Morgunblaðið - 18.05.2004, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.05.2004, Qupperneq 27
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 27 Nú getur þú tryggt þér síðustu sætin í sólina í júní á hreint ótrúlegum kjörum og tryggt þér síðustu sætin til Rimini, þessa vinsæla áfangastaðar. Sumarið er komið á Ítalíu og hér getur þú notið lífsins við frábærar aðstæður og nýtur traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann. Þú bókar ferðina og 3 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð frá kr. 29.995 M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, flug, gisting, skattar. Staðgreiðsluverð, vikuferð. 3. júní. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.400. Verð frá kr. 39.990 M.v. 2 í íbúð/stúdíó, flug, gisting, skattar. 3. júní. Ferðir til og frá flugvelli kr. 2.400. Munið Mastercard ferðaávísunina Stökktu til Rimini 3. júní frá kr. 29.995 FJÁRMÁLARÁÐHERRA landsins, Geir H. Haarde, leggur nú mikið kapp á að ná fram því áhugamáli ríkisstjórnarinnar að forstöðumenn ríkisstofnana geti rekið fólk úr starfi fyrirhafnarlaust. Hugmyndafræðin að baki þessu áhugamáli sem birtist í fyrirhug- aðri lagabreytingu um afnám á grund- vallaratriðum varð- andi starfsöryggi starfsmanna ríkisins er ekki beinlínis í anda nútímalegra við- horfa og vinnubragða. Þvert á móti er verið að hverfa aftur til fortíðar – til þeirra tíma þegar fólk var ekki látið velkjast í vafa um hverjir væru húsbændur og hverjir hjú. Sam- kvæmt frumvarpi ríkisstjórn- arinnar, sem fjármálaráðherra lagði fram í óþökk og undir hörð- um mótmælum allra heildar- samtaka launafólks í landinu, verður nú hægt að reka starfs- menn ríkisins án þess að veita þeim áminningu. Þeim verður ekki gefið tækifæri til að bæta ráð sitt, ef um slíkt er að ræða. Þeim verð- ur meinað að leiðrétta misskilning sem hugsanlega hefur verið kveikjan að ákvörðun um uppsögn. Þá er ekki síður alvarlegt að með fyrirhugaðri lagabreytingu skap- ast hætta á misbeitingu pólitísks valds en eðli málsins samkvæmt eru starfsmenn ríkisins háðir því. Í þessu sambandi vil ég til dæmis vísa til viðkvæmra starfa í réttarkerfinu, starfa á sviðum þar sem deilur hafa verið miklar, svo sem á vettvangi umhverf- ismála, í fjölmiðlum, menntakerfinu og þannig mætti áfram telja. Í þessum fáu línum ætla ég að staldra við einn þátt þessa máls og hann lýtur að við- horfi til starfsmanna. Í stefnuyfirlýsingu sem fjármálaráðuneytið gaf út ár- ið 1996 í tengslum við breytingar á lögum um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna birtist greinileg viðhorfsbreyting frá þeirri hugsun sem áður hafði verið við lýði. Í stað þess að örva starfsfólkið til dáða, stuðla að jákvæðri og upp- byggilegri þátttöku hvers og eins, var nú farið að líta á starfsmann- inn sem tæki. Kveðið var sér- staklega á um að gera þyrfti „rík- isstarfsmönnum betri grein fyrir því til hvers væri ætlast af þeim“. Gagnstætt mun geðfelldari nálgun sem byggði á frumkvæði ein- staklinganna voru þeir nú skil- greindir sem hver önnur tæki í höndum stjórnenda. Og það frum- varp sem nú liggur fyrir þinginu er ógeðfellt framhald af þanka- ganginum gagnvart launafólki frá 1996. Í minnisblaði fjármálaráðu- neytisins sem fulltrúar í efnahags- og viðskiptanefnd þingsins hafa fengið í hendur segir m.a.: „Með frumvarpinu er ennfremur stefnt að sveigjanleika í opinberum rekstri. Þannig að ríkið hafi mögu- leika og tækifæri á að hafa í þjón- ustu sinni þá starfsmenn sem henta hverju sinni.