Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 20
AKUREYRI
20 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á
æðra skólastigi
Myndlistaskólinn á Akureyri ehf. býður upp á hnitmiðað 39 eininga
nám í sjónlistum veturinn 2004-2005. Námið er skipulagt með
hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og
tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar og
hönnunar.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 24. maí nk.
ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka.
Sérstök inntökunefnd fjallar um umsóknir og ákvarðar um inntöku.
Við inntöku er tekið tillit til fyrra náms og starfsreynslu. Auk þess
eru innsend verk umsækjenda metin af inntökunefnd skólans.
Miðað er við að umsækjandi hafi lokið a.m.k. 104 einingum í
framhaldsskóla eða hliðstæðu námi sem inntökunefnd metur gilt.
Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals
dagana 26. maí til 31. maí, telji hún ástæðu til.
Fagurlistadeild-myndlist.
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem
veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist. Nemendur fá nauðsynlega
þjálfun og tilsögn sem gerir þá hæfari til að takast á við ólík
viðfangsefni og fjölbreyttar aðferðir í listsköpun sinni.
Listhönnunardeild-grafísk hönnun.
Í grafískri hönnun er lögð áhersla á tækniþekkingu og frumlega
framsetningu hugmynda. Á þremur árum öðlast nemendur
yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í faginu sem gerir þá hæfa til að
fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla eða
margmiðlun.
Nemendur útskrifast að loknu þriggja ára námi í sérnámsdeildum
með því að vinna lokaverkefni innan sérgreinarinnar og skrifa
rannsóknarritgerð.
Með prófskírteini fylgir skrá um námsárangur nemenda allan
skólaferilinn ásamt umsögn prófdómara um lokaverkefni.
Námseiningar: 90
Myndlistaskólinn á Akureyri - Kaupvangsstræti 16 - Pósthólf 39 - 602 Akureyri
http://www.myndak.is/ - info@myndak.is
SÉRNÁMSDEILDIR
Umsóknarfrestur um skólavist er til 24. maí 2004.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 462 4958
Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku
nýrra nemenda fyrir skólaárið 2004-2005
KKA Akstursíþróttafélag, sem er
akstursíþróttafélag vélsleða- og vél-
hjólamanna á Norðurlandi, hefur
gefið út kennslubók í akstri mótor-
kross- og torfærumótorhjóla. Þetta
er fyrsta kennslubókin sem gefin er
út um þetta efni. Farið er yfir grund-
vallaratriði í akstri hjólanna, stað-
setningar og beitingu stjórntækja,
fjallað um bremsur, beygjur, stökk
og fleira. Byggt er á reglum Banda-
ríkjamannsins Gary Semics og er í
bókinni fjallað um allar þær 46 reglur
sem hann setti fram varðandi efnið.
Útgáfa bókarinnar er liður í und-
irbúningi að skipulögðum æfingum
KKA á væntanlegu svæði félagsins,
en fram til þess hefur félagið ekki
getið boðið upp á æfingar þar sem
það hefur ekki haft land til umráða
fyrir félagsmenn sína. Þorsteinn
Hjaltason, formaður félagsins, sagði
að það stæði vonandi til bóta. Hann
sagði mikinn áhuga norðan heiða á
þessari íþrótt og félagsmenn væru
um 180 talsins. „Við vonumst til að
geta boðið upp á reglulega æfinga-
tíma í sumar,“ sagði hann.
Andvirði af sölu bókarinnar mun
fara í uppbyggingu á akstursíþrótta-
svæðis félagsins, en það hefur sótt
um að fá land til umráða ofan bæj-
arins. Umhverfisráð bókaði á síðasta
fundi sínum að það gæti ekki orðið
við erindi KKA, en fól umhverfisdeild
að láta deiliskipuleggja svæði milli
Glerár og Hlíðarfjallsvegar, svæði
sem skilgreint er sem íþróttasvæði í
aðalskipulagi auk aðliggjandi svæði
sem tengjast skot- og akstursíþrótt-
um
Þorsteinn sagðist vonast til að fé-
lagið fengi framkvæmdaleyfi á svæð-
inu, þrátt fyrir þessa afgreiðslu. Mik-
ið væri í húfi þar sem félagið myndi
halda Íslandmeistaramót í mótor-
krossi þar 20. júní næstkomandi ef
allt gengi upp. Félaginu hefur þegar
hlotið styrk frá umhverfisráðuneyti
til uppgræðslu á svæðinu, en það var
áður notað til að losa efni úr hús-
grunnum og til malartöku. Svæðið er
umgirt náttúrulegri hljóðmön, þann-
ig að hljóð berst lítið þaðan og þá sést
heldur ekki í það frá veginum. Gert
er ráð fyrir að nánast allur akstur
torfærumótorhjóla færist inn á þetta
svæði með tímanum og að á veturna
muni vélasleðamenn nota það til æf-
ingaaksturs.
Á svæðinu verða brautir fyrir full-
orðna og unglinga sem og hjólreiða-
brautir fyrir börn.
KKA gefur út handbók um akstur torfærumótorhjóla
Vonast til að fá æfingasvæði
Mín jörð, þín jörð | Brúðuleikhús-
sýningin „Mín jörð – þín jörð“ verður
í Samkomuhúsinu á Akureyri í dag,
þriðjudag, 18. maí kl. 17. Um er að
ræða eina af þeim sýningum sem eru
á norrænu barnaleikhúshátíðinni sem
nú stendur yfir í Reykjavík.
