Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 33
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 33
✝ Jórunn HelgaÁmundadóttir
fæddist í Bolungar-
vík 2. desember
1920. Hún lést á
Landspítalanum við
Hringbraut 9. maí
síðastliðinn. Sam-
býlismaður hennar
var Bjarni Hermann
Finnbogason, f. 27.
júlí 1920. Foreldrar
hennar voru Ámundi
Halldórsson og
Kristbjörg Jónsdótt-
ir. Systkini hennar
voru Ámundi
Ámundason, f. 1916, d. 1970 og
Jóna Kristín Ámundadóttir, f. 16.
maí 1923, d. 8. apríl 2004. Uppeld-
isbróðir Helgu er Hafsteinn Sig-
urjónsson matsveinn, f. 1940.
Helga giftst Jóhanni Steinþór-
syni, húsgagnasmiði, f. 24. júlí
1916, d. 14. sept. 1957. Börn þeirra
eru: 1) Ragna Vilborg Jóhanns-
dóttir, bókari, f. 21. júlí 1941, maki
Gissur Sæmann Axelsson, vél-
virki/sölumaður, f. 28. júlí 1938.
Börn: a) Eyþór Rafn, kennari, f.
21. mars 1962. b) Vilberg, iðnfræð-
ingur, f. 24. okt. 1964. c) Helga
Rós, master í almennum málvís-
indum, aðst.framkvæmdastjóri hjá
STW í Hollandi, f. 14. ágúst 1970,
maki Jean-Paul Varwijk, f. 6. júní
1966. Börn þeirra; Daníel Ragnar
Helguson Varwijk, f. 25. mars
2001 í Hollandi; Aron Hendrik
Helguson Varwijk f. 5. ágúst 2003
í Hollandi. 2) Hildur Jóhannsdótt-
ir, matartæknir, f. 3. maí 1943,
maki Grétar S. Kristjánsson, raf-
verktaki, f. 17. júní 1938. Börn: a)
Jóhann, ráðgjafi, f. 4. júní 1961,
sambýliskona hans er Erna Sig-
mundsdóttir, verslunareigandi, f.
29. júní 1966. Börn þeirra eru; Ró-
bert Andri, f. 3. nóv. 1999, og Birta
Marín, f. 31. ágúst 2001. Fyrir átti
Jóhann soninn Grétar Þór, nemi, f.
3. júní 1986, og Erna dótturina Ír-
isi Töru, nemi, f. 28. mars 1987. b)
Sigurður Örn, rafvirki, f. 2. maí
1962, kvæntur Ýri Gunnlaugsdótt-
ur, verslunareiganda, f. 15. nóv.
1963. Synir þeirra eru; Tómas
26. okt. 1948, maki Hörður Run-
ólfsson, múrari, f. 23. júlí 1947.
Börn: a) Hanna Rúna, skrifstofu-
maður, f. 3. sept.1969, maki Þórir
Bragason, tölvumaður, f. 28. maí
1961. b) Jóhann Geir, viðskipta-
fræðingur, f. 2. apríl 1976, maki
Auður Antonsdóttir, stuðnings-
fulltrúi, f. 16. apríl 1981. Börn;
Ísak Óli, f. 13. nóv. 1995; Hanna
Kristrún, f. 10. feb. 2003. c) Hjört-
ur, nemi, f. 8. júlí 1978. d) Gunnar
Már, nemi, f. 2. ágúst 1988. 5)
Steinþór Jóhannsson, byggingar-
verktaki, f. 1954, sambýliskona
Monthiya Hoshi, hótelstarfsmað-
ur, f. 1961. Steinþór giftist Guð-
laugu Helgadóttur, sjúkraliða, f.
