Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 26
LISTIR
26 ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
TEXTI óperunnar Carmen er
gerður af Henry Meilhac og Ludovic
Halévy og er byggður á skáldsögu
eftir Prosper Mérimée. Það gekk
ekki þrautalaust hjá George Bizet
(1838–1875) að koma Carmen á fjal-
irnar og í raun gekk allt á afturfót-
unum. Þegar árið 1873 var byrjað að
leita eftir söngkonu í aðalhlutverkið
þótt tónlistin væri ekki tilbúin. Marg-
ar söngkonur höfnuðu hlutverkinu
því Carmen væri of spillt og það tók
heila fimm mánuði að finna söngkon-
una og var það harla óvenjulegt á
þessum tíma. Óperustjóri Opéra-
Comique var opinberlega andsnúinn
verkinu og óttaðist um orðstír húss-
ins því fólki fannst Carmen sam-
viskulaus. Mótlætið gekk svo langt
að á frumsýningardaginn 3. mars
1875 voru aðvaranir í blöðum Parísar
sem sameinuðust um að rægja óp-
eruna fyrirfram fyrir klám, ófrum-
lega og ódramatíska tónlist sem væri
án fallegra laglína. Síðar drógu
nokkrir gagnrýnendur þessi ummæli
sín til baka meðan aðrir könnuðust
ekki við fyrri ummæli sín.
Sú Carmen sem frumflutt var í
París var gamanópera með töluðum
samtölum. Óperan var síðan endur-
samin sem stór ópera með recitatív-
um eftir Guiraud fyrir frumsýn-
inguna í Vín og það var þá fyrst sem
hún sló í gegn og það er sú gerð óp-
erunnar sem er þekkt og notuð í dag
en Bizet upplifði aldrei þessa vel-
gengni þar sem hann dó þremur
mánuðum eftir frumsýninguna í Par-
ís.
Uppfærsla Íslensku óperunnar og
Óperustúdíós Austurlands í Kirkju-
og menningarmiðstöðinni á Eskifirði
14. maí var stytt og einfölduð útgáfa
óperunnar. Svona stór ópera sem
þarf stórt svið, fjórar sviðsmyndir,
stóra hljómsveit, barnahóp, kór og
tíu einsöngvara auk allra annarra er
að sýningu koma er rándýr í upp-
færslu. Til að gefa fólki kost á að
heyra þessa fallegu tónlist oftar í
leikinni útgáfu er víða valin sú leið að
stytta óperur og einfalda. Það voru
þeir Kári Halldór leikstjóri og Kurt
Kopecky sem unnu þessa gerð fyrir
Íslensku óperuna og það verður að
segjast að þeim hefur tekist vel til.
Söguþráðurinn heldur sér og það
vantar ekkert sem skiptir máli í leik
eða tónlist.
Í stað hljómsveitarinnar var notað
eitt píanó og var það Kurt tónlistar-
stjóri sem sá um píanóleikinn og
stjórnaði sýningunni, hann fékk til
liðs við sig Jón Guðmundsson flautu-
leikara sem átti nokkrar vel leiknar
strófur, Ralph Eickhoff trompetleik-
ara og Charles Ross sem átti lítið
slagverkshlutverk. Sviðsmyndin var
lítil sem engin og í raun sniðug lausn
miðað við aðstæður, aðeins tjald sem
hékk í bakgrunni og á það varpað
mynd af umhverfinu sem hver þáttur
átti að gerast í. Kór kirkjunnar sem
var notaður sem svið í þessu tilfelli er
stór og nýtist því vel sem lítið svið
með góðu aðgengi frá báðum hliðum
og ásamt útsjónarsemi leikstjórans
nýttist aðstaðan mjög vel og hljóm-
burður hússins er virkilega góður.
Kórinn (17) var mjög góður, hann
var á sviðinu að heita má alla sýn-
inguna enda í mörgum hlutverkum.
Þau Hulda Björk Garðarsdóttir,
Sesselja Kristjánsdóttir og Jóhann
Friðgeir Valdimarsson voru í feikn-
arlega fínu formi og áttu stórkost-
lega gott kvöld. Sesselja var góð Car-
men, undirförul og tælandi í senn.
