Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 20
UMRÆÐAN 20 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Leitið og þér munuð finna Smáauglýsingar fiarftu a› selja? Viltu kaupa? Á smáaugl‡singavef mbl.is eru flúsundir augl‡singa me› öllu milli himins og jar›ar. Smáaugl‡singar eru fríar á smáaugl‡singavef mbl.is til 1. júní n.k. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 24 62 1 0 5/ 20 04 Á ALÞINGI liggur fyrir frum- varp til laga um breytingar á lög- um um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins þar sem verið er að afnema grundvallaratriði um starfsöryggi starfsmanna. Rökin fyrir frumvarpinu eru þau að færa eigi starfsumhverfi hjá hinu op- inbera nær því sem gildir á al- menna vinnumarkaðinum. Meginatriði frumvarpsins Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að felld verði brott sú skylda forstöðumanns að áminna starfs- mann formlega fyrir brot á starfs- skyldum eða þegar hann hefur ekki staðið undir þeim kröfum sem talin eru felast í starfi hans. Þá verður slík áminning ekki lengur skilyrði þess að hægt sé að segja starfs- manni upp störfum. Í öðru lagi er á sama hátt lagt til að fellt verði brott það skilyrði lausnar embætt- ismanns um stundarsakir að hon- um hafi áður verið veitt formleg áminning. Í þriðja lagi er gerð til- laga um að gefa skuli starfsmanni kost á að tjá sig um ástæður upp- sagnar áður en hún tekur gildi ef þær eiga rætur að rekja til þess að hann hafi brotið starfsskyldur sínar, nema slíkt sé augljóslega óþarft. Í fjórða lagi er tillaga um að forstöðumaður geti leyst starfsmann undan vinnuskyldu á meðan verið er að skoða hvort hann hafi brotið starfsskyldur sínar. Heildarsamtök op- inberra starfsmanna, BSRB, BHM og KÍ, ásamt fleiri aðilum hafa mótmælt þessu frumvarpi harðlega í umsögnum sínum og á fundum fyrir Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Þá hefur ítrekað verið óskað eftir því að samráðsleiðin verði farin svo að breytingar á starfsmannalögunum verði unnar í sátt en það hefur ekki gengið eftir. Grafið undan starfsöryggi ríkisstarfsmanna Frumvarpið inniheldur grundvall- arbreytingu á þeim reglum sem gilt hafa um langan aldur um starfsöryggi starfsmanna ríkisins. Með þessu eru ríkisstarfsmenn hvað atvinnuöryggi sitt snertir settir undir geðþóttavald stjórn- enda þeirra stofnana sem þeir starfa hjá sem aftur eru háðir ákvörðunum ráðherra um sitt eigið atvinnu- öryggi. Geta ráðherrar því haft bein áhrif á at- vinnuöryggi rík- isstarfsmanna. Gæti þessi breyting haft af- drifaríkar afleiðingar fyrir þá starfsmenn sem sinna viðkvæmum málum eins og t.d. lög- reglumenn sem eru að rannsaka viðkvæm mál. Ákvæði starfsmannalaganna um áminningu hefur verið rík- isstarfsmönnum til verndar gegn tilviljanakenndum ákvörðunum ráðamanna á hverjum tíma sem kunna að vera teknar í hita leiks- ins. BSRB ætlar forstöðumönnum ekki að þeir séu að reka starfs- menn sína án málefnalegra ástæðna. Því miður eru hins vegar dæmi sem sýna annað. Nýjasta dæmið er þegar ríkislögreglustjóri var dæmdur bótaskyldur vegna ólögmætrar uppsagnar á starfs- manni. Frumvarpið skapar réttaróvissu Samkvæmt frumvarpinu mun málsmeðferð við uppsögn starfs- manns ráðast af því hvort starfs- maður hafi brotið starfsskyldur sínar eða honum er sagt upp störf- um af