Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 17

Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 17 Þú segir í grein þinni að nútíma- hugtakið alþjóðasamfélag berg- máli í reynd heimsvalda- og ný- lendustefnu fyrri tíma. Hvernig rökstyðurðu þessa skoðun? Ég er aðallega með hugann við það sem tekur við í kjölfar hern- aðaríhlutana „alþjóðasamfélagsins“, en það er orðið að tísku- og fegr- unaryrði yfir þau ríki, sem fara með forræði í alþjóðamálum. Komið hef- ur verið upp víðtæku, en losaralegu, alþjóðlegu stjórnkerfi á þessum svæðum. Markmiðið er að stuðla að „þjóðaruppbyggingu“ og sjá um „friðargæslu“, með þátttöku ein- stakra ríkja undir forystu stórvelda, eins og Bandaríkjanna, al- þjóðastofnana og ríkjasambanda, eins og Sameinuðu þjóðanna, NATO, ESB, ÖSE og „frjálsra“ fé- lagasamtaka. Markmiðið er vissulega ekki að afla sér nýlendna til frambúðar, en hugtakið óformlegt heimsveldi var þegar komið til sögunnar á „blóma- tíma“ breskrar heimsvaldastefnu um miðja 19. öldina. Valdaumboðið er réttlætt í nafni lýðræðisvæðingar og efnahags- uppbyggingar, en mun minni áhersla lögð á réttinn til sjálfs- stjórnar og fullveldis, sem eru þó enn grunnþættir í vestrænu stjórn- arfari. Formið á þessari stjórn og sú orðræða, sem liggur henni til grundvallar, eru sem end- urómur af öðrum tíma. Sífellt er verið að klifa á því, að „heimamenn“ séu ekki „reiðubúnir“ til að stjórna sér sjálfir; þeim er líkt við börn sem þurfi á föðurlegri leið- sögn að halda. Þeim er gert að standast kröfur um stjórnarhætti, sem þróuðustu lýðræðisríki uppfylla ekki einu sinni. Og agatæki þessa kerfis er efnahags- valdið. Ég tel, að það standist ekki alþjóðalög, að fulltrúar alþjóðastofnana og ríkja geti hreiðrað um sig í ríkjum eða „verndarsvæðum“ svo að árum skiptir án skýrs þjóðréttarlegs umboðs eða samþykkis þeirra sem þar búa. Ég er því ósammála sagnfræðingum eins og Niall Ferguson sem ræða um nauðsyn hins „frjálslynda heimsveldis“ (liberal Empire). Þeir líta saknaðaraugum til breska heimsveldisins, vilja að Bandaríkjamenn taki óhikað við þessu hlutverki, en leiða kerfisbundið hjá sér hina neikvæðu þætti. Þú gagnrýnir stjórn SÞ í Kosovo, segir að hún hafi komið fram sem nýlendustjórn [neo-colonial power] gagnvart heimamönnum. Hvernig þá? Ég tel, að Sameinuðu þjóðirnar hafi staðið illa að málum í Kosovo. Komið hefur verið upp bákni undir þeirra stjórn með undirstoðum eins og ESB, sem þó er í litlum tengslum við heimastöðvarnar í Brüssel, og ÖSE, sem á að sjá um „lýðræðisvæðingu“. NATO fer síðan með öryggisgæslu. Þrátt fyrir yfirlýst markmið um að færa völdin til Kosovo-búa hafa fulltrúar „al- þjóðasamfélagsins“ öll ráð í hendi sér. Þingkosningar í Kosovo hafa því þjónað takmörkuðum tilgangi. Í stað lýðræðisvæðingar í þessu samhengi væri nær að tala um „milda ný-nýlendustefnu“. Mörkuð hefur verið stefna, sem oft og tíðum á lítið skylt við raunveruleikann, en þjónar pólitískum rétt- hugsunarmarkmiðum. Nefna má þá ofuráherslu, sem lögð hefur verið á að koma á „fjöl- menningarþjóðfélagi“ í Kosovo, þótt rúmlega 90% íbúanna hafi í langan tíma verið Albanar, eða fá þá Serba sem hröktust þaðan eftir stríðið 1999 til baka. Allir vita, að örfáir hafa gert það eða vilja það af örygg- isástæðum og vegna þess, að engin atvinnutækifæri er að finna, auk þess sem þeir eru ekki lengur yf- irstétt í Kosovo heldur