Morgunblaðið - 17.05.2004, Page 44

Morgunblaðið - 17.05.2004, Page 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MÁNUDAGUR 17. MAÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. Áskriftarsími 881 2060 Í FORMI LIFANDI VÍSINDI Áskriftarsími 881 4060 LANDGRÆÐSLUVÉLIN Páll Sveinsson er enn á ný tilbúin til notkunar og fór í fyrsta land- græðsluflug sumarsins á föstudag yfir fyrirhugaðan Suðurstrand- arveg með áburð og grasfræ. Þetta er 31. starfsár vélarinnar, af gerðinni Douglas DC-3, hjá Land- græðslunni og segir Sveinn Run- ólfsson landgræðslustjóri að hún hafi sjaldan verið betri, árgerð 1943 og því 61 árs gömul. Forystumenn vinaklúbba Þrists- ins í Noregi og Danmörku komu gagngert til Íslands um helgina til að skoða Pál Sveinsson og fóru með í fyrsta áburðarflug sumars- ins. Vélin er meðal sex annarra á Norðurlöndunum sem enn eru flugfærar; tvær í Svíþjóð og ein í Noregi, Danmörku og Finnlandi, og þá í eigu viðkomandi vina- klúbba. Páll Sveinsson er eina vél- in sem notuð er til annars en út- sýnisflugs og sýnis á jörðu niðri. Landgræðsluvélin hefur verið í æfingaflugi síðustu daga og alls 16 flugmenn verið þjálfaðir, sem fljúga henni endurgjaldslaust í þágu góðs málefnis. Flugþjálfun stýrir Tómas Dagur Helgason, flugstjóri og flugrekstrarstjóri Landgræðslunnar. Tómas Dagur sagðist í samtali við Morgunblaðið hafa ásamt fleir- um hér á landi verið í sambandi við vinaklúbbana á Norðurlöndum og með aðstoð Icelandair og Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna hefði tekist að bjóða fulltrúum tveggja klúbba til Íslands. Auka ætti þessa samvinnu og fá Íslend- inga meira til leiks. Jane Peterson, formaður klúbbsins DC-3 Vennerne í Dan- mörku, sem í eru um 2.700 manns um allan heim, sagði það hafa ver- ið stórkostlegt að fljúga með Páli Sveinssyni. „Þið getið verið stolt af því að eiga svo frábæra vél sem hefur verið haldið mjög vel við. Páll Sveinsson á sér mjög langa og merka sögu. Við höfum lengi átt okkur þann draum að vélin geti sameinast öðrum slíkum á Norð- urlöndum, annaðhvort á flugmóti í Danmörku eða Noregi. Vonandi tekst það einhvern tímann,“ sagði Petersen. Vill enda ævina um borð í Þristi Spurð af hverju DC-3 vélarnar væru svo vinsælar og ending- argóðar sagði hún að smíði þeirra hefði verið mjög vönduð á sínum tíma. Vonandi yrði þeim haldið á lofti sem flestum og lengst. „Ég hef alltaf sagt að ef ég verð 100 ára gömul þá vil ég eyða mínum síðustu dögum um borð í DC-3. Ég vona að þeim verði haldið við svo lengi, líkt og gert hefur verið svo vel hérna á Íslandi,“ sagði Jane Petersen. Norrænir vinir Þristsins fóru í fyrsta landgræðsluflug sumarsins með Páli Sveinssyni „Getið verið stolt af því að eiga svo frábæra vél“ Morgunblaðið/Árni Torfason Tómas Dagur Helgason, flugstjóri og flugrekstrarstjóri Landgræðsl- unnar, lengst til hægri, og eiginkona hans, Jóna Sigurbjörg Eðvalds- dóttir, ásamt forystumönnum norrænu vinaklúbba Þristsins. Frá vinstri eru hjónin Thorbjørn og Laila Marie Larsen frá Noregi, hjónin Dorit og Niels Helmø Larsen frá Danmörku, og Jane Petersen, formaður danska klúbbsins, ásamt manni sínum, Knud Kaj Petersen. FRAMKVÆMDIR eru hafnar af fullum krafti við Hellisheiðarvirkj- un. Eins og nýlega kom fram í Morgunblaðinu eru Jarðboranir byrjaðar á borun jarðhitahola á Hellisheiði en einnig hefur verið gengið frá samningum um vega- gerð og aðstöðu, smíði hljóðdeyfa í holurnar og borholuhúsa. Tilboð í vélbúnað virkjunarinnar verða opnuð síðar í þessum mánuði og í kjölfarið fara fram útboð í ýmis önnur verk, m.a. stöðvarhús og smíði gufu- og skiljuvatnslagna. Frá þessu er greint í fréttabréfi Orkuveitu Reykjavíkur og þar er birt meðfylgjandi mynd sem sýnir frumdrög hönnunar á stöðvarhúsi Hellisheiðarvirkjunar við Kolvið- arhól. Nú liggur fyrir verkhönnun- arskýrsla í lokadrögum. Að henni hefur unnið fjöldi ráðgjafa um nokkurra mánaða skeið, þ.e. ráð- gjafafyrirtækin TARK-Teiknistof- an, Verkfræðistofa Guðmundar og Kristjáns (VGK), Fjarhitun, Raf- teikning, Rafhönnun og Landslag. Von á fleiri útboðum Í fréttabréfi OR segir að á grundvelli þessarar vinnu hafi fjöl- mörg útboð farið fram og von sé á fleiri útboðum á næstu mánuðum. Orkuveitan hyggst starfrækja upplýsingamiðstöð í skíðaskálan- um í Hveradölum í sumar. Þar verða til sýnis margs konar upp- lýsingar og