Sýningin kemur frá danska brúðu-
leikhúsinu „Teatret Månegøgl“ og
það er leikarinn og rithöfundurinn
Hanne Trolle sem stendur að leikhús-
inu og þessari sýningu. Leikhúsið
hefur sérhæft sig í ljóðrænu og sjón-
rænu leikhúsi með tónlist fyrir börn á
aldrinum 1½–5 ára. Efniviðinn sækir
Hanne í goðsagnir og ævintýri frá öll-
um heiminum.
„Í leiksýningunni Mín jörð – þín
jörð ferðumst við um hnöttinn og hitt-
um fólk, dýr og heyrum tónlist víðs
vegar að úr heiminum. Við sjáum
hvernig fuglar fá liti, hvernig móðir
hafsins sleppur dýrunum lausum,
hvernig stóru dýrin hjálpa lótusblóm-
inu að finna ástina sína, hvernig regn-
ið kemur loksins eftir þurrka og við
sjáum trén vaxa,“ segir í frétt um
sýninguna. Hanne Trolle sækir hug-
myndir í ferðasögur, ævintýri og goð-
sagnir m.a. frá BNA, Grænlandi, Ind-
landi og Afríku.
Sýningin er samvinnuverkefni
Menningardeildar Akureyrarbæjar
og Leikfélags Akureyrar.
Mennt er máttur | Ung vinstri –
græn á Akureyri efna til opins fundar
um menntamál undir yfirskriftinni:
Mennt er máttur. Katrín Jak-
obsdóttir, varaformaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs,
ræðir um samræmd stúdentspróf,
styttingu náms til stúdentsprófs, há-
skólastigið og önnur menntamál á
Café Amour við Ráðhústorg í kvöld,
þriðjudagskvöldið 18. maí kl. 20.
MIKIL eftirvænting ríkti við
Listasafnið á Akureyri áður en
sýning á Kenjunum eftir Goya var
opnuð þar um helgina. Biðröð
myndaðist við safnið og var mikil
stemning í röðinni. Enda ekki á
hverjum degi sem eitt frægasta
listaverk eins frægasta listamanns
heimslistasögunnar er sýnt norðan
heiða, raunar er þetta í fyrsta sinn
sem Goya er sýndur á Íslandi.
Sýningin kemur frá hinu Kon-
unglega svartlistasafni Spánar,
Calcografía Nacional í Madríd, og
er hún framlag Akureyrarbæjar
til Listahátíðar í Reykjavík. Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og Javier
Blas, forstöðumaður Svart-
listasafnsins, opnuðu sýninguna.
Spænski flamenco-dansarinn Min-
erva Iglesias lék listir sínar á opn-
uninni og Guðbergur Bergsson rit-
höfundur hélt erindi um
Kenjarnar í Deiglunni á vegum
safnsins.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Biðin borgar sig: Löng biðröð var fyrir utan þegar hleypt var inn á Lista-
safnið á Akureyri á sýningu á Kenjunum eftir Goya.
Biðröð við Listasafnið
ÞAÐ var margt um manninn á
starfsstöðvum Hölds um helgina
en félagið fagnaði þá 30 ára af-
mæli fyrirtækisins. Starfsemi
þess var kynnt, boðið upp á veit-
ingar og skemmtiatriði af ýmsu
tagi, m.a. var Karlakór Eyja-
fjarðar á ferðinni og söng fyrir
gesti, Afabandið lék og Circus
Atlantis með eldlistafólk og trúða
var á ferð og flugi. Þá gafst börn-
um kostur á að reyna ýmiss kon-
ar leiktæki. Nýir bílar voru sýnd-
ir af þessu tilefni og einnig
tjaldvagnar og húsbílar.
Höldur er í hópi stærri fyr-
irtækja á Akureyri, rekur m.a.
Bílaleigu Akureyrar með um 800
bíla í rekstri nú í sumar og eru
útibúin á 10 stöðum á landinu.
Auk bílaleigu er á Akureyri bíla-
sala nýrra og notaðra bíla með
umboð fyrir Heklu og Bernhard,
bifreiðaverkstæði og dekkjaverk-
stæði. Um 85 manns starfa hjá
fyrirtækinu nú en starfsmönnum
mun fjölga þegar líður á sumarið.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Ekki lofthræddur: Þessi ungi mað-
ur stóð sig afar vel í kassaklifri sem
var eitt af þeim atriðum sem boðið
var upp á þegar Höldur hélt upp á
30 ára afmæli sitt um helgina.
Haldið upp á 30 ára afmæli
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Margt um manninn: Fjöldi fólks heimsótti starfsstöðvar Hölds sem fagnaði 30
ára afmæli sínu um helgina. Fólkið kynnti sér starfsemina og þáði veitingar.
Árekstur: Gestum í afmælisveislu
Hölds var boðið upp á að prófa bíl-
beltasleða VÍS, en þar fá menn að
reyna árekstur á 20 km hraða.
Höggið kom Árna og Ingunni, sem
hér prófa sleðann á óvart.
♦♦♦