Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 8

Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 8
FRÉTTIR 8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Allir velkomnir Hvernig á að gera viðskiptasamninga? Fyrirlesturinn verður þriðjudaginn 18. maí í Öskju, (nýja Náttúrufræðihúsi HÍ) stofu 1 kl. 12.15. Kenningar Williamsons líta á viðskipti tveggja aðila sem grunneiningu fræðanna og fjalla um það hvernig aðilar koma á fót ýmis konar skipulagi til að lágmarka viðskiptakostnaðinn og treysta viðskiptatengslin. Kenningar Williamsons hafa meðal annars átt þátt í því að gerbreyta viðhorfum í Bandaríkjunum og víðar til samkeppnismála og opinbers eftirlits með fyrirtækjum. Innan hagfræðinnar er Williamson einn helsti forsprakki nýrra kenninga um innra skipulag viðskiptalífsins í markaðsbúskap og jafnframt einn af leiðtogum nýju stofnanahagfræðinnar. Williamson stundaði nám við M.I.T., Stanford háskóla og lauk doktorsprófi í hagfræði frá Carnegie-Mellon háskóla. Frá árinu 1988 hefur hann gegnt stöðu prófessors í viðskiptafræði, hagfræði og lögum við Kaliforníu háskóla í Berkeley. Hann hefur skrifað sex bækur, gefið út ritgerðasöfn og ritað um 150 ritgerðir í virt fræðitímarit. Williamson hefur verið heiðraður á marga vegu. Hann er m.a. heiðursdoktor við 8 háskóla. Oliver E. Williamson einn þekktasti hagfræðingur heims Nei, nei, ég á að vera á undan, ég er meira ekta, Stúfur litli, ég er þó með alvöru skegg. Pokasjóður verslunarinnar 70 milljónir til þarfra verka Pokasjóður verslun-arinnar úthlutar 70milljónum kr. í dag til 70 aðila. Athöfnin verð- ur í Salnum í Kópavogi og hefst kl. 11. Sjóðurinn hef- ur styrkt margvísleg verk- efni, þau stærstu á sviði umhverfisverndar. – Hversu lengi hefur Pokasjóður starfað? „Upphafið var 1988, þegar Kaupmannasamtök Íslands komu þeirri hug- mynd í framkvæmd að verslanir seldu plastpoka, í stað þess að gefa þá, og andvirðið rynni í sjóð til styrktar umhverfismálum, í samvinnu við Landvernd. Pokarnir voru verslunum dýrir og umhverfisvernd- arsjónarmið kölluðu á að dregið væri úr notkun þeirra. 1995 var sjóðurinn stofnaður í nú- verandi mynd af Kaupmannasam- tökunum, Samtökum Samvinnu- verslana og Hagkaupum og samþykktum hans breytt. Núna má veita fé til allrar starfsemi sem telst til almannaheilla, svo sem mannúðarmála, umhverfis- mála og heilbrigðismála. Í ár renna 10 milljónir til íþrótta, 20 til menningar og lista, 11,2 til mann- úðarmála og 27,3 til umhverfis- mála.“ – Hvaða verslanir greiða í Pokasjóð? „Núna greiða flestar stærstu verslanir landsins í sjóðinn. Hann stækkaði verulega árið 1995, þeg- ar samvinnuverslanir og Hagkaup hófu þátttöku. Síðar bættust við 10–11, verslanir Kaupáss, Bónus, ÁTVR, Ikea og Samkaup og ný- lega bættust allar verslanir Penn- ans í hópinn. Núna leggja 90–95% allra dagvöruverslana ágóðann af pokasölu sinni í sjóðinn. Það er hins vegar ekkert launungarmál að enn eru nokkrir aðilar utan Pokasjóðs sem við vildum gjarnan ná til, til dæmis Fríhöfnin.