minni- hlutahópur. Vitaskuld er ekki unnt að skella allri skuldinni á Sameinuðu þjóð- irnar; Evrópusambandið og Banda- ríkjamenn ráða þar mestu á bak við tjöldin og bera því mikla ábyrgð. En það breytir því ekki, að þangað hef- ur stundum verið sent óhæft fólk til stjórnunarstarfa á vegum Samein- uðu þjóðanna eins og núverandi landsstjóri í Kosovo, Harri Holkeri, er dæmi um. Hvernig á til dæmis að túlka það, að sendir eru lög- reglumenn frá verstu einræð- isríkjum til að „kenna“ Kosovo- búum lögreglustörf? Í síðasta mán- uði kom til innbyrðis átaka milli alþjóðlega lögregluliðsins í Mitro- vica, þar sem ástandið er viðkvæm- ast vegna stöðu mála í Írak, með þeim afleiðingum, að þrír létu lífið. Á sama tíma dynur á þeim stöðugur áróður í nýlendustíl um að þeir þurfi að uppfylla strangar gæðakröfur um stjórnarfar. Það er þessi tvískinn- ungur, sem hefur grafið undan trausti á „alþjóða- samfélaginu“ í Kosovo. Hversu stór hluti vandans er fólginn í því að SÞ og stórveldin vilja helst ekki takast á við spurninguna um sjálfstæði til handa Kosovo? Ég tel, að í því felist kjarni málsins. Stórveldin hafa ekki haft kjark til þess að finna lausn á framtíðarskipan mála í Kosovo. Og það sem dregur úr trúverðugleik- anum er að alls kyns aðrar ástæður eru nefndar til að breiða yfir þá staðreynd. Þar vegur þyngst sú stefna sem beið skipbrot í mars, þegar upp úr sauð ( „Stand- ards before status“): að ekki sé unnt að ræða framtíðina án þess að ákveðnum stjórnarfarsmarkmiðum sé náð. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sá ástæðu til þess fyr- ir skömmu að staðfesta þessa stefnu og dró þar með engan lærdóm af þeim róstum sem þá urðu. Ég hef ávallt verið þeirrar skoðunar, að þetta sé pólitískt tæki til að fresta ákvörðun um framtíðarskipan Kosovo. [...] Nú er ástandið þannig að Kosovo-búar hafa ekkert ríkisfang; alþjóðaflugvöllurinn var til skamms tíma kenndur við Ísland! Vegabréfin eru gefin út í nafni Sameinuðu þjóðanna. Og formlega séð er Kosovo hluti af Serbíu og Svartfjallalandi, sem er arftaki hins svo- kallaða „Sambandslýðveldisins Júgóslavíu“ (land- fræðilegs skáldskapar, sem kom til sögunnar eftir að Króatía, Slóvenía og Bosnía sögðu skilið við Júgó- slavíu), þótt ekkert stjórnarsamband sé þar á milli. Þetta gengur augljóslega ekki upp: Það er vonlaust að byggja upp samfélag eða efnahagslíf án ríkisfangs. Og það er óverjandi að taka ekki á þjóðréttarlegum spurningum í fimm ár vegna þess, að það hentar ekki „alþjóðasamfélaginu“ af landfræði-pólitískum ástæð- um. Spurt og svarað | Valur Ingimundarson SÞ hafa staðið illa að málum í Kosovo Valur Ingimundarson, dósent við Háskóla Íslands, fjallar í grein í rit- gerðasafninu Topographies of Globalization: Politics, Culture, Language, sem nú er nýkomið út, um Kosovo og þann vanda sem þar steðjar að. Set- ur hann hlutina m.a. í samhengi við frjóa umræðu um heimsvaldastefnu vorra tíma og gagnrýnir þá stefnu sem ráðandi öfl hafa fylgt. Dr. Valur Ingimundarson ’ [Til Kosovo] hef-ur stundum verið sent óhæft fólk til stjórnunarstarfa á vegum Sameinuðu þjóðanna eins og núverandi lands- stjóri í Kosovo, Harri Holkeri, er dæmi um. ‘ Davíð Logi Sigurðsson david@mbl.is SÖGULEG tíðindi urðu í gær er Massachusetts varð fyrsta sam- bandsríki Bandaríkjanna til þess að leiða í lög hjónaband fólks af sama kyni. Frá og með einni mín- útu eftir miðnætti á