Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 14

Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 14 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞETTA HELST … VIÐSKIPTI Viðskiptasamningar Oliver E. Williamson, einn þekktasti hagfræð- ingur heims, flytur erindi um það hvernig gera eigi viðskiptasamn- inga. Erindið verður flutt í dag klukkan 12.15 í Öskju (nýja Nátt- úrufræðihúsi HÍ), stofu 1. Í DAG HAGNAÐUR Actavis Group hf., áður Pharmaco, á fyrsta fjórðungi þessa árs nam 20 milljónum evra eftir skatta. Það svarar til 1.759 milljóna íslenskra króna. Á sama tímabili á síðasta ári var hagnaður félagsins 17 milljónir evra. Tekjur Actavis jukust um tæp 49% milli ára og námu 126 milljónum evra. Gengið var frá kaupum Actavis á tveimur fyr- irtækjum á fyrsta fjórðungi þessa árs, tyrkneska lyfjafyrirtækinu Fako og Pliva Pharma Nordic, dótturfélagi lyfjafyrirtækisins Pliva dd., sem er í Króatíu. Medis, dótturfélag Actavis, setti þrjú ný lyf á markað á ársfjórðungnum, sem seld eru til þriðja aðila. Aldrei í jafngóðri aðstöðu Haft er eftir Róberti Westman, forstjóra Actav- is, í tilkynningu frá félaginu, að það hafi aldrei verið í jafngóðri aðstöðu til þess að nýta sér þau tækifæri sem bjóðast á samheitalyfjamarkaði. „Erum við sannfærð um að samstæðan í heild sinni muni skila þeim árangri sem stefnt er að fyrir árið í heild,“ segir Róbert. „Áfram verður leitað eftir áhugaverð- um fjárfestingarkostum sem falla vel að stefnu fé- lagsins og stuðla að áframhaldandi vexti.“ Hann segir að samþætting hjá Fako í Tyrklandi hafi gengið vel þrátt fyrir minni sölu en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna breytinga á verðlagsreglum lyfja þar í landi. Tekjur af sölu til þriðja aðila hafi verið í samræmi við væntingar en sala á eigin vöru- merkjum hafi verið heldur minni en áætlanir gerðu ráð fyrir. EBITDA eykst um tæp 50% Hagnaður Actavis fyrir vexti, afskriftir og skatta (EBITDA) jókst um tæp 50% á milli fyrsta fjórð- ungs síðasta árs og sama tímabils á þessu ári, og nam 36 milljónum evra í ár. Hagnaður fyrir skatta nam 28 milljónum evra, sem eru um 39% aukning frá sama tímabili í fyrra. Heildareignir Actavis í lok marsmánaðar á þessu ári námu 641 milljónum evra, eða um 56 milljörðum íslenskra króna. Hagnaður Actavis tæpir 1,8 milljarðar króna ● SÍMINN skilaði 404 milljóna króna hagnaði á fyrsta fjórðungi ársins, sem er nær þriðjungi minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Tekjurnar jukust um 5% milli ára og námu 4.633 millj- ónum króna á fyrsta fjórðungi. Í fréttatilkynningu Símans segir að vaxandi samkeppni á fjarskiptamark- aði með lækkandi verðskrá að und- anförnu hafi haft áhrif á afkomu fé- lagsins. Rekstrargjöld jukust um 15% og námu 3.071 milljón króna en mestan þátt í aukningunni á 130 milljóna króna kaupauki starfsmanna, að því er segir í tilkynningu félagsins. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns- gjöld og skatta, EBITDA, dróst saman um 11% og nam 1.562 milljónum króna, sem er 33,7% af tekjum. Á sama tímabili í fyrra var þetta hlutfall 39,6%. Veltufé frá rekstri dróst saman um 11% og nam 1.466 milljónum króna. Eignir minnkuðu óverulega frá ára- mótum og námu 28,5 milljörðum króna í lok mars. Eiginfjárhlutfallið lækkaði úr 56% í 50% á tímabilinu. Auknar tekjur, minni hagnaður                  !" # $     %   &'' $     " ● Íslandsbanki býður nú enskumæl- andi viðskiptavinum heildarþjónustu í gegnum fyrirtækjabanka á ensku á Netinu. Þjónustan er sérstaklega sniðin að þörfum íslenskra fyrirtækja sem hafa erlent starfsfólk í þjónustu sinni, að því er fram kemur í tilkynn- ingu bankans. Þar segir að Íslands- banki sé fyrstur íslenskra banka til að bjóða þessa þjónustu, sem muni einnig gagnast vel erlendum fyr- irtækjum sem eru að hasla sér völl á Íslandi, auk þess sem hún styðji við útrás íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum. Íslandsbanki opnaði í byrjun ársins netbanka á ensku fyrir einstaklinga. „Útrás og fjárfesting erlendra fyr- irtækja hérlendis stuðlar að vexti og er því mikilvæg fyrir íslenskt þjóð- félag. Við hjá