“ Þetta er orða- lag sem menn kannast við frá 1996. Það eru hins vegar tvær leiðir til þess að takast á við breytt starfsumhverfi og tækniþróun. Í fyrsta lagi að stuðla að símenntun og endurmenntun starfsfólks þannig að það geti viðhaldið færni sinni og helst haft frumkvæði til framfara. Og til þess að Geir H. Haarde verði látinn njóta sann- mælis er vert að taka fram að hann hefur hingað til viljað fara þessa leið og stutt uppbyggingu endurmenntunarsjóða. Þess vegna kemur það verulega á óvart að hann vendi nú sínu kvæði í kross og vilji fara hina leiðina sem vissulega er fær til að ná settu marki. Það er einfaldlega að reka fólk sem ekki er sagt duga – líta á það eins og hvert annað dautt verkfæri sem maður einfaldlega fleygir úr verkfærakistunni þegar það þykir ekki henta lengur. Nú- tímalegt verklag mundu vafalaust sumir vilja kalla þessa leið en hún er þvert á móti ekkert annað en ómanneskjulegur draugur úr for- tíðinni. Og hann vilja nú stjórn- völd vekja til lífs á ný. Það er dapurlegt hlutskipti rík- isstjórnarinnar og fjármálaráð- herra að gerast með þessum hætti boðberar afturhaldssamra og forn- eskjulegra stjórnarhátta. Verkfærakista Geirs H. Haarde Ögmundur Jónasson fjallar um hugmyndir fjármálaráðherra ’Það er dapurlegt hlut-skipti ríkisstjórnarinnar og fjármálaráðherra að gerast með þessum hætti boðberar aft- urhaldssamra og forn- eskjulegra stjórn- arhátta.‘ Ögmundur Jónasson Höfundur er formaður BSRB og alþingismaður. AF SÉRSTÖKUM ástæðum er ég að grúska í gömlum blöð- um á Þjóðarbókhlöðunni. Þar rakst ég nýlega á ræðu, sem Halldór Kiljan Laxness flutti á ungmennafélagsmóti í júlí 1937, skömmu eftir stofnun Máls og menningar. Þar kvartaði hann undan því, að hann og aðrir um- bótamenn, sem ættu fullt erindi til almennings, fengju vart komið sjónarmiðum sínum á framfæri, á meðan sérhagsmunamenn, Boge- senarnir, riðu húsum. Orðrétt sagði Kiljan: „En hvernig hefur staðið á því, að einmitt rödd þessara manna skuli hafa endur- ómað um allt, að maður skuli heyra skoðanir þessara manna étnar eftir og tuggðar upp jafn- vel af voluðustu og niðurtröðk- uðustu einstaklingum á afskekkt- ustu stöðum í landinu, meðan við rithöfundarnir, sem teljum okkur talsmenn upplýsingarinnar, náð- um ekki tali af þeim, sem við átt- um erindi við, og urðum að tala fyrir daufum eyrum? Það var vegna þess, að einmitt þessir menn, sérréttindamennirnir í þjóðfélaginu, höfðu þá peninga, sem til þurfti að senda málgögn sín ókeypis inn á hvert einasta heimili í landinu og stjórna þann- ig skoðunum almennings.“ Þetta átti að lagfæra með því að stofna Mál og menningu. Nú hafði Kilj- an alls ekki alltaf rétt fyrir sér, eins og allir vita. En er ekki sannleikskjarni í þessum orðum hans? Til umhugsunar fyrir vinstri-menn Höfundur er prófessor í stjórnmálafræði. Hannes Hólmsteinn Gissurarson FORSETI Íslands er eini embættismaður þjóðarinnar sem hefur umboð sitt frá þjóðinni allri í beinum persónulegum kosningum og þegar hann und- irritar lög þá gerir hann það sem persónugervingur þjóðar- innar. Nú þegar forsetinn tekur afstöðu til þess hvort hann á að undirrita ný fjölmiðlalög frá Al- þingi – eða ekki – þá stendur hann einn. Þetta er ekki öfunds- verð staða. Þótt ýmsir málsmet- andi menn og konur gefi lítið fyrir málskotsrétt forsetans þá má ganga að því vísu að fólkið í landinu telur forsetann hafa þetta vald. Og fólkið skiptir höf- uðmáli