Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 23
Hólmavík | Tíundu bekkingar á
Hólmavík og Drangsnesi, ásamt for-
eldrum sínum, fögnuðu lokum sam-
ræmdra prófa með sveitaferð í
Bjarnarfjörð. Byrjað var á því að
sigla niður Bjarnarfjarðará á gúm-
bátum. Krakkarnir og hluti foreldr-
anna tóku þátt í siglingunni og þrátt
fyrir að áin sé lygn tókst flestum að
verða hundblautir áður en komið
var aftur að landi. Því næst var farið
í sundlaugina að Laugarhóli, sem
var mun heitari en áin. Þar var hægt
að sletta úr klaufunum og slaka á í
heita pottinum.
Kvöldið endaði svo á grillveislu í
boði foreldrafélagsins, þar sem boð-
ið var upp á gómsætar veitingar og
gosdrykki með. Grillveislan var
haldin í hlöðunni að Svanshóli í
Bjarnarfirði og þar var hægt að ylja
sér við kamínuna meðan regnið
buldi á hlöðuþakinu. Flestir létu
rigninguna þó ekki aftra sér frá því
að fara í hinn sígilda útileik „yfir“ og
var mikil harka á milli liðanna sem
voru kynskipt. Krakkarnir voru svo
leystir út með lukkupökkum áður en
haldið var heim á leið laust fyrir
miðnætti.
Sveitaferð í lok
samræmdra prófa
Morgunblaðið/Kristín Sigurrós
Á Bjarnarfjarðará: Þær stóðu sig eins og hetjur; Jensína Pálsdóttir, Ingi-
björg Sigurðardóttir, Sólrún Jónsdóttir og Hafdís Gunnarsdóttir.
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 23
Húsavík | Á undanförnum árum hef-
ur áhugi almennings á gönguferðum
aukist til muna og hefur Ferðafélag
Húsavíkur komið til móts við þann
áhuga með fjölbreyttu framboði
slíkra ferða. Undanfarin sumur hefur
félagið skipulagt nokkrar gönguferð-
ir og endurvakið þannig þennan þátt í
starfseminni sem hafði fallið niður í
nokkur ár vegna þátttökuleysis.
„Við fjölgum ferðum frá fyrra
sumri og reynum einnig að höfða til
mismunandi áhugahópa þannig að
allir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi,“ segir Tryggvi Finnsson,
formaður ferðanefndar félagsins.
Ferðir á vegum Ferðafélags Húsa-
víkur eru öllum opnar, félagsmönn-
um sem öðrum, en fjöldatakmarkanir
gilda þar sem það á við.
Þema fyrstu ferðarinnar, sem
verður 20. maí, er fuglaskoðun. „Þá
stefnum við á Melrakkasléttu og
göngum frá Núpskötlu, upp á Rauða-
núp og að Grjótnesi. Þetta eru
kannski 6–7 kílómetrar og afskaplega
skemmtilegt svæði. Við erum með
góða leiðsögumenn í þessari ferð,
Húsvíkinginn Gauk Hjartarson, mik-
inn fuglaáhugamann, og Harald Sig-
urðsson, sem býr á Núpskötlu,“ segir
Tryggvi.
Næsta verkefni er sólstöðuganga
sem verður í nágrenni Húsavíkur 20.
júní. Þar á eftir verður tekist á við
söguna, en 26. júní verður gengið um
heiðarbýli (eyðibýli) á Fljótsheiði,
sem liggur milli Reykjadals og Bárð-
ardals. Þetta verður frekar létt
ganga, en búið er að skipuleggja
gönguferðir næstu árin á þessu svæði
í samráði við Ferðaþjónustuna á
Narfastöðum. Af nógu er að taka að
sögn Tryggva því heiðarbýlin voru
mörg og sagan því mikil á þessum
slóðum.
„Það má segja að þessar fyrstu
ferðir séu upphitun fyrir júlí en þá
skipuleggjum við tvær fjögurra daga
ferðir. Annars vegar frá Kröflu að
Ásbyrgi og hins vegar frá Hóls-
fjöllum niður í Þistilfjörð. Stein-
grímur J. Sigfússon alþingismaður
verður fararstjóri í síðarnefndu ferð-
inni en hún er skipulögð í samráði við
Þistilfirð-inga. Við gerum ráð fyrir
mikilli eftirspurn í báðar þessar ferð-
ir,“ segir Tryggvi.
Skáli reistur í Heilagsdal
Ferðafélagið hefur staðið í skála-
smíði í vetur í samstarfi við trésmiðj-
una Norðurvík á Húsavík. Skálinn
verður fluttur inn í Heilagsdal í sum-
arbyrjun þar sem honum er ætlaður
staður. Heilagsdalur liggur austan
undir Bláfjalli suðaustan Mývatns.
„Þetta svæði er sannkallað æv-
intýraland fyrir gönguferðafólk og
eru uppi hugmyndir um að gera
gönguleið með heppilegum áföngum
frá Herðubreiðarlindum að Mývatni.
Skálinn í Heilagsdal verður góður
áfangi í þessu tilliti,“ segir Tryggvi.
Margar vinnustundir fara í slíka
skálasmíði og ýmislegt eftir þar til
skálinn verður kominn á sinn stað og
tilbúinn til notkunar.
