Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hvað væri upp á teningnum í
fjármálunum ef fyrirvinna þinnar
fjölskyldu myndi veikjast eða falla frá?
Taktu ábyrgð á þínu lífi.
Þú færð Lífís líf- og sjúkdómatryggingu
hjá VÍS. Hafðu samband strax í dag í
síma 560 5000
Þú greinist með alvarlegan
sjúkdóm og missir tímabundið
úr vinnu. Íbúðarlánin eru í
uppnámi og þú óttast að missa
fasteign þína. Ef þú ert með Lífís
sjúkdómatryggingu hefur þessi
reitur ekki fjárhagsleg áhrif.
Þú selur nokkur sterlingspund og
græðir á því 250 kr.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
2
6
7
Vátryggingafélag Íslands
Ármúla 3 · 108 Reykjavík
Þjónustuver 560 5000 · www.vis.is
Útgefandi Lífís trygginga er
Líftryggingafélag Íslands hf. · www.lifis.is
MATTHÍASI Johannessen skáldi
og rithöfundi hefur verið boðið að
lesa úr verkum sínum á 21. Al-
þjóðlegu bókahátíðinni í Ed-
inborg á Skotlandi nú í ágúst.
Bókahátíðin er ein hin stærsta
sinnar tegundar og er haldin ár-
lega í tengslum við Alþjóðlegu
Listhátíðina í Edinborg.
Matthías hefur þegið boðið og
les úr verkum sínum á hátíðinni
miðvikudaginn 25. ágúst nk.
Rúmlega 185 þúsund manns
sóttu um 650 viðburði á bókahá-
tíðinni í Edinborg í fyrrasumar,
en þar komu fram rúmlega 500
rithöfundar. Meðal höfunda á há-
tíðinni þá voru Susan Sontag,
Mario Vargas Llosa, Doris Less-
ing, Ariel Dorfman og Ian Rankin.
Bókahátíðin verður haldin 14.–
30. ágúst í Charlotte Square
Gardens í miðborg Edinborgar,
en þetta er að jafnaði gróðurvaxið
torg við vesturenda George
Street í næsta nágrenni Princes
Street verslunargötunnar. Stórar
tjaldbúðir eru reistar í garðinum
fyrir bókahátíðina og til verður
menningarþorp í miðju versl-
unarhverfi Edinborgar þar sem
rithöfundar og skáld lesa úr verk-
um sínum, spjalla við spyrla og
svara spurningum áhorfenda.
Dagskrá hátíðarinnar verður
formlega kynnt í Edinborg 17.
júní nk. Sama dag verður dag-
skráin aðgengileg á netinu
(‘www.edbookfest.co.uk’) og
miðasala á einstaka viðburði
hefst.
Bókahátíðin er m.a. styrkt af
The Herald, sem er annað tveggja
stærstu dagblaða Skotlands. Mikil
fréttaumfjöllun er að jöfnu um há-
tíðina í Bretlandi og rithöfundar
nýta sér hana til að koma verkum
sínum á framfæri og selja bækur í
bókaverslun tjaldbúðanna, en þar
er einnig að finna bókakaffihús.
Af þessu tilefni gefur bóka-
forlag Matthíasar, Vaka-
Helgafell, út sérstaka bók með
enskum þýðingum á ljóðum hans.
Sum þeirra eru ort í Edinborg og
verður bókin tileinkuð 21. afmæl-
ishátíð Alþjóðlegu bókahátíð-
arinnar. Breska skáldið og þýð-
andinn Bernhard Scudder sér um
útgáfuna og velur ljóðin.
Aðspurður sagði Matthías að
hann teldi þetta boð mikinn heið-
ur og hann kvaðst vonast til þess
að geta í dagskrá sinni í Edinborg
komið á framfæri einhverjum
fróðleik um Ísland og menningar-
arfleið okkar.
Matthías á
Edinborgarhátíð
Charlotte Square Gardens, þar sem bókahátíðin verður haldin.
um við það og lentum því ekki í sjón-
um. Það hefði verið heldur kalt að
bíða björgunar blautir en þá vorum
við komnir á lygnan sjó þar sem
voru um tvö vindstig að norðan.“
Röfn Friðriksdóttir, eiginkona
Magnúsar, var heima og beið komu
hans í land og það var komið fram
yfir venjulegan komutíma. „Ég var
alveg viss um að eitthvað hefði kom-
ið fyrir þegar ég hringdi og hann
svaraði ekki símanum,“ sagði hún.
Röfn sagðist ekkert hafa sofið um
nóttina en fengið fréttir um að allt
MANNBJÖRG varð þegar sex
tonna trilla frá Hólmavík, Hafbjörg
ST-77, sökk um 1,5 sjómílu út af
Kaldrananesi í Bjarnafirði á þriðja
tímanum aðfaranótt mánudags.