fróðleikur um virkj- unina, rannsóknir á virkjunar- svæðinu og tæknilega uppbygg- ingu. Hönnun Hellisheið- arvirkjun- ar að ljúka Tölvumynd/Tark-Teiknistofan fram ósk um að þegar umsagnir þeirra nefnda þingsins, sem fengu málið til umsagnar berast, verði þær teknar til umræðu í nefndinni,“ sagði Bjarni. Áður en frumvarpinu var vísað til síðustu umræðu á laugardag var til- laga minnihluta allsherjarnefndar um að málinu verði vísað frá felld. Breytingartillögur meirihluta nefndarinnar við frumvarpið voru hins vegar samþykktar. Atkvæði í þessum atkvæðagreiðslum féllu á sama veg og í atkvæðagreiðslunni um að frumvarpinu yrði vísað til síð- ustu umræðu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar FJÖLMIÐLAFRUMVARP ríkis- stjórnarinnar er fjórða mál á dag- skrá Alþingis í dag en því var vísað til þriðju og síðustu umræðu á laug- ardag. Var það samþykkt með 30 atkvæðum þingmanna Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks gegn 27 atkvæðum stjórnarandstöðunn- ar og Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokks. Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sagði við Morg- unblaðið í gærkvöld að ekkert hefði verið ákveðið um hvort fjölmiðla- frumvarpið yrði tekið til umfjöllun- ar í allsherjarnefnd fyrir þriðju um- ræðu á þingi. „Það hefur komið sögðu m.a. í atkvæðagreiðslu að málið væri enn vanreifað. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að ná hefði mátt sátt í þessu máli ef menn hefðu vilj- að vinna það á lengri tíma og með öðru lagi en hér hefði verið gert. Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sagði við aðra um- ræðu að hann hefði orðið sannfærð- ur, eftir fund með lögfræðingum í efnahags- og viðskiptanefnd, að frumvarpið bryti ekki í bága við stjórnarskrá. Fjölmiðlafrumvarpið á dagskrá Alþingis í dag  Fjölmiðlafrumvarp/4, 6, 10 Í BÍLABÚÐ Benna er nú kominn dýrasti sportbíll sem sést hefur hér á landi, að því er best vitað. Um er að ræða Ferrari Enzo-bíl sem verður á Sportbílasýn- ingunni í Laugardalshöll um næstu helgi. Á götuna myndi bíllinn kosta hér tæpar 90 milljónir. Hann er í láni frá Bretanum Kevin Standford, fv. eiginmanni tískudrottningarinnar Karenar Miller, en glæsivagn- inn keypti hann af Bílabúð Benna á sínum tíma. 90 milljóna króna Ferrari kominn Morgunblaðið/Árni Torfason ♦♦♦ ALÞINGI hefur samþykkt lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir því að fjárhæð atvinnu- leysisbóta hækki og verður fjárhæð há- marksbóta hækkuð úr 2.752 krónum í 4.096 krónur á dag. Verða bæturnar greiddar samkvæmt þessu frá og með 1. mars sl. Frumvarpið var lagt fram í tengslum við kjarasamning Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins við Samtök atvinnulífs- ins, sem undirritaður var 7. mars sl., en þá lýsti ríkisstjórnin því yfir að hún mundi beita sér fyrir þessari hækkun atvinnuleys- isbóta. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna þessara kjarasamninga frá sama degi segir að ríkisstjórnin muni beita sér fyrir því að atvinnuleysisbætur hækki og verði frá 1. mars 2004 88.767 kr. en hækki síðan um 3% 1. janúar 2005, 2,5% 1. janúar 2006 og um 2,25% 1. janúar 2007. Atvinnu- leysisbætur hækka EF FRAM heldur sem horfir þarf að færa þjóðveginn austan Jökulsár á Breiðamerk- ursandi eftir fimm ár vegna landrofs til að tryggja áframhaldandi öryggi hringvegar- ins á svæðinu. Mikið rof hefur verið á sjáv- arströndinni við Jökulsá á undanförnum áratugum og gera áætlanir Vegagerðarinn- ar ráð fyrir að færa veginn þegar fjarlægðin frá fjörubakka í veg nemur 50 metrum. Í grein eftir Helga Jóhannesson, deildar- stjóra brúardeildar Vegagerðarinnar, í fag- tímariti verk- og tæknifræðinga, Verk- tækni, kemur fram að miðað við 5 metra rofhraða á ári megi gera ráð fyrir að færa verði veginn austan árinnar eftir u.þ.b. 5 ár. Vegagerðin hefur á undanförnum árum styrkt farveg Jökulsár með grjóti. Stærsta átakið var gert veturinn 2003 í kjölfar mikils rofs sem átti sér stað á bökkum og botni ár- innar í flóði haustið 2002. Þá hafi verið gerð- ir tveir grjótþröskuldar yfir farveg árinnar. Samkvæmt mælingum á rofi á sjávar- ströndinni við Breiðamerkursand var rofið um 700 m frá 1904–89 eða um 8 metrar á ári en um 5 metrar á ári 1991–2003. Færa þarf veg- inn vegna rofs  Vegurinn/6

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.