„Við vonum bara að það gangi vel
að flytja skálann og koma honum fyr-
ir, en undirstöðum var komið fyrir
síðastliðið haust. Einhverjar vinnu-
ferðir verða eflaust farnar í sumar, en
aðra helgina í ágúst er skipulögð ferð
í Heilagsdal þar sem dvalið verður í
skálanum og gengið um nágrennið,“
segir Tryggvi.
Um miðjan ágúst er síðan skipu-
lögð ferð á drottningu íslenskra fjalla,
Herðubreið, og dagskrá sumarsins
endar í ágústlok með jeppa- og
gönguferð inn á hálendið.
Aukið framboð
gönguferða vegna
mikils áhuga
Morgunblaðið/Hafþór
Fegurð: Í ferðinni frá Kröflu að Ásbyrgi er m.a. farið um Jökulsárgljúfur.
Stykkishólmur | Þess var minnst með tónleikum í
Stykkishólmskirkju 1. maí að 60 ár eru síðan Lúðra-
sveit Stykkishólms var stofnuð og 40 ár síðan að
lúðrasveitin stóð fyrir því að stofna tónlistarskóla í
Stykkishólmi.
Lúðrasveitin var formlega stofnuð 20. apríl 1944.
Fyrstu framkvæmdastjórn sveitarinnar skipuðu
Víkingur Jóhannsson formaður, Benedikt Lárusson
gjaldkeri og Árni Helgason ritari.
Víkingur var aðalhvatamaður að stofnun sveit-
arinnar og stjórnaði henni í áratugi. Í gögnum má
sjá að félagar lögðu mikla vinnu og erfiði á sig við að
útvega lúðra og nótur fyrir sveitina og æfa upp
hljóðfæraleikara. Á skömmum tíma var orðin til öfl-
ug lúðrasveit sem hefur sett mikinn svip á menning-
arlíf í Stykkishólmi þau 60 ár sem sveitin hefur
starfað.
9. apríl 1964 var stofnað tónlistarfélag í Stykk-
ishólmi. Forgöngu að stofnun félagsins höfðu fé-
lagar í lúðrasveitinni. Forsvarsmenn sveitarinnar
gerðu sér grein fyrir nauðsyn skólans til að viðhalda
lúðrasveitinni. Fyrsti skólastjóri Tónlistarskólans
og jafnframt eini kennari skólans fyrstu árin var
Víkingur Jóhannsson. Árið 1975 tók Stykkishólms-
bær við rekstri skólans og hefur annast rekstur
hans síðan. Skólinn hefur dafnað og vaxið á sínum
40 árum og í dag hefur nemendafjöldinn aldrei verið
meiri eða um 130 nemendur. Auk Víkings hafa
stjórnað skólanum Arne Björhei, Daði Þór Einars-
son, Ingibjörg Þorsteinsdóttir og Sigrún Jónsdóttir,
sem er núverandi skólastjóri.
Eftir að tónlistarskólinn tók til starfa hefur lúðra-
sveitin verið hluti af starfsemi skólans. Með lúðra-
sveitinni á tónleikunum léku með tveir af stofnfélög-
um sveitarinnar, þeir Benedikt Lárusson og Bjarni
Lárentínusson og sýndu að þeir höfðu engu gleymt.
Afmælishátíðin í Stykkishólmskirkju var vel sótt
og á eftir var tónleikagestum boðið til veislu sem
Tónlistarskólinn og Verkalýðsfélagið stóðu að.
Lúðrasveitin 60 ára og Tónlistarskólinn 40 ára
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Afmæli: Lúðrasveit Stykkishólms á tónleikunum. Stjórnandi sveitarinnar er
norskur, Martin Markvoll. Gamlir félagar mættu og léku með lúðrasveitinni.
Heiðursmenn: Stofnfélagar og heiðursfélagar lúðrasveitarinnar voru
heiðraðir í tilefni af 60 ára afmæli sveitarinnar: Bjarni Lárusson, Hannes
Gunnarsson, Benedikt Lárusson, Skúli Bjarnason og Bjarni Lárentínusson.
Reykholt | Fyrir skömmu var hald-
in fjölskylduskemmtun í Logalandi í
Borgarfirði á vegum leikdeildar
Ungmennafélags Reykdæla.
Atriði voru af ýmsu tagi. Guðrún
Benný Finnbogadóttir var kynnir og
flutti gamanmál. Nemendur tónlist-
arskólans léku á flautur og nokkrir
félagar úr leikdeildinni sýndu leik-
þátt Sólrúnar Konráðsdóttur um
mismun á málfari eldri kynslóða og
unglinga. Kristleifur Jónsson kenndi
mönnum að biðja sér konu og Þor-
valdur Jónsson sýndi bændum ým-
islegt um gæðastýringuna í sauð-
fjárrækt. Síðan fór fram keppni í að
sýna undarlegheit. Kristrún Svein-
björnsdóttir bar sigur úr býtum fyr-
ir að blása upp á sér hálsinn á undra-
verðan hátt. Nemendur úr
Kleppjárnsreykjaskóla sýndu dans
undir leiðsögn Evu Karenar Þórð-
ardóttur.
Á fjölskyldudansleik léku skóla-
hljómsveitin Hugo og síðan hljóm-
sveitin Frost sem fræg var í Borg-
arfirði og víðar í kringum 1980.
Málfar kynslóðanna: Linda Pálsdóttir
og Sigríður Harðardóttir í leikþætti.
Fjör á fjölskyldu-
skemmtun
Morgunblaðið/Lára Kristín