í lýðræðisþjóðfélagi. Ef fjölmiðlafrumvarpið verður samþykkt næstu daga þá kemur til kasta forsetans. Ef Ólafur Ragnar Grímsson staðfestir lög- in með undirskrift sinni mun stór hluti þjóðarinnar láta í ljós vonbrigði sín í komandi forseta- kosningum með því að kjósa hann ekki, sitja heima eða skila auðu. Þegar hann síðan sver embættiseið sinn í þriðja skipti, þ. 1. ágúst nk., mun fólkið í land- inu spyrja sig til hvers embættið sé? Tilvist þess verður umdeild- ara en nokkru sinni áður. Ef forsetinn staðfestir hins- vegar ekki fjölmiðlalögin er hann kominn í stríð við ríkis- stjórnina. Þá er komin staða sem ekki hefur fyrr sést á lýðveld- istímanum. Hver verður staða Ólafs Ragnars Grímssonar og embættis forseta Íslands í því uppgjöri sem á eftir fylgir? Miklu máli skiptir hvernig fólkið metur þá stöðu í forsetakosning- unum 26. júní nk. Að mínu mati eru mestar líkur á því að fólkið í landinu fylki sér að baki forset- anum og veiti Ólafi Ragnari Grímssyni ótvírætt meirihluta- umboð til að gegna embætti for- seta Íslands þriðja kjörtímabilið. Hvernig síðan spilast úr stjórn- málakortunum eftir að forseti synjar um staðfestingu er efni í margar greinar. Aðalatriðið er þó, að mínu mati, að með þessari afstöðu for- setans styrkist beint lýðræði á kostnað fulltrúalýðræðis. Í kjöl- farið mun fylgja mesta upp- stokkun í stjórnarfari Íslands frá stofnun lýðveldisins. Það er löngu kominn tími til að fólkið í landinu fái tækifæri til að segja skoðun sína á þjóðmálum milli- liðalaust. Lýðræðið hefur allt of lengi beðið lægri hlut fyrir flokkseigendafélögum sem fara með fólkið eins og skiptimynt í valdapóker. Forsetinn og fólkið í landinu eiga samleið. Hans Kristján Árnason Forsetinn og fólkið Höfundur er stofnandi og fyrrv. stjórnarform. Stöðvar 2. Sjávarútvegs- ráðherra , Árni M. Mathiesen, ætlar að út- rýma dagakerfi smá- báta og verðfella eignir okkar og gera verð- lausar eftir nokkur ár. Við sem eigum daga- báta höfum ályktað undanfarin ár um að setja verði svokallað 23 daga gólf í dagakerfið svo ekki fækki dögum. Í dag eru þeir 19 en voru 23 árið 2002. Landsamband smá- báta hefur farið með þessa kröfu til Árna ár eftir ár en ekkert hefur ver- ið gert. Eins var þetta ár, en þegar um- ræður voru hafnar, heyrast raddir nokkurra manna sem vilja fá kvóta, raddir þeirra sem hafa verið að veiða mest í þessu kerfi undanfarin ár. Þá bregður svo við að Árni býður þeim að velja kvóta en skerðir okkur sem eftir verð- um í dagakerfinu, býð- ur okkur 18 daga með áframhaldandi 10% skerðingu á dögum ár hvert, þó svo að aukn- ing verði á heildarveiði. Og ekki nóg með það heldur á að takmarka vélarstærð og rúllufjölda, ef stækka þarf vél fækkar dögum. Ég vil að almenningur viti þetta og þingmenn sem eiga að fjalla um frumvarpið nú á næstu dögum. Frumvarp þetta verður að lögum nema þingmenn bjargi dagakerfinu með því að setja gólf í dagana. Dagakerfið er sóknarkerfi með fljótandi tölu. Það veiðist vel þegar mikill fiskur er á miðunum en lítið þegar færri fiskar eru á slóðinni og er líka háð gæftum. Engum fiski er hent því það er enginn hvati til þess í sóknarkerfi. Þingmenn, bjargið dagakerfi smábáta Konný Breiðfjörð Leifsdóttir skorar á þingmenn ’Engum fiski er hentþví það er enginn hvati til þess í sóknarkerfi.‘ Konný Breiðfjörð Leifsdóttir Höfundur er dagabátaeigandi. www.bilanaust.is S: 535 9000 16 31 / TA K T ÍK nr .0 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.