Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 18

Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898- 5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg- arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Agjört línuskautaæði er í gangi í Grindavík eins og sjálfsagt víðar. Eitthvað hafa foreldrar sofnað á verðinum því flest börnin eru á línuskautunum án hjálms. Mikilvægt er að hafa í huga að fleiri börn meiðast vegna þess að þau detta en ekki vegna þess að þau lenda fyrir bíl. Samtaka nú og upp með hjálmana til fimmtán ára aldurs hið minnsta!    Fermingarbörnin eru nýkomin úr ferða- lagi á vegum kirkjunnar en þau söfnuðu fyrir ferðinni í vetur. Farið var á Úlfljóts- vatn en síðan taka við próf. Að þeim loknum er farið í skemmtiferð á vegum skólans. Krakkarnir í 10. bekk fóru einnig í ferðalag en það var í þrjá daga og dvöldu þeir í góðu yfirlæti í Skagafirðinum.    Vetrarstarfi saumahóps Grindavík- urdeildar Rauða kross Íslands lauk á dög- unum. Hópurinn saumar fatnað úr afgöng- um sem fólk merkir sérstaklega og setur í fatagáminn. Hópurinn hefur verið að hitt- ast hálfsmánaðarlega og fer afraksturinn til vinadeildar í Júgóslavíu.    Fjölmenni var á Grindavíkurvelli í fyrra- dag þegar Grindvíkingar tóku á móti Eyja- mönnum í fyrsta leik liðanna á tímabilinu. Nokkur uggur var í stuðningsmönnum heimaliðsins fyrir leikinn en mönnum hefur fundist liðið varla klárt fyrir átökin í sumar og það hefur meðal annars endurspeglast í spám um fall. Á sunnudag skiptust á skin og skúrir, jafnt í veðri sem leik. Meira skin var hjá Eyjamönnum en heimamenn náðu þó jafntefli og þóttust menn góðir með það. Ekki dugði það þó til að ná hrollinum úr stuðningsmönnum.    Meira af íþróttum en kvennalið UMFG í körfuboltanum fær góðan liðstyrk fyrir næsta vetur með tveimur Erlum úr Kefla- vík, Erlu Þorsteinsdóttur og Erlu Reyn- isdóttur, auk þess sem Svandís Sigurð- ardóttir kemur úr ÍS og Örvar Kristjánsson úr Njarðvík er nýr þjálfari. Með þeim stúlk- um sem fyrir eru ætti að verða hægt að gera frábært lið úr þessum efnivið og verð- ur spennandi að fylgjast með næsta vetur. Úr bæjarlífinu GRINDAVÍK EFTIR GARÐAR PÁL VIGNISSON FRÉTTARITARA Vorhátíð Snæfells-bæjar verður hald-in öðru sinni dag- ana 21.–23. maí. Ekki veitir af að njóta vorsins eftir kuldaköst síðustu vikna, segir á heimasíðu bæjarins. Sem fyrr er stefnt á heilbrigða útivist, skemmtilegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna, söng, dansleik og tónleika, góðan mat og menningu. Dagskráin hefst eftir hádegi föstudaginn eftir uppstigningardag og stendur alla helgina, vítt og breitt um bæjarfélagið. Þetta er í annað skipti sem ferðaþjónustuaðilar í Snæfellsbæ leggja í þetta samstillta átak til að vekja athygli á kostum bæj- arfélagsins. Allir sem vilja njóta fjölskylduvænnar helgar í fallegu og afslöpp- uðu umhverfi eru hvattir til að láta sjá sig helgina 21.–23. maí í Snæfellsbæ, þar sem Jökulinn ber við loft, segir á heimasíðunni. Vorhátíð Egilsstaðir | Á dögunum fór Þorsteinn P. Gúst- afsson með hrossin sín í sumarhaga upp í Egilssel. Þar verða hrossin í sum- arbeit og jafnframt notuð til útreiða. Ekki er látið jafnmikið með öll hross; ekki eru nema sárafá þeirra sem fá salíbunu á eðal GMC-trukk árgerð 1942 inn í sumarið. