mænu, geta lýst sér í byrjun með dofa sem kemur aftur og aftur. Hér er m.a. um að ræða mænusigg (MS) og hliðarstrengjahersli (ALS) sem eru hættulegir og oftast ólæknandi sjúkdómar. Dofi sem kemur aftur og aftur og hefur staðið lengi eins og bréfritari lýsir gefur vissulega tilefni til læknisrannsóknar til að fá úr því skorið um hvað er að ræða. Flestar af þeim ástæðum sem koma til greina eru læknan- legar, a.m.k. að einhverju marki, og það getur einnig létt af tals- verðum áhyggjum að vita hvað er að. Hvað orsakar náladofa?  Lesendur Morgunblaðsins geta spurt lækn- inn um það sem þeim liggur á hjarta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 5691100 og bréfum eða símbréfum merkt: Heilsa. Fax 5691222. Einnig geta lesendur sent fyrirspurnir sínar með tölvupósti á netfang Magnúsar Jóhanns- sonar: elmag@hotmail.com. Borgar sig að fá sjúkdóms- greiningu og meðferð.  MAGNÚS JÓHANNSSON LÆKNIR SVARAR SPURNINGUM LESENDA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.