Don José var vel sunginn og túlkaður
af Jóhanni og hin saklausa Micaela
var stórkostleg í túlkun Huldu
Bjarkar. Sem fyrr segir voru þau
þrjú virkilega góð, áttu góðan sam-
leik og samsöng og fóru á kostum í
hlutverkum sínum. Hin fræga aría
nautabanans Escamillo var vel sung-
in hjá Keith Reed sem einnig átti
góðan leik en átti annars eitthvað
erfitt með röddina. Þær Þóra Guð-
mundsdóttir og Margrét Lára Þór-
arinsdóttir stóðu sig vel í hlutverkum
Frasquitu og Mercedes.
Hraði sýningarinnar var góður og
undir öruggri stjórn Kurts Kopecky
sem stjórnaði frá flyglinum staðsett-
um til hliðar og aftarlega á sviðinu.
Öll tæknivinna var leyst á einfaldan
en árangursríkan hátt. Íslenska
óperan á gott starfsfólk sem kann að
gera mýflugu úr úlfalda og félagarnir
í Óperustúdíóinu fyrir austan eru
líka vanir snillingar í að leysa hnúta
og gera mikið úr litlu. Ég vil óska öll-
um aðstandendum sýningarinnar til
hamingju og vonandi á svipað sam-
starf eftir að halda áfram og ekki
þarf að kvarta undan áhugaleysi
áhorfenda og synd að aðeins hafi ver-
ið þessi eina sýning á landinu á góðri
og lifandi uppfærslu.
Hrífandi Carmen
TÓNLIST
Kirkju- og menningarmiðstöðin
á Eskifirði. Íslenska óperan og
Óperustúdíó Austurlands
Óperan Carmen eftir Bizet. Sesselja
Kristjánsdóttir (Carmen), Jóhann Frið-
geir Valdimarsson (Don José), Hulda
Björk Garðarsdóttir (Michaela), Keith
Reed (Escamillo), Þóra Guðmannsdóttir
(Frasquita), Margrét Lára Þórarinsdóttir
(Mercedes). Kór Óperustúdíós Austur-
lands. Leikmynd Geir Óttarr Geirsson.
Búningar Hildur Hinriksdóttir, Moham-
med Zahawi og Kristrún Jónsdóttir. Lýs-
ing Jóhann Bjarni Pálmason. Förðun Sig-
ríður Filippía Erlendsdóttir. Hárgreiðsla
Hólmfríður Kristinsdóttir. Íslensk þýðing
skjátexta Þorsteinn Valdimarsson og
Guðrún Drífa Kristinsdóttir. Textastjórn-
un Unnar Geir Unnarsson. Leikstjóri Kári
Halldór. Kórstjóri Keith Reed. Hljómsveit-
arstjóri Kurt Kopecky. Föstudaginn 14.
maí kl. 20.00.
CARMEN
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
„Sesselja Kristjánsdóttir var góð Carmen, undirförul og tælandi í senn.“
Jón Ólafur Sigurðsson
Söngskólinn í Reykjavík
Lára Bryndís Eggertsdóttir sópr-
ansöngkona og Kristinn Örn Krist-
insson píanóleikari halda einsöngs-
tónleika í
Langholtskirkju
kl. 20 í kvöld,
þriðjudagskvöld.
Lára Bryndís
þreytir nú í vor
burtfararpróf frá
Söngskólanum í
Reykjavík og eru
tónleikarnir liður
í því. Auk þeirra
koma fram hljóð-
færaleikararnir
Jón Stefánsson orgelleikari og Eirík-
ur Örn Pálsson trompetleikari og
söngkonurnar Svafa Þórhallsdóttir
sópran og Dóra Steinunn Ármanns-
dóttir mezzó-sópran.
Á efnisskránni eru m.a. íslenskir
og erlendir ljóðasöngvarar, aríur úr
verkum Händels og Mozarts, aría og
dúett úr Lakmé eftir Léo Delibes,
tríó úr Der Schauspieldirektor eftir
Mozart og að lokum Raddir vorsins
eftir Johann Strauss.
