Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Umræðan 27/32
Viðskipti 14 Viðhorf 32
Erlent 16/17 Minningar 34/36
Höfuðborgin 19 Bréf 40
Akureyri 20 Dagbók 42/43
Suðurnes 21 Kvikmyndir 48
Landið 23 Fólk 48/54
Neytendur 24 Bíó 50/53
Listir 25/26 Ljósvakar 54
Forystugrein 28 Veður 55
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
fundaði í um klukkustund með forseta
Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, í
gærmorgun. Davíð segir þá hafa átt
mjög gott samtal eins og þeir eigi allt-
af, þótt þeir skiptist á skoðunum.
Davíð ræddi við blaðamenn að
loknum fundi sínum með Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra í stjórn-
arráðinu í gær þar sem þeir ræddu
stöðu þingmála, fjölmiðlafrumvarpið
og fleira.
Spurður um efni fundar síns með
forseta sagði Davíð bæði hann og for-
seta standa fast á því að ræða ekki
hvað þeim fór á milli á fundi sínum.
Þetta var fyrsti fundur forseta og for-
sætisráðherra síðan fyrir heima-
stjórnarafmælið, en Davíð segir þá
hafa ræðst við í síma síðan.
Davíð segir að forseti og forsætis-
ráðherra eigi reglubundið fundi, en
fundunum hafi fækkað eftir að skrif-
stofa forseta fluttist úr stjórnar-
ráðinu. Áður hafi hann hitt forseta
einu sinni í viku, væru báðir viðlátnir,
í um hálfa klukkustund í senn, en nú
séu fundirnir færri en lengri.
Spurður um samkomulag sitt við
forsetann sagði Davíð: „Ég er nú bú-
inn að þekkja Ólaf frá því við vorum
18 ára, frá því að við vorum að spila
badminton saman, síðan höfum við
þekkst með svona hléum. Þannig að
það [samkomulagið] hefur alltaf verið
ágætt [...] og er enn ágætt.“
Spurður um stöðu skattalagafrum-
varps sagðist Davíð eiga von á því að
það næðist að leggja málið fyrir þing-
flokka og leggja fyrir þingið, en sagð-
ist ekki eiga von á því að það næðist
að afgreiða það frá þinginu fyrir vor-
ið. Davíð sagði að náðst hefði sam-
komulag um hvernig slíkt samkomu-
lag ætti að líta út, stjórnarstefnu-
sáttmálinn væri mjög skýr og það
væri fullur vilji hjá sér og Halldóri að
laga sig að honum.
Vanhæfi forseta ekki rætt
Halldór Ásgrímsson sagði eftir
fund sinn með Davíð að vanhæfi for-
seta Íslands hefði ekki verið rætt á
fundinum. „Ég er þeirrar skoðunar að
það sé afskaplega ólíklegt að forseti
beiti því valdi einhverntímann, það er
slík ákvörðun að ég trúi ekki að til
þess komi,“ sagði Halldór. Aðspurður
hvort hann ætti von á því að forseti
staðfesti lögin sagði hann: „Ég tel að
forsetinn muni gera það eins og önnur
mál.“
Forseti og for-
sætisráðherra
funduðu í gær
„SAUTJÁNDI maí árið 2004 er
svartur dagur í fiskveiðisögu íslensku
þjóðarinnar. Þetta frumvarp sem
liggur hér fyrir er svo vont að mig
verkjar í augun þegar ég les það.
Þetta er svívirðileg aðför að sjávar-
byggðum Íslands,“ sagði Magnús
Þór Hafsteinsson, þingmaður og
varaformaður Frjálslynda flokksins,
á Alþingi í gær eftir að Árni M.
Mathiesen hafði mælt fyrir frum-
varpi um stjórn fiskveiða í fyrstu um-
ræðu.
