Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 17
ÞRETTÁN manna karlakór
Sánkti Basil-dómkirkjunnar í
Mosku hélt tónleika í Hallgríms-
kirkju klukkan ellefu á laugardags-
kvöldið, en það voru seinni tónleikar
kórsins þann dag. Á efnisskránni
voru aðallega rússnesk lög, bæði
trúar- og veraldleg og í þeim flest-
um var einhver kórmeðlimanna í
einsöngshlutverki. Greinilegt var að
þeir eru allir hámenntaðir söngvar-
ar; þarna gat að heyra margar virki-
lega fallega raddir og sumir bass-
arnir voru svo djúpir að það var eins
og tíbetskir lamar væru að kyrja.
Verst var að engar upplýsingar
var að finna í tónleikaskránni um
hvaða einsöngvari var að syngja
hverju sinni, auk þess sem lagaröðin
var vitlaus og ekkert stóð um lögin
annað en hvað þau hétu. Nánari
upplýsingar um lögin hefðu verið
nauðsynlegar, því, fyrir utan fáeinar
undantekningar, er þetta ekki tón-
list sem venjulegir íslenskir tón-
leikagestir þekkja. Það eina sem
hægt var að lesa var stutt ritgerð
eftir Hönnu G. Sigurðardóttur, sem
var ágæt í sjálfu sér en mjög al-
menns eðlis og engan veginn tæm-
andi.
Sá einsöngvari sem var nafn-
greindur var Sergei Vakulenko,
ungur drengur með tæra og hljóm-
mikla sópranrödd. Vakulenko söng
fyrst hina forkunnarfögru Ave Mar-
íu eftir Tosti og gerði það prýðilega,
hann söng hreint og kunni lagið auð-
heyrilega vel. Auðvitað þarf meira
en góða rödd til að gera laginu við-
unandi skil en ljóst er að Vakulenko
er efnilegur tónlistarmaður.
Hvað kórinn sjálfan varðar þá tók
hann sig vel út í kirkjunni, þetta eru
allt glæsilegir, virðulegir menn sem
voru í síðum kuflum. Náungi sem ég
ræddi við eftir tónleikana sór að
hann hefði séð einn þeirra leika í
James Bond-mynd og er ég viss um
að það er rétt hjá honum!
Söngur kórsins var tilfinningarík-
ari en maður á að venjast hjá ís-
lenskum kórum. Ef hægt er að
gagnrýna kórinn fyrir eitthvað þá er
það helst að sum lögin voru dálítið
óhefluð, auk þess sem innkomur
voru einstöku sinnum örlítið óná-
kvæmar. Langflest á efnisskránni
var þó hrífandi og mörg trúarlegu
verkin voru dásamleg. Þar á meðal
voru nokkur sem minntu skemmti-
lega á eitt fegursta kórverk allra
tíma, Vespers (Aftansöngur) eftir
Rachmaninoff. Það er samsafn
sálma fyrir blandaðan kór án undir-
leiks, alveg laust við rómantíkina
sem einkennir tónskáldið, þvert á
móti fyllilega í anda austurkirkjunn-
ar. Eftir því sem ég best veit hefur
verkið aldrei verið flutt á Íslandi.
Í stuttu máli voru þetta athygl-
isverðir tónleikar, áheyrendur voru
augljóslega bergnumdir og er kórn-
um hér með þakkað fyrir heillandi
stund.
Karlar í
síðum kuflum
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Karlakór Sánkti Basil-dómkirkjunnar,
stjórnandi Sergei Krivobokov. Lög eftir
Shvedov, Golovanov, Chesnokov, Tosti,
Bortnianski, auk rússneskra þjóðlaga og
trúarlegrar tónlistar. Laugardagur 15.
maí.
KÓRTÓNLEIKAR
Morgunblaðið/Árni Torfason
St. Basil-kórinn ásamt einsöngvaranum unga, Sergei Vakulenko.Jónas Sen
Hrafnista, Hafnarfirði, Menn-
ingarsalurinn kl. 14 Sigurbjörn
Kristinsson myndlistarmaður opnar
myndlistarsýningu. Sigurbjörn
lærði húsamálun en 1947 fór hann í
Myndlista- og handíðaskólann og
síðan lá leiðin til Kaupmannahafnar,
þar lærði hann myndlist í tvo vetur
og síðan einn vetur í Frakklandi.
Sigurbjörn hefur haldið fjölda sýn-
inga hérlendis og erlendis, meðal
annars í Svíþjóð og Rússlandi.
Sýningin stendur til 15. júní.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Nýjar útgáfur af bókum Gunillu Wolde
um Tuma og Emmu eru komnar út.
Þuríður Baxter þýddi bækurnar.
Bækurnar um Tuma og Emmu
komu fyrst út á íslensku fyrir um
tveimur áratugum og nutu mikilla vin-
sælda hjá yngstu kynslóðinni. Fjórar
bækur eru nú komnar út og fleiri
væntanlegar: Tumi þvær sér, Tumi
bregður á leik, Emmu finnst gaman í
leikskólanum og Emma fær
mislinga.
Útgefandi er JPV-útgáfa. Bækurnar
eru prentaðar í Belgíu. Verð hverrar
bókar er 790 kr.
Börn
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111