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Á GMC í sumarbeitina Steingrímur Sigfús-son fór hörðumorðum um Davíð Oddsson forsætisráð- herra í þingræðu og sagði: „…og það skal þá standa að Davíð Oddsson sé slík gunga og drusla að hann þori ekki að koma hér og eiga orðastað við mig“. Jón Ingvar Jónsson orti: Á Alþingi valda menn usla og ólmir í forinni busla en oddviti stjórnar sér ekki þar fórnar því Davíð er gunga og drusla. Friðrik Steingrímsson heyrði ummælin norður í Mývatnssveit: Inni á þingi af göflum gekk Grímur sátta tregur. Utan dyra Dabbi hékk druslu- og gungulegur. Ummælin bárust líka Haf- þóri Guðmundssyni, sveit- arstjóra á Djúpavogi: Á Alþingi er stöðugt stríð og stundum kveðið að með þunga. En myndi það ei nálgast níð að nota orðin drusla og gunga? Ummæli á Alþingi pebl@mbl.is Neskaupstaður | Eldsnemma einn morguninn í síðustu viku vöknuðu Norðfirðingar upp við heldur undarlega gesti. Í þorpið voru mættir engir aðrir en Stub- barnir: Dipsi, Tinký Vínkí, Lala og Pó, sem gengu á milli húsa, vöktu íbúa og stubbaknúsuðu þá sem áttu slíkt skilið. Yngstu íbúarnir voru alveg dolfallnir þegar stubbarnir bönk- uðu á hurðar og hófu upp raust sína. Á leikskólalóðinni varð uppi fótur og fit þegar stubbarnir mættu til að heilsa upp á aðdá- endur sína og varla talað um annað það sem eftir lifði dags. Þegar nánar var að gáð kom í ljós að á ferð voru nýstúdentsefni Verkmenntaskóla Austurlands að dimmitera. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal Stubbadans á götunni: Nýstúdentsefni Verkmenntaskóla Austurlands eru gul rauð, græn og blá í ár. Stubbarnir knúsa Norðfirðinga Stúdentsefni SÍLDARÆVINTÝRIÐ, sumarleyfi (Evr- ópufrímerki) og kvenfélag Hringsins verða myndefni á fjórum frímerkjum sem Íslands- póstur gefur út 19. maí. Samkvæmt ákvörðun sambands opinberra póst- rekenda í Evrópu er sum- arleyfi sameiginlegt þema Evrópufrímerkjanna í ár. Íslensku Evrópufrímerkin sýna jöklaferðir á stórum jeppum og hjólreiðamenn á þjóðvegum landsins. Gefin eru út tvö verðgildi, 65 og 90 krónur. Tryggvi T. Tryggvason hannaði frí- merkin. Síldarævintýrinu eru gerð skil á 65 kr. frímerki, sem Örn Smári Gíslason hjá Nonna og Manna/Yddu teiknaði. Hróður Síldarminjasafnsins á Siglufirði hefur borist víða og nú síðast hlaut það hin virtu Micheletti-safnaverðlaun. Íslandspóstur gefur einnig út 100 kr. frí- merki í tilefni af aldarafmæli kvenfélagsins Hringsins, sem Tryggvi T. Tryggvason hannaði. Stofnendur Hringsins voru 46, en nú eru félagskonur 309 talsins og hefur fé- lagið víða komið við í stuðningi við líknar- mál. Hringurinn, síld og sum- arleyfi á frímerkjum BYGGÐASAFN Skagfirðinga, Fornleifa- vernd ríkisins, Hólaskóli – Háskólinn á Hól- um, Húsafriðunarnefnd og Þjóðminjasafnið hafa á undanförnum misserum unnið að gerð námsefnis fyrir staðarverði. Fyrsta námskeiðið af þessu tagi verður haldið að Hólum í Hjaltadal 21.–24. maí. Í upphafi námskeiðs munu forsvarsmenn ofangreindra stofnana undirrita formlegt samkomulag um menntun staðarvarða. Markmiðið með menntun staðarvarða er að mennta/þjálfa fólk til móttöku gesta á sögu- og menningarstöðum þjóðarinnar, í friðuðum húsum og á öðrum stöðum þar sem menningarminjar er að finna, sem og á söfnum og sýningum sem byggjast á sögu og menningu o.fl. Námskeið fyr- ir staðarverði ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.