Lára Bryndís Eggertsdóttir lauk 8.
stigi í píanóleik frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík vorið 1998. Þá sneri
hún sér að orgelnámi og lauk 8. stigi á
orgel ásamt kantorsprófi frá Tón-
skóla Þjóðkirkjunnar vorið 2001 og
einleikaraprófi ári síðar, ásamt því að
taka próf við Tónlistarháskólann í
Piteå í Svíþjóð. Ennfremur hefur hún
leikið á fjölmörgum „meist-
aranámskeiðum“ hér heima og er-
lendis. Lára Bryndís hóf söngnám við
Söngskólann í Reykjavík haustið
1999 hjá Ólöfu Kolbrúnu Harð-
ardóttur. Lára lauk 8. stigi í söng síð-
astliðið vor og hefur í vetur stundað
nám til burtfararprófs hjá Ólöfu Kol-
brúnu og Kristni Erni Kristinssyni,
en að auki hefur hún sótt meist-
aranámskeið hjá André Orlowitz,
Kristni Sigmundssyni, Kurt Widmer,
Robin Stapleton og Kiri Te Kanawa.
Í ágúst næstkomandi mun hún
syngja sópranhlutverkið í Gretti,
nýrri óperu Þorkels Sigurbjörns-
sonar, sem verður frumflutt á hátíð
ungra tónlistarmanna í Bayreuth í
Þýskalandi.
Kristinn Örn Kristinsson er kenn-
ari við Söngskólann í Reykjavík.
Tónlistarskóli FÍH,
Rauðagerði 27
Valgerður Jónsdóttir sópr-
ansöngkona heldur burtfarartónleika
sína frá sígildri braut Tónlistarskóla
FÍH kl. 20 í
kvöld, þriðju-
dagskvöld. Pí-
anóleikari er
Svana Víkings-
dóttir. Flutt
verður tónlist úr
ýmsum áttum,
m.a. aríur eftir
Mozart, Verdi og
Händel, þýsk ljóð
sem og sönglög
eftir íslenska
sem erlenda höfunda. Þá verður
frumflutt lag Valgerðar við ljóð Dav-
íðs Stefánssonar Haust. Harpa Þor-
valdsdóttir syngur dúett með Val-
gerði og leikur á píanó í laginu.
Árið 1997 hóf Valgerður nám við
tónmenntakennaradeild Tónlistar-
skólans í Reykjavík. Þá hafði hún ver-
ið í einkatímum í söng hjá Elísabetu
Erlingsdóttur í nokkra mánuði. Val-
gerður lauk tónmenntakennaraprófi
árið 2000 en hélt áfram námi við
söngdeild Tónlistarskólans í Reykja-
vík, þar til hún lauk 6. stigi árið 2001.
Söngkennari hennar við skólann var
Rut Magnússon. Árið 2002 innritaðist
Valgerður í söngnám á sígildri braut
FÍH og hafa kennarar hennar þar
verið Björk Jónsdóttir, Svana Vík-
ingsdóttir og Skarphéðinn Þór Hjart-
arson. Valgerður starfar sem tón-
menntakennari á leikskólanum
Grænuborg frá árinu 2000.
Burtfarar-
prófstónleikar
Valgerður
Jónsdóttir
Lára Bryndís
Eggertsdóttir
SEINT verður góð vísa of oft
kveðin, og á það í tónsögunni sér-
staklega við frönsku 15. aldar ball-
öðuna um vopnaða manninn,
„L’homme armé“, sem virðist hafa
orðið kirkjutónskáldum endur-
reisnar hálfgerð idée fixe miðað
við þann messugrúa sem notaði
lagið í cantus firmus-uppistöðu.
Þrátt fyrir frekar ógnvæna texta-
tilvísun sem minnt gæti á draum-
vísur Sturlungu fyrir bardaga, líkt
og „Kár kalla mik, / emk kominn
heðra / heim at skelfa / ok hugi
manna“. En ugglaust um leið tím-
anna tákn fyrir hina skörpu skálm-
öld Hundrað ára stríðsins.