Íslandsbanka leggjum metnað okkar í að bjóða þjónustu sem getur stutt við þessa þróun og er fyrirtækjabanki á ensku liður í því,“ segir Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka. Í fréttatilkynningu bankans er haft eftir Þór Sigfússyni, höfundi bók- arinnar Landnám – útrás íslenskra fyr- irtækja, að Íslendingar séu að feta sig inn á þriðja stig hnattvæðingar með gagnkvæmum tengslum fyrirtækja milli landa. „En gagnkvæm tengsl verða aðeins raunveruleg ef upplýs- ingar eru aðgengilegar. Það skref sem tekið er nú og felst í því að gera fyr- irtækjum hvar sem er í heiminum kleift að stunda sín bankaviðskipti hérlendis er mikilvægur partur af þessari þróun,“ segir Þór Sigfússon. Fyrirtækjabanki Íslandsbanka á ensku AFKOMA Actavis Group hf., áður Pharmaco, á fyrsta fjórðungi þessa árs var undir meðalspá greining- ardeilda viðskiptabankanna. Hagn- aður félagsins eftir skatta var 20 milljónir evra, sem jafngildir um 1.759 milljónum íslenskra króna miðað við meðalgengið á tíma- bilinu. Meðalspá greiningardeild- anna hljóðaði upp á 2.455 milljónir króna. Þess ber þó að geta að af- koman var ekki fjarri spá greining- ardeildar KB banka, sem gerði ráð fyrir að hagnaðurinn yrði 1.989 milljónir króna. Innri vöxtur Actavis hefur verið mikill á undanförnum misserum. Félagið hefur sett sér það markmið að innri vöxtur verði um 15–20% á ári og að ytri vöxtur verði svip- aður. Innri vöxtur á milli fyrsta fjórðungs ársins 2003 og sama tímabils á þessu ári var um 19% og var því vel í samræmi við áætlanir félagsins. Hugsanlegt er að kaup Actavis á tyrkneska lyfjafyrirtæk- inu Fako og markaðssetning á hjartalyfinu Ramipril, sem félagið var fyrst til að setja á markað í Þýskalandi og Englandi í upphafi þessa árs, muni nægja til að mark- miðunum fyrir árið í heild verði náð. Væntanleg skráning Actavis í Kauphöllinni í Lundúnum síðar á árinu verður líklega það sem mest mun setja mark sitt á félagið á þessu ári. Ekki er talið ólíklegt að félagið muni ráðast í frekari yf- irtökur á félögum í tengslum við skráninguna í Lundúnum. Velta Actavis á fyrsta fjórðungi þessa árs var um 49% meiri en á sama tímabili á síðasta ári. Veltan á því ári í heild var hins vegar um 47% meiri en árið þar áður. Vöxt- urinn heldur því áfram hjá félag- inu. Uppgjör félagsins fyrir síðasta ár var einnig undir meðalvænt- ingum greiningardeildanna. Það kom þó ekki í veg fyrir að gengi hlutabréfa félagsins í Kauphöll Ís- lands héldi áfram að hækka eftir birtingu uppgjörsins, en það hefur verið hærra en sérfræðingar á fjár- málamarkaði hafa almennt talið að félagið standi undir. Hefur því frekar verið mælt með sölu á hluta- bréfum í félaginu en hitt. Ekki er líklegt að breyting verði þar á.  Innherji | Actavis Group hf. Afkoman undir meðalspá greiningardeildanna ( ) %    * * *  *  * * )+, -% .   !" # $     %   &'' $    " ,/ %  innherji@mbl.is BAUGUR Group og Eignarhalds- félagið Fengur seldu í gær öll hlutabréf sín í Flugleiðum, alls tæplega 27% hlutafjár. Kaupandi bréfanna er óstofnað einkahluta- félag í jafnri eigu Saxhóls, sem er í eigu Nóatúnsfjölskyldunnar, og Bygg, Byggingarfélags Gunnars og Gylfa, sem er í eigu Gunnars Þor- lákssonar húsasmíðameistara og Gylfa Ómars Héðinssonar múrara- meistara. Gengið í viðskiptunum var 9, sem er rúmum fimmtungi yfir síð- asta gengi á markaði. Miðað við gengið 9 var verð hlutarins sem seldur var 5,6 milljarðar króna. Lokaverð Flugleiða á markaði í gær var 7,6 og hækkaði um 2,7% innan dagsins. Dregið úr umsvifum á Íslandi Skarphéðinn Berg Steinarsson, yfirmaður innlendrar fjárfestingar hjá Baugi, segir að hagnaður Baugs hafi verið þó nokkur af söl- unni. Megnið af bréfunum hafi ver- ið keypt á tæplega 5,5. Ef miðað er við að meðalgengið hafi verið 5,5 var söluhagnaður Baugs um 1,7 milljarðar króna, en þá er ekki tekið tillit til fjármagns- kostnaðar. Skarphéðinn segir Baug hafa velt því fyrir sér um nokkra hríð hvað gera ætti við bréfin í Flug- leiðum og þegar tilboðið, sem talið hafi verið gott, hafi borist um helgina, þá hafi verið ákveðið að selja. Hann segir söluna í samræmi við þá stefnu að