“ – Hversu háar upphæðir renna til sjóðsins? „Á þessu ári renna um 120 milljónir króna í Pokasjóð. Versl- anir greiða 7 krónur af hverjum seldum poka. Pokarnir eru víðast hvar seldir á 15 krónur, en þeir kosta 4–5 krónur í innkaupum og virðisaukaskatturinn er tæpar 4 krónur. Verslanirnar hagnast því ekkert sjálfar á sölunni, en víða erlendis er pokasala drjúg tekju- lind. Ég þekki hins vegar engin önnur dæmi um sjóð af þessum toga hjá öðrum þjóðum. Annars staðar þekkist hins vegar að leggja umhverfisskatta á verslan- ir, eins konar mengunargjald. Hér á landi hefur það ekki komið til tals, enda brugðust verslanir sjálfar við með því að setja Poka- sjóð á laggirnar. Ef einhver stærstu aðilanna í Pokasjóði drægi sig út úr honum er hætt við að slíkur umhverfisskattur kæmi til álita. Hins vegar má benda á að pokarnir eru ekki eins skaðlegir náttúrunni nú og þeir pokar sem notaðir voru þegar sjóðurinn var stofnað- ur.“ – Er öllu þessu fé ráðstafað af stjórn Pokasjóðs? „Nei, árið 2001 var sú breyting gerð að 60% framlaga telst sam- eign, en verslanir geta sjálfar ráð- stafað 40%. Þeim er ekki í sjálfs- vald sett hvort þær greiða þá upphæð. Það verða þær að gera, en geta hins vegar stýrt hvert það fé rennur, í samræmi við sam- þykktir sjóðsins. Þannig getur til dæmis verslun í kaupstað úti á landi ákveðið að 40% af framlagi hennar renni til ákveðins málefnis heima í héraði.“ – Hver eru stærstu verkefnin sem Pokasjóður styrkir? „Umhverfisverkefni af ýmsum toga hafa alltaf verið stærst. Þar má nefna að Skógræktarfélag Ís- lands hefur fengið 5–7 milljónir árlega frá 1995, sem það ráðstafar til aðildarfélaga sinna. Frá 1995 hefur uppgræðsla á Hólasandi verið styrkt um alls 25 milljónir króna og undravert að sjá hvernig örfoka land breytist þar í ræktað. Og síðustu sex ár hafa um 30 milljónir runnið til uppgræðslu undir Hafnarfjalli.“ – Hversu margar umsóknir berast til sjóðsins árlega? „Umsóknunum fjölgar alltaf og núna voru þær um 700. Þar af voru valdir 70 aðilar, sem fá styrki á bilinu 100 þúsund kr. til 5 millj- ónir. Styrkþegar fá helming styrksins núna, en síðari hluti er greiddur út þegar stjórn sjóðsins hefur borist skýrsla um það verk- efni sem unnið er. Mikil áhersla er því lögð á að peningarnir skili sér til þeirra verkefna sem valin eru.“ – Hvað er á döfinni næstu árin? „Pokasjóður er að undirbúa öfl- ugt og stórt verkefni sem beinist að vörnum gegn vímuefnanotkun og sjóðurinn mun leggja sitt af mörkum til að efla útivist og al- menna þátttöku í íþróttum. Núna er sjóðurinn að leita samstarfs við ýmsa aðila, en til að byrja með verður veitt fé til undirbúnings- vinnu.“ – Safnast upp háar fjárhæðir í sjóðnum? „Nei, Pokasjóði er ekki ætlað að safna digrum sjóðum. Rekstrarkostnaður sjóðsins er ótrúlega lítill og stjórnarmenn hafa aldrei þegið krónu í laun. Hins vegar vill stjórn sjóðsins gjarnan hafa borð fyrir báru og úthlutar því ekki hverri krónu jafnóðum. Með því móti er mögu- legt að veita fé til sérstakra verk- efna, t.d. hefur Mæðrastyrks- nefnd fengið styrk fyrir jólin og fleiri slík dæmi mætti nefna.“ Bjarni Finnsson  Bjarni Finnsson, formaður stjórnar Pokasjóðs, fæddist í Reykjavík árið 1948. Hann er garðyrkjufræðingur og stundaði framhaldsnám í Danmörku. Bjarni rak Blómaval ásamt Kol- beini bróður sínum og fjöl- skyldum í þrjá áratugi og var um tíma formaður Kaupmanna- samtaka Íslands. Núna sér hann um rekstur stærstu rósafram- leiðslustöðvar á Íslandi, sem framleiðir milljón rósir á ári. Hann er einnig aðalræðismaður Hollands á Íslandi. Eiginkona Bjarna er Hildur Baldursdóttir. Þau eiga tvö börn. Verslanir hagnast ekki á pokunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.