Og enn lætur karl á sér kræla.
Ekki eru nema rúm tvö ár síðan
samnefnt verk Eriks Mogensens
var landsfrumflutt á Myrkum mús-
íkdögum; sennilega fyrsta hér-
lenda dæmið um þessa sögufrægu
paródíunotkun. Á miðvikudag
heyrðist síðan enskt verk af sama
meiði í fyrsta sinn á Fróni eftir
velska djassistann Karl Jenkins (f.
1944). Jenkins mun fyrrum kunn-
astur fyrir þáttöku sína í sveitum
eins og Nucleus og Soft Machine,
en hefur í seinni tíð samið mörg
pöntunarverk, þ.á m. umrædda
messu fyrir Konunglega brezka
vopnasafnið í tilefni þúsaldamót-
anna, tileinkaða fórnarlömbum
borgarastríðsins í Kosovo.
Tvennt kom svolítið kyndugt
fyrir sjónir og vakti ósvaraðar
spurningar. Úr því verið var að
frumflytja verkið hér á landi,
hvers vegna þá ekki verkið allt?
Skv. tónleikaskrá vantaði heilan
fjórðung, en hvort þar hafi dottið
út Gloria og Credo, eða einhverjir
frjálsir kaflar, kom ekki fram,
hvað þá hvort valdið hafi skortur á
æfingatíma. Né heldur var til-
greind upphafleg áhöfn, aðeins að
stjórnandinn hefði útsett verkið
fyrir sex manna hljómsveit. Fyrir
jafnóþekkt verk hér um slóðir
þætti manni því farið af nokkurri
léttúð, en væntanlega þó með fullu
leyfi höfundar.
Að því frátöldu kom messan að
mestu gleðilega á óvart. Stíllinn
var alþýðlegur, að maður segi ekki
poppaður, og gat ásamt ávæningi
sínum af mínímalisma stundum
leitt hugann að e.k. samblandi af
nútímavæddum Orff og Misa
Criolla Aríels Ramirez. Að ekki sé
talað um fjörkálf eins og Karl
Gruber af „Frankenstein“-frægð,
eða mér enn ókunna höfundinn að
rytmíska Dies Irae-kórþættinum
sem (af öllum stöðum) mátti heyra
í einni Ríkissjónvarpsepísóðunni af
Strandvörðum Hasselhoffs fyrir
rúmum tíu árum. Vannst hér gizka
mikið úr litlu. Samt sem áður fór
seiðandi dansinn nærri barmi hins
banala aldrei yfir strikið, og þrátt
fyrir fjölda frumítrekana hélt
Jenkins jafnan athygli með slyng-
um frávikum í tæka tíð.
Frumraun hins nýstofnaða VÍS-
kórs, sem á sér ekki amalegri bak-
hjarl en Vátryggingarfélag Ís-
lands, má óhætt segja að hafi tek-
izt vonum framar. Kórinn var
upplitsdjarfur og ferskur, og sam-
hljómurinn furðuheilsteyptur þrátt
fyrir nokkra karlafæð. Einsöngv-
ararnir meðal kórfélaga skiluðu
sínu með sóma, sem og atvinnu-
hljóðfæraleikararnir, og að svo
miklu leyti sem metið verður án
viðmiðunar virtist áhafnarsam-
dráttur stjórnandans gefa góða
hugmynd um upphaflega mynd
verksins. Öllu var tekið með fögn-
uði og vel það, enda taldi fjöl-
mennur áheyrendaskarinn ekki
eftir sér að klappa fyrir hvern ein-
asta þátt.
Vopnuð afturganga
TÓNLIST
Seltjarnarneskirkja
Jenkins: „The Armed Man – A Mass for
Peace“. Árni Áskelsson & Rafn Mar-
teinsson slagverk, Kári Þormar orgel,
Kristjana Helgadóttir flauta/pikkolóf-
lauta, Þorbjörn Sigurðsson hljóðgervill
og Þórunn Ósk Marínósdóttir víóla ásamt
VÍS-kórnum. Stjórnandi: Björn Thor-
arensen. Miðvikudaginn 12. maí kl. 20.
KÓRTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Listasafn Íslands 12.10–12.40
Rakel Pétursdóttir safnfræðingur
verður með leiðsögn um sýninguna
Í nærmynd, bandarísk samtímalist.
K-bygging Landspítalans kl. 13
Jónas Ingólfur Gunnarsson opnar
sýningu á verkum sínum. Sýningin,
sem Jónas kallar „Náttúrubundin
dulúð“, fjallar aðallega um andleg
og efnisleg málefni sem tengjast
náttúru og samfélagi okkar. Jónas
Ingólfur hélt sýningu í K-
byggingunni í fyrra. Hann háði
baráttu við krabbamein og fann
löngu liðna hæfileika í iðjuþjálfun á
þessu tímabili. Sýningunni lýkur
23. maí.
Perú, Kúskó Ingibjörg Böðv-
arsdóttir myndlistarmaður tekur
þátt í samsýningunni „Siete días en
Qosqo“ í Municipalidad Distrital de
Lamay. Á sýningunni eru ljós-
myndir og teikningar: Listamenn-
irnir, sem allir eru búsettir á
Spáni, eru frá Kólumbíu, Perú,
Spáni og Íslandi. Aðrir sýnendur
eru Ana Hernández Revuelta, Ces-
ar Orrico, Felipe Barragán, Héctor
Delgado, Jesús Loayza, Mercedes
Folgural Castaño, Pilar Barrios og
Wilson Rojas. Sýningin stendur til
24. maí.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
ÁRLEGIR vortónleikar Kórs
Hjallakirkju verða í Hjallakirkju
í Kópavogi í kvöld kl. 20.30. Að
venju flytur kórinn blandaða efn-
isskrá þar sem byrjað verður á
kirkjulegum verkum eftir núlif-
andi tónskáld, íslensk og erlend.
Síðan verður haldið yfir í verald-
lega kórtónlist frá ýmsum tíma-
bilum og að lokum verða fluttar
aríur, dúettar og kórar úr söng-
leikjum og óperum.
Einsöngvarar eru úr röðum
kórfélaga, þau Erla Björg Kára-
dóttir sópran, Kristín R. Sigurð-
ardóttir sópran og Gunnar Jóns-
son bassi. Katalin Lörincz leikur
með á píanó og orgel og söng-
stjóri kórsins er Jón Ólafur Sig-
urðsson.
Ný og
gömul verk í
Hjallakirkju
Dagskráin í dag
Kl. 20 Íslenska óperan Tónleikar
í tilefni 30 ára starfsafmælis Guðnýjar
Guðmundsdóttur konsertmeistara.
Kl. 17 Borgarleikhúsið Acte,
leiklestur á frönskum og belgískum leik-
ritum í Borgarleikhúsinu. Fyrri hluti.
Kl. 17 Tónlistarhorn Kringlunn-
ar Tvær flautur og gítar: Guðrún Birg-
isdóttir, Martial Nardeau og Pétur Jón-
asson. Dagskráin er í samstarfi við
Tónlist fyrir alla.
Listahátíð
í Reykjavík
14. – 31. maí
Einhvers konar
ég er komin út í
kilju. Bókin er
sjálfsævisaga
Þráins Bertels-
sonar um fátækt,
geðveiki, einelti,
þunglyndi- og
töframátt lífsins.
Hér segir frá
sjúklingum á Kleppi, stuttri trúlof-
un, eftirminnilegu jólahaldi, skraut-
legri skólagöngu, kynórum, ein-
semd, lífsháska, einstæðum föður
og vægast sagt óvenjulegum upp-
vexti.
Útgefandi er JPV-útgáfa. Bókin er
327 bls., prentuð í Danmörku. Jón
Ásgeir hannaði kápu og Thorstenn
Henn tók ljósmynd af höfundi. Verð:
1.790 kr.
Kilja