Tveir menn voru um borð í Haf-
björgu, skipstjórinn Magnús Gúst-
afsson og svili hans Victor Kristinn
Gíslason og komust þeir í gúmmí-
björgunarbát eftir að hafa sent út
hjálparbeiðni og látið vita að bát-
urinn væri að sökkva. Björgung-
arsveitirnar á Hólmavík og Drangs-
nesi voru þegar í stað kallaðar út
ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar
en skipverjar á bátnum Guðmundi
Jónssyni ST-17 frá Hómavík komu
til hjápar og fluttu þá í land.
„Mér þykir sennilegast að við höf-
um steytt á skeri,“ sagði Magnús.
„Við vorum á leiðinni í land með bát-
inn fullan af grásleppunetum. Ég
var í koju og mín fyrsta hugsun var
að kíkja ofan í vélarrúmið sem var
orðið hálffullt af sjó. Við vorum að
sigla svokallaða skerjaleið og vorum
við Þorkelssker utan Bjarnafjarðar
þegar leki kom í vélarrúm bátsins. Í
fyrstu hélt ég að hann mundi nú
haldast á floti en ákváðum þó að best
væri að yfirgefa hann strax.“
Magnús sagði þá hafa haft lítinn
tíma til að vera hrædda og hann
hefði hugsað mest lítið. „Auðvitað
hugsaði ég heim til konunnar og
barnanna en ég var alveg viss um að
við værum ekki í lífsháska eftir að
við komum í gúmmíbjörgunarbát-
inn.“
Reru með skerinu
Hann sagði þá vera þjálfaða í að
klára sín verk og þeir hefðu tekið
hvert skref fyrir sig. „Við notuðum
árarnar og rerum með skerinu en
höfðum mestar áhyggjur af því að
við rækjum upp í kletta en við slupp-
væri í lagi þegar Magnús hringdi
heim eftir að þeir komu um borð í
bátinn sem flutti þá heim.
Hræðist ekki sjóinn
Magnús hefur stundað sjóinn frá
15 ára aldri eða um þrjátíu ár og ver-
ið afar farsæll en hann hefur þó
komist í hann krappann áður en þá
fór betur en nú. „Þá var ég á Haf-
björgu eldri og við fengum á okkur
smáhnút í vondu veðri hérna úti á
flóanum og aflinn hentist til en það
var lítilræði.“
Trillan Hafbjörg var eins og áður
sagði sex tonn smíðuð af Véla- og
bátaverkstæði Seiglu ehf. árið 2001.
Magnús segir þetta hafa verið fram-
úrskarandi gott sjóskip. „Ég sigldi
svona báti til Færeyja til að sýna
hann og þá settum við hraðamet frá
Reykjavík til Færeyja en sá bátur
var seldur til Grímseyjar.“
Magnús segist halda ótrauður
áfram á sjó þrátt fyrir óhappið. „Ég
hef eiginlega verið á sjó síðan ég
man eftir mér og hræðist ekki sjó-
inn,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Arnheiður Guðlaugsdóttir
Magnús kominn heim til fjölskyldunnar eftir þrekraun næturinnar. Með honum er kona hans Röfn Friðriksdóttir
og tveir af sex sonum þeirra, Róbert Fannar og Júlíus Brynjar. Veigar, fóstursonur Magnúsar, hefur verið á sjón-
um með honum en var staddur í Reykjavík ásamt bræðrum sínum þremur og var því ekki í þessari sjóferð.
Mannbjörg er trilla frá Hólmavík
sökk út af Kaldrananesi
„Erum þjálf-
aðir í að klára
okkar verk“
Ströndum. Morgunblaðið.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær 16 ára pilt í 7 mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir ránsem
hann framdi í verslun 10-11 við Arn-
arbakka í Reykjavík í byrjun desem-
ber síðastliðnum.
Hafði hann 110–130 þúsund krón-
ur upp úr krafsinu sem hann hafði
eytt í fíkniefni áður en hann gaf sig
sjálfur fram við lögreglu og gekkst
við ráninu.
Ógnaði afgreiðslu-
manninum með hnífi
Pilturinn var rúmlega 15 ára gam-
all er hann kom með hulið andlit og
ógnaði afgreiðslumanni með hnífi og
skipaði honum að opna peningakassa
og afhenda sér peningaseðla sem í
honum voru, samtals að fjárhæð 138
þúsund krónur, sem hann hafði á
brott með sér.
Ákærði var einnig sakfelldur fyrir
að hafa í september sl. stolið tölvu að
vermæti 192 þúsund krónur í versl-
uninni BT í Hafnarfirði.
Var ungi maðurinn ennfremur
dæmdur til að borga versluninni 10-
11, Arnarbakka 2–4 í Reykjavík, 138
þúsund krónur í skaðabætur.
Málið dæmdi Róbert R. Spanó
settur héraðsdómari. Verjandi
ákærða var Brynjar Níelsson hæsta-
réttarlögmaður og sækjandi Dag-
mar Arnardóttir fullrúi lögreglu-
stjórans í Reykjavík.
7 mánaða fangelsi
fyrir vopnað rán