Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 34

Morgunblaðið - 17.05.2004, Síða 34
34 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Smáfólk Svínið mitt © DARGAUD ODDI. VEGNA ÞESS AÐ ÞÚ ERT SVO TRÚGJARN... HEF ÉG ÁKVEÐIÐ AÐ FÆRA ÞÉR ÞENNAN ÓSÝNILEGA BIKAR! GRETTIR!! YFIR- HUNDUR?! ÞESSI HEIMSKI HUNDUR GETUR EKKI VERIÐ YFIRHUNDUR! HANN Á EFTIR AÐ STEYPA LANDINU Í GLÖTUN! HANN Á EFTIR AÐ GERA ÚT AF VIÐ OKKUR ÖLL! HANN ER VANHÆFUR! HANN ER... HVERNIG Á ÉG AÐ SKRIFA RÆÐUNA MÍNA ÞEGAR ALLIR ERU AÐ ÖSKRA? VÍGSLUATHÖFNINA... SNOOPY ER AÐ SVERJA SIG INN Í EMBÆTTI YFIRHUNDS ALLAR STÖÐVARNAR ERU AÐ SÝNA ÞETTA... ÞETTA ER MJÖG FALLEG ATHÖFN... Á HVAÐ ERTU AÐ HORFA? ÉG HEF ALDREI VERIÐ STOLTARI ÞÚ ÁTT HANN KALLI! HANN VERÐUR BRÁÐUM REKINN! HVERNIG VAR MYNDIN? ÓGEÐSLEG! MÉR LÍÐUR BARA ILLA NÚ SÉRSTAKLEGA ENDIRINN ÞEGAR MAÐUR KEMST AÐ ÞVÍ AÐ MORÐINGINN ER FAÐIR SÖGUHETJUNNAR OG HEFUR DREPIÐ KONUNA SÍNA OG HUNDINN TIL ÞESS AÐ KOMA PENINGUNUM UNDAN EN ÞEGAR HANN REYNDI AÐ KASTA SYNI SÍNUM ÞÁ FER HANN SJÁLFUR Í GEGNUM GLUGGANN OG KREMST, RÉTT ÁÐUR EN STRÆTÓ KEYRIR YFIR HANN SEM SYSTIR HANS STÝRIR. ÞAÐ VAR ÓGEÐSLEGT HÆ RÚNAR! VAR ÉG NOKKUÐ LENGI? FRÁBÆR MYND! SÉRSTAKLEGA ÞEGAR VONDI KALLI KREMST Á GANGSTÉTTINNI. SPLASS!! ? BLÓÐIÐ FÓR ÚT UM ALLT. ÞAÐ VAR EKKERT SMÁ FLOTT! GROIN! !? FANNST ÞÉR ENDIRINN GÓÐUR? JÁ! HANN VAR SVO FALLEGUR! SÁ SÆTI VERÐUR ÁSTFANGINN AF ELSKUNNI SINNI OG ÞAU FARA Í BRÚÐKAUPSFERÐ TIL FENEYJA ?! HÚN TILKYNNIR HONUM AÐ HANN VERÐI FAÐIR EFTIR NOKKRA MÁNUÐI EN ÉG HÉLT AÐ ÞIÐ HEFÐUÐ FARIÐ Á SJÁ SÖMU MYND ENGAR ÁHYGGJUR AMMA ER SVOLÍTIÐ KLIKKUÐ. HÚN SOFNAÐI EFTIR FYRSTU 10 MÍNÚTURNAR EINS OF ALLTAF TALLALA BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FÁTT hefur vakið jafnmikla athygli á undanförnum vikum og stórfellt skógarhögg sem ónefndir ráðamenn hafa tekið ákvörðun um. Af einhverj- um óskiljanlegum ástæðum hefur viss hópur manna látið verkin tala. Þeir hafa lýst margsinnis yfir þeirri skoðun, að innan þjóðgarðsins eigi ekki að vaxa barrtré! Þeir vilja inn- lendan gróður og ekkert annað takk! Einhverra hluta vegna hefur þeim yfirsést stórar byggingar höfðingja suður af Valhöll. Þær eru ekki þyrnir í augum þessara sömu manna! Kannski ætti að gera sömu kröfur til höfðingja þeirra sem byggt hafa sér þessar stóru og íburðarmiklu sumar- hallir þar austur frá af sömu rökum að þeir notist einungis við innlend byggingarefni svo sem torf og grjót. Banna ætti með öllu notkun innflutts timburs, þakjárns sem og hvers kon- ar annað byggingarefni sem ekki er numið og unnið úr íslenskri fóstur- mold! Og svo mætti banna með öllu alla notkun á innfluttum farartækj- um innan þjóðgarðsins. Menn geta annaðhvort gengið austur á Þingvöll eða leigt sér hest ef þeir eiga hann ekki fyrir. Og hunda af erlendu bergi ætti einnig að bannfæra af sömu rök- um. Og svo má ekki gleyma fatnaðin- um; allir gangi í innlendum vaðmáls- treyjum, gamaldags lokubuxum og á sauðskinnskóm innan þjóðgarðsins. Kannski mætti viðgangast að láta sjá sig á almannafæri í lopapeysum og bandsokkum sem gamlar íslenskar konur hafa prjónað af alkunnri fornri list. Allur innfluttur fatnaður verði því harðlega bannaður og upptækur gerður af sérsveitum Björns sem fer með yfirstjórn lögreglunnar og er auk þess formaður Þingvallanefndar. Berjatínur verði algjörlega bannaðar nema þær hafi verið búnar til úr Ás- mundarjárni fornu eða mýrarrauða. Annar varningur á borð við ýmsar neysluvörur og pjátur ýmiskonar svo sem ljósmyndavélar, sjónauka, kvik- myndatökuvélar, vínflöskur og bjór- dósir á ekki að líðast. Allur matur verði sniðinn