sunnudags- kvöld gátu hommar og lesbíur komið í ráðhúsið í borginni Cam- bridge, nálægt Boston, og fengið þar giftingarleyfi. Embættismenn í ríkinu búa sig nú undir hrinu um- sókna samkynhneigðra. Biðröð myndaðist við ráðhús borgarinnar þegar um miðnættið og var hátíðarstemmning á staðn- um. Þúsundir manna fylgdust með atburðunum, að sögn blaðsins The Boston Globe en ekki kom til slagsmála milli stuðningsmanna og andstæðinga enda óeirðalögregla á staðnum. Hæstiréttur vísaði frá áfrýjun Hæstiréttur Massachusetts felldi í nóvember sl. úr gildi bann um að samkynhneigðir gætu geng- ið í hjónaband. Hæstiréttur í Washington neitaði á föstudag að taka til greina beiðni andstæðinga hjónabanda samkynhneigðra um áfrýjun. Andstæðingar hjónabanda sam- kynhneigðra í Massachusetts hafa samt ekki gefist upp. Samþykktur var eftir mikið stapp á þinginu við- auki við stjórnarskrá sam- bandsríkisins í lok mars þar sem staðfest sambúð er leyfð en hjóna- band bannað. Samþykkja þarf stjórnarskrárviðauka tvisvar og loks í þjóðaratkvæðagreiðslu í Massachusetts og gæti hann þá orðið lög í árslok 2006. Ekki er ljóst hvort tveir af hverjum þrem þingmönnum muni greiða atkvæði með breytingunni en aukinn meiri- hluta þarf til að samþykkja stjórn- arskrárbreytingu. Yfir 30 af 50 sambandsríkjum vestra meina samkynhneigðum með lögum að ganga í hjónaband. Repúblikaninn Mitt Romney, rík- isstjóri í Massachusetts, er á móti hjónaböndum samkynhneigðra. Hann segir ennfremur og vitnar þá til laga frá 1913 um að samkyn- hneigð pör frá öðrum sam- bandsríkjum geti ekki komið til Massachusetts og gift sig þar nema þau setjist að í ríkinu. Verð- ur tekist á um túlkun Romneys fyrir dómstólum næstu vikur og mánuði en ráðamenn í nokkrum sveitarfélögum í Massachusetts hafa sagt að þeir muni hunsa túlk- un hans. Gert var ráð fyrir því að dóms- málaráðherrar í Connecticut og Rhode Island myndu í gær segja álit sitt á því hvort hjónabönd samkynhneigðra í Massachusetts væru einnig gild í þessum tveim ríkjum. Starfsbróðir þeirra í New York hefur þegar gefið í skyn að hann telji þau vera gild þar en George E. Pataki ríkisstjóri er ósammála ráðherranum. Nokkrar bandarískar borgir, þ. á m. í Kali- forníu, hafa þegar leyft samkyn- hneigðum að giftast en lögmæti hjónabandanna er enn óljóst. Reuters Marcia Hams (t.v.) og Susan Shepard fagna því við ráðhús Cambridge- borgar í Massachusetts í gær að hafa orðið fyrsta samkynhneigða parið í ríkinu til að fá leyfi til að ganga í hjónaband. Þær hafa búið saman í 27 ár. Samkynhneigð- ir fá að giftast í Massachusetts Cambridge. AFP. Nú þegar giftingar samkyn- hneigðra hafa verið leyfðar í Massachusetts er gósentíð hjá fyr- irtækjum á sviði brúðkaupsþjón- ustu, skartgripaverslunum og hót- elum. Eru þau strax farin að auglýsa grimmt þar sem þau höfða til samkynhneigðra para, að því er fram kemur í The New York Times. Búist er við því að eyðsla sem fylgir brúðkaupum aukist gríð- arlega næstu tvö árin í Massachus- etts en meira en 17 þúsund samkyn- hneigð pör í sambúð búa í ríkinu. Þá hafa stórar verslanakeðjur tekið þátt í keppninni um viðskipti við samkynhneigð pör. Hin þekkta verslun Bloomingdales hélt til að mynda brúðkaupssýningu í Boston í apríl sem einungis samkynhneigð pör í giftingarhugleiðingum voru boðin á. Gósentíð í brúðkaups- þjónustu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.