Samkvæmt frumvarpinu verður
útgerðum sóknardagabáta gefinn
kostur á að færa sig yfir í krókaafla-
markskerfi. Þá á að fækka sóknar-
dögum smábáta um 10% á næsta
fiskveiðiári og þeir verði alls 18 en
eru nú 19. Segir í frumvarpinu að
sóknardögum fækki ekki frekar. Til
móts við þessa breytingu verða sett-
ar takmarkanir á leyfilegan fjölda
handfærarúllna um borð í hverjum
báti og jafnframt ákveðið að stækkun
vélar hafi áhrif á fjölda sóknardaga.
Guðjón Hjörleifsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og formaður
sjávarútvegsnefndar, sagði útgerð-
um nú gefinn kostur á að velja um
hvort þær vildu veiða innan sóknar-
daganna eða fara í krókaaflahlutdeild
í þorski og ufsa á næsta fiskveiðiári.
„Það hefur í áranna rás verið mikill
ágreiningur um sóknardagabáta og
hefur mest borið á því fyrir alþing-
iskosningar hverju sinni. Vonandi
linnir þessum ágreiningi ef þetta
frumvarp nær fram að ganga.“ Fagn-
aði hann sérstaklega að ekki væri
gefinn kostur á því að selja sig út úr
þessu kerfi.
Magnús Þór Hafsteinsson spurði
sjávarútvegsráðherra hvað lægi að
baki þeirri ákvörðun að enginn bátur
í sóknardagakerfinu mætti hafa fleiri
en fjórar handfærarúllur um borð.
Jafnframt hvað lægi að baki því að
reglur væru settar um sóknardaga-
fjölda út frá vélarstærð báta.
Reynsluvísindi liggja að baki
„Það eru reynsluvísindi sem liggja
þar að baki og þau reynsluvísindi
hafa komið fram í viðræðum okkar
við Landssamband smábátaeigenda
þar sem lagt hefur verið til af þeirra
hálfu að hægt væri að takmarka
sóknina með því að takmarka fjölda
rúllna og vélarstærð. Þeir hafa sýnt
okkur fram á með tölum að það muni
virka,“ sagði Árni M. Mathiesen. „Við
stöndum frammi fyrir því í dag að
sjávarútvegurinn er orðinn harðlok-
uð atvinnugrein og þessi pínulitlu
skráargöt, sem voru í þessari at-
vinnugrein, hafa verið í smábátakerf-
inu. Þannig að í nánustu framtíð er
ekki sjáanlegt að nokkur einasta ný-
liðun, sem er varla hægt að gefa það
nafn á undanförnum árum, verði. Og
það er engin viðleitni stjórnvalda í þá
átt að opna þessa atvinnugrein með
nokkrum hætti fyrir nýjum aðilum,“
sagði Jóhann Ársælsson, þingmaður
Samfylkingarinnar. Það beri með sér
klárlega endalok sóknardagakerfis-
ins.
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri
grænna, sagði sóknardagabáta hafa
gríðarlega þýðingu fyrir strand-
byggðirnar og menningu sem hefði
fylgt fiskveiði á grunnslóð. „Nú á að
vega að þessum þætti. Hér er verið
að bjóða upp á að þeir bátar, sem enn
eru í sóknardagakerfinu, eigi kost á
því að færa sig yfir í aflamarkskerfið
og er beitt hálfgerðum mútum til að
fá menn til að færa sig þar á milli.“
„Með þessu frumvarpi er hvorki
verið að þvinga eða nauðga eða halda
afarkostum að einum né neinum. Þeir
sem eiga að veiða samkvæmt því,
sem þetta frumvarp gerir ráð fyrir,
geta valið um það hvort þeir eru í
krókaaflamarki eða í sóknardaga-
kerfi,“ sagði sjávarútvegsráðherra.
„Þetta frumvarp er mér ekki að
skapi,“ sagði Kristinn H. Gunnars-
son, þingmaður Framsóknarflokks-
ins. Valið sem smábátaeigendur
hefðu samkvæmt þessu frumvarpi
væri ekki jafngilt. Þá væri ekkert val.