draga úr fjárfest- ingum hér á landi en auka þær er- lendis. Um frekari eignasölu segir hann ekkert hafa verið ákveðið. Ákveðnir hlutir hafi verið í skoðun en engin sala á stórum eignum standi fyrir dyrum. Skammur aðdragandi Jón Þorsteinn Jónsson, stjórn- arformaður Saxhóls, segir að að- dragandi kaupanna hafi verið skammur. Landsbankinn hafi haft samband um helgina og haft milli- göngu um viðskiptin. Landsbank- inn var skráður eigandi rúmlega 21% hlutar Baugs, sem hafði gert framvirkan samning um kaup hlut- arins af Landsbankanum og farið með atkvæðisrétt vegna hans. Jón Þorsteinn segist telja Flug- leiðir góðan kost miðað við mark- aðinn í dag og með kaupunum sé horft til langs tíma. Spurður um verðið, sem er rúmum 20% yfir markaðsverði föstudagsins, segir hann algengt að greitt sé yfirverð þegar keyptur sé ráðandi hlutur. Hluthafafundur líklegur Í stjórn Flugleiða sitja fulltrúar Baugs og Fengs, þeir Jón Ásgeir Jóhannesson forstjóri Baugs og Pálmi Haraldsson framkvæmda- stjóri Fengs, en Jón Þorsteinn seg- ir líklegt að boðað verði til hlut- hafafundar og kosin ný stjórn. Spurður að því hvort að rætt hafi verið við stærsta hluthafa félags- ins, Oddaflug, fyrir kaupin, segir Jón Þorsteinn að rætt hafi verið lítillega við Oddaflug. Saxhóll og Bygg fjárfesti þó í Flugleiðum á eigin forsendum. Oddaflug er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar, eiganda Byko, og Hannesar Smárasonar, aðstoðarforstjóra Ís- lenskrar erfðagreiningar. Gunnar Þorláksson, annar eig- enda Bygg, segir að félagið líti á þessi hlutabréfakaup sem lang- tímafjárfestingu. Hann segir að Bygg hafi aðallega verið í bygg- ingastarfsemi, en fjárfestingar fyr- ir utan byggingageirann séu þó engin nýlunda fyrir félagið. Það hafi áður farið út í slíkar fjárfest- ingar, en þó ekki jafnstórar og nú. Saxhóll og Bygg kaupa í Flugleiðum                     !  "# $        "%   "&$'()* !   +     +  ,     *   - /. 0. !' '         -*     '  '. *11" BALDUR Guðnason, framkvæmdastjóri og eigandi fjárfesting- arfélagsins Sjafnar hf. á Akureyri og stjórn- armaður í Hf. Eim- skipafélagi Íslands, hefur verið ráðinn for- stjóri Hf. Eimskipa- félags Íslands. Er- lendur Hjaltason, framkvæmdastjóri fé- lagsins, mun láta af störfum að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu félagsins. Erlend- ur vildi ekkert tjá sig um starfslokin þegar Morgunblaðið leitaði til hans. Baldur Guðnason segir að sér lít- ist vel á hinn nýja vettvang og hann komi af fullum krafti til starfa. Hann segir að ráðningu sína hafi borið brátt að, hún hafi verið ákveð- in í lok síðustu viku og um helgina. Í tilkynningu frá Eimskipafélag- inu segir að Baldur muni þegar í stað láta af framkvæmdastjórn Sjafnar, og láta af öllum afskiptum við tengd félög, þar með talið hætta stjórnarformennsku í Ingvari Helgasyni hf. og Hans Petersen hf. Baldur mun hins vegar sitja áfram í stjórn Sölumiðstöðvar hraðfrysti- húsanna og í háskólaráði Háskólans á Akureyri. Hann mun áfram eiga hlut sinn í Sjöfn en ekki hafa af- skipti af daglegum rekstri. Baldur hefur langa reynslu af flutninga- starfsemi en hann vann um árabil hjá Samskipum. „Ég var tæp 15 ár í flutninga- starfsemi og þar af 7–8 ár erlendis. Eftir að maður hefur einu sinni verið í flutningum, slær flutningahjartað alltaf,“ segir Baldur Guðnason. Baldur segir að sitt fyrsta verk hjá Eim- skipum hafi verið að taka formlega við starfinu og fara yfir mál með Erlendi Hjaltasyni fráfarandi framkvæmdastjóra, og setja sig inn í rekstur félagsins með lykilstjórnendum og starfsmönnum. „Svo er framundan að vinna mark- visst með stjórnendum og fagfólki að okkar markmiðum,“ segir Bald- ur. Markmið Eimskipafélags Íslands er að heimamarkaður verði áfram Ísland og Norðuratlantshafið en að félagið efli flutningastarfsemi er- lendis m.a í Eystrasaltslöndunum, Norðursjónum og við Miðjarð- arhafið. Baldur segir bestu tæki- færi félagsins vera erlendis. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands fyrir áramót 2005/2006. Baldur Guðnason nýr forstjóri Eimskips Baldur Guðnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.