öðrum ástæðum. Ekki á að veita andmælarétt ef starfsmanni er sagt upp störfum vegna þess að hann hefur ekki þá kunnáttu eða reynslu sem forstöðumaður ákveður að starfsmaðurinn þurfi að hafa. Í frumvarpinu er lagt til að gefa skuli starfsmanni kost á að tjá sig um ástæður uppsagnar áður en hún tekur gildi ef þær eiga rætur að rekja til þess að hann hafi brotið starfsskyldur sínar, nema slíkt sé augljóslega óþarft. Hefur þessi andmælaréttur litla þýðingu fyrir starfsmanninn að mati BSRB þar sem þá hefur þegar verið tekin ákvörðun um að segja honum upp og hefur starfsmaður því engin tök á að hafa áhrif á uppsögnina. Með þessu er verið að stíga enn eitt óheillasporið með því að setja sér- reglu um að andmælaréttur eigi ekki að gilda í öllum tilvikum við uppsögn og er það andstætt grunn- sjónarmiðum í stjórnsýslurétti. Verði frumvarpið að lögum er óljóst hvernig beita eigi reglum stjórnsýslulaga um andmælarétt samhliða þessari reglu í frumvarp- inu og um leið skapast því rétt- aróvissa á þessu sviði. Tilgangur frumvarpsins BSRB telur vafasamt að einblína á réttindi og skyldur starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Í um- ræðunni um kjör og réttarstöðu ríkisstarfsmanna verður að hafa í huga að í mörgum tilvikum er eðl- ismunur á því hvort um er að ræða fyrirtæki á almennum markaði eða um opinbera stofnun. Hjá einkafyr- irtækjum er valdið hjá eigendum, þ.e. það eru sérhagsmunir sem ráða en hjá opinberum aðilum eru það hins vegar almannahagsmunir sem ráða, ekki einstaklings- bundnar ákvarðanir. Þeir sem stjórna opinberum fyrirtækjum eða stofnunum gera það ekki á grundvelli þess að þeir eigi starf- semina, þ.e. þeir stjórna rekstr- inum í umboði okkar allra. Þeir sem fara með opinbert vald eiga að beita því af hófsemd og í samræmi við reglur sem samfélagið setur um meðferð slíks valds. Á ríkisstarfsmönnum hvíla mun ríkari skyldur og kvaðir samkvæmt lögum sem ekki verða lagðar á starfsmenn almenna vinnumark- aðarins. Má þar nefna reglur varð- andi verkfallsrétt, þagnarskyldu, yfirvinnuskyldu, harðari refsingar ef um brot í starfi er að ræða, skyldu til að hlíta breytingum á störfum. Atvinnufrelsi er heft á þann hátt að ríkisstarfsmaður má ekki starfa fyrir aðra samhliða sínu starfi, stofna til atvinnurekstrar eða ganga í stjórn atvinnufyr- irtækja án samþykkis. Vinnuveit- andi hefur heimild til að framlengja uppsagnarfrest í allt að sex mánuði og upplýsingar um störf þeirra eru almennt ekki talin til einkamálefna. Þá má ráða af réttarþróun í stjórn- sýslurétti og skaðabótarétti að vax- andi kröfur eru gerðar til rík- isstarfsmanna við meðferð opinbers valds og framkvæmd lög- bundinna verkefna í þágu almenn- ings. Þetta er það umhverfi sem ríkisstarfsmenn búa við. Er vilji til þess að afnema þessar skyldur svo það sé til samræmis því sem gildir á almenna vinnumarkaðinum? Eðli- legt hlýtur að teljast að samhliða auknum skyldum starfsmanna séu einnig gerðar ríkari kröfur til rík- isins sem vinnuveitanda. Afnám ráðningarréttinda starfsmanna ríkisins Erna Guðmundsdóttir skrifar um starfsöryggi ríkisstarfs- manna Erna Guðmundsdóttir ’BSRB telur vafasamtað einblína á réttindi og skyldur starfsmanna á almennum vinnu- markaði.‘ Höfundur er lögfræðingur BSRB.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.