Pólitíska spurningin væri sú hvort
vilji væri til að hafa sóknardagakerfi
áfram og svaraði hann því játandi.
Þingmenn segja að vegið
sé að sóknardagabátunum
Frumvarp um stjórn fiskveiða gagnrýnt á Alþingi
NEMENDUR 5. bekkjar G í Granda-
skóla nýttu sér góða veðrið í borg-
inni og héldu síðasta bekkjarkvöld
skólaársins á ylströndinni í Naut-
hólsvík síðdegis í gær. Þó að ský
hefði alloft dregið fyrir sólu hélst
hann þurr á meðan krakkarnir fóru
í strandblak og busluðu í víkinni
volgu.
Að því loknu var svo tekið til við
að snæða grillaðar pylsur og safna
um leið orku fyrir komandi próf í
skólanum. Þótti bekkjarkvöldið
kærkomin tilbreyting frá skemmt-
anahaldi innan veggja skólans, enda
ekki oft sem tækifæri gefast til
svona ánægjulegrar útiveru. Hér
eru sýnd góð tilþrif í strandblakinu.
Morgunblaðið/Ásdís
Bekkjarkvöld á ylströnd
FRUMVARPI BREYTT
Formenn stjórnarflokkanna, Dav-
íð Oddsson og Halldór Ásgrímsson,
kynntu í gær breytingartillögur á
frumvarpi um eignarhald á fjöl-
miðlum. Annars vegar um að óheim-
ilt verði að veita fyrirtæki útvarps-
leyfi ef annað fyrirtæki á meira en
35% eignarhlut í því en þetta hlutfall
var 25% í frumvarpinu. Hins vegar
að núverandi útvarpsleyfum verði
leyft að renna út, þó þannig að ekk-
ert þeirra renni út fyrr en eftir tvö
ár þegar lögin taka gildi.
Matthías í Edinborg
Matthíasi Johannessen, skáldi og
rithöfundi, hefur verið boðið að lesa
upp úr verkum sínum á 21. Al-
þjóðlegu bókahátíðinni í Edinborg í
Skotlandi en hún verður haldin 14.
til 30. ágúst nk. Hefur hann þegið
boðið og mun lesa upp 25. ágúst.
Bókahátíðin í Edinborg er ein sú
mesta sinnar tegundar og er haldin í
tengslum við listahátíðina þar í borg.
Oddviti myrtur
Abdel-Zahraa Othman Mohamm-
ed, oddviti íraska framkvæmdaráðs-
ins, lést í gær í bílsprengingu í
Bagdad. Hefur morðið verið for-
dæmt víða en það er talið mikið áfall
fyrir Bandaríkjamenn og áætlun
þeirra um að láta völdin að hluta í
hendur Írökum sjálfum 30. júní
næstkomandi.
Þrjú rán í gær
Sautján ára piltur var handtekinn
í gær, grunaður um að hafa framið
rán í útibúi Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis í Mjódd. Tveir menn,
sem staðnir voru að þjófnaði í af-
greiðslu FÍ á Reykjavíkurflugvelli,
höfðu ræstingamann nauðugan með
sér en slepptu honum síðan í Selja-
hverfi. Þá rændi maður bensínstöð-
ina og verslunina H-sel á Laug-
arvatni í gær en eigandinn og dóttir
hans eltu hann og yfirbuguðu með
hjálp annars manns á Þingvöllum.
Enginn flýtir
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær, að breski
herinn í Írak yrði ekki fluttur þaðan
í neinum flýti. Var hann með því að
svara fréttum um, að bresk og
bandarísk stjórnvöld væru farin að
leggja á ráðin um koma sér burt frá
Írak sem fyrst. Gömul fallbyssukúla
með taugaeitrinu sarín fannst við
vegkant í Írak í gær og sprakk
nokkru síðar. Bandarískir embætt-
ismenn segja hana úr Íraks-Írans-
stríðinu og óttast, að fleiri slíkar
sprengjur sé að finna í landinu.