að fornum háttum, menn megi leggja sér til munns hangiket, harðfisk og smjer en hvers konar nýmóðins eiturbras á borð við pizzur, hamborgara og steikur verði í bann sungnar. Öll drykkja á erlendu sulli á borð við kókakóla verði harð- lega bönnuð. Menn verði að láta sér nægja mysu og mjólkurdrykki og hafa með sér ílát og aðrar kirnur sem búið er til úr innlendu smíðaefni. Þá mætti ekki notast við nútíma salerni heldur gangi menn örna sinna úti á víðavangi og skeini sig með mosa eða grasi og leggi stein yfir kukk sinn þar sem því verði við komið. Mættu hinir sjálfskipuðu barrskógaféndur skoða öll þessi sjónarmið vel og vandlega bæði að nóttu sem degi ef þeir hyggj- ast festa sig í umdeildum þjóðernis- rembingi og vera sjálfum sér sam- kvæmir í einu og öllu. Þjóðgarðurinn er sagður vera helgistaður allrar íslensku þjóðarinn- ar – enginn þar undanskilinn. Ef nokkur félagshreyfing á Íslandi get- ur fremur gert tilkall til Þingvalla sem einn af sínum helgustu stöðum er það skógræktarfólk í tvennum skilningi: Undir lok 19. aldar hófst þar trjárækt erlendra trjátegunda, fyrsta tilraun sem lukkaðist. Rúmum þrem áratugum síðar eða á Alþing- ishátíðinni 1930 var Skógræktarfélag Íslands stofnað í Almannagjá skammt norðan við Öxarárfoss á móts við Furulundinn. Stórfellt skóg- arhögg á Þingvöllum er með öllu óskiljanlegt á öðrum stöðum en sem sátt er um að fjarlægja barrtrén eins og þar sem þeim hefur verið plantað of nærri fornum rústum. Fyrir nokkrum áratugum var hald- inn fundur um umhverfismál. Í ræðu- stól kom hver á fætur öðrum og var hvatt óspart að fara í stórum hópum austur á Þingvelli með sagir og fella barrtrén sem þar hafa vaxið. Bað þá þáverandi þjóðgarðsvörður, sr. Ei- ríkur J. Eiríksson, um orðið. Hann kvaðst skilja vel ungu róttæku menn- ina sem vildu láta hendur standa fram úr ermum en augljóst væri að þeir hefðu aldrei komið austur á Þingvelli um vetur þegar snjór liggur yfir. Þá væri náttúra landsins bæði lífvana og þögnin æpandi. Þá minnti ekkert sig betur á lífið og tilveruna en einmitt þessi fögru barrtré sem ungu róttæku mennirnir vildu feig. Megi þau barrtré sem vandlátir fortíðartrúarmenn hafa enn ekki fellt, veita öllum þeim sem koma austur á Þingvelli bæði yndi og skjól sem hingað til! GUÐJÓN JENSSON, Arnartanga 43, Mosfellsbæ. Hver ber ábyrgð á skógarhögginu? Frá Guðjóni Jenssyni: EKKI ætlaði ég að trúa bónda undir Eyjafjöllum, sem sagði hér í Morg- unblaðinu, að til stæði að leggja drossíuveg inn á Þórsmörk. Ferða- félagið Útivist bar af sér blakið. Og svo sá ég það í blaðinu núna, að Vegagerðin áformar að leggja blúss- veg upp að lóni og setja þar upp alls kyns auglýsingadrasl. Er þetta nauðsynlegt? Og hver hefur beðið um þetta? Það er svo bjánalegt að engu tali tekur að setja fé Vegagerðarinnar í veg sem engin þörf er fyrir inn á öræfi. Ég hefði haldið að annað væri mikilvægara. Þórsmörk, og þá á ég við dalinn allan milli jökla, er einhver mestu öræfi Suðurlands. Þau blasa við af Suðurlandsveginum, aðeins kippkorn þaðan. Og þó eru þau ekki öllum fær. Fjarlægð og nálægð öræfanna gera þau heillandi. Maður sér þau en kemst ekki þangað, nema leggja eitthvað á sig. Hugmynd Vegagerðarinnar um drossíuveg inn að lóninu við Gígjökul er frámuna- lega vitlaus og fáum eða engum til gagns en mörgum til bölvunar. Ég hvet vegagerðina til þess að út- skýra fyrirætlanir sínar opinberlega, hvaðan og hvernig þær eru komnar. Og ég bið Vegagerðina að láta Þórs- mörk í friði. GUNNLAUGUR EIÐSSON, leiðsögumaður. Þórsmerkurferð Frá Gunnlaugi Eiðssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.