1952, og fóstraði son hennar
Helga Jónsson, nema, f. 1972, sam-
býliskona hans er Hrönn Þráins-
dóttir, nemi, f. 1976. Steinþór og
Guðlaug slitu samvistum. Með
Guðlaugu eignaðist Steinþór börn-
in: b) Albert Steinþórsson, tré-
smiður, f. 1976, sambýliskona hans
er Hafdís Einarsdóttir, verslunar-
maður, f. 1973 og eiga þau dótt-
urina; Unu Albertsdóttur, f. 1997.
c) Jórunn Helga Steinþórsdóttir,
námsmaður, f. 1980, sambýlismað-
ur Guðjón Elmar Guðjónson, versl-
unarmaður. Áður átti Steinþór a)
Maríu Guðmundsdóttur, tölvu-
starfsmann, f. 1975, með Bryndísi
Hákonardóttur, bankastarfs-
manni, f. 1955. 6) Magnús Már
Kristinsson, iðnfræðingur, f. 23.
nóv. 1958, sambýliskona hans er
Sigrún Grímsdóttir, f. 13. nóv.
1955. Faðir Magnúsar var Kristinn
Ólafur Ólafsson, f. 15. mars 1915,
d. 19. jan. 1992. Sonur Magnúsar
og Ólafar Jónu Guðmundsdóttur,
f. 17. júní 1957, er Kristinn Már
Magnússon, nemi, f. 30. apríl 1982.
Helga ólst upp í Bolungarvík til
15 ára aldurs, flutti þá til Reykja-
víkur og bjó á Ási við Laugaveg
þar til hún fluttist í Kópavog þar
sem hún bjó þar til hún fór á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Helga var
virk í félagsmálum alla sína tíð og
var m.a. formaður Kvenfélags
Kópavogs frá 1978–1980 og var í
orlofsnefnd í alls 19 ár.
Hún starfaði víða. Helst má
nefna Félagheimili Kópavogs og
Kópavogshæli þar sem hún starf-
aði þar til hún lét af störfum 1990.
Útför Helgu fer fram frá Kópa-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 13.30.
Númi, f. 12. jan. 1993,
og Axel Máni, f. 16.
júlí 1995. c) Hildur,
viðskiptafræðingur, f.
6. okt. 1964, sambýlis-
maður hennar er Rík-
harð Ottó Ríkharðs-
son, rekstrarhag-
fræðingur, f. 12. júní
1961. Dóttir þeirra er;
Þórdís Helga, f. 4. des.
2001, en fyrir átti Rík-
harð Ottó soninn Þor-
vald, f. 3. nóv. 1988. d)
Arnar, viðskiptafræð-
ingur, f. 20. feb. 1972,
kvæntur Sigrúnu
Hebu Ómarsdóttur, nema, f. 1. jan.
1972. Börn: Sigurður Örn, f. 8. maí
1991, og Saga Lind, f. 31. jan.
1999. 3) Hlöðver Jóhannsson,
verktaki, f. 2. apríl 1944, kvæntur
Jónínu Jónsdóttur, f. 5. sept. 1946.
Synir Hlöðvers frá fyrra hjóna-
bandi með Elísabetu Þ. Gunn-
laugsdóttur, f. 17. jan. 1947, eru: a)
Gunnlaugur, f. 4. sept. 1965, d. 5.
sept. 1965. b) Jóhann Helgi, for-
stjóri, f. 16. okt. 1966, kvæntur
Margréti Ormsdóttur, f. 5. des.
1972. Börn Jóhanns frá fyrra
hjónabandi með Jónínu A. Sigur-
björnsdóttur, f. 17. apríl 1968, eru;
Elísabet Ögn, f. 2. ágúst 1988; Sig-
urbjörn Hlöðver, f. 1. apríl 1990;
Victor Páll, f. 9. maí 1995, d. 30.
okt. 2003. Synir Margrétar Orms-
dóttur: Almar Yngvi Garðarsson,
f. 15. des. 1992; Daníel Aron Dav-
íðsson, f. 3. des. 1997. c) Kristján,
matreiðslumaður, f. 3. maí 1970,
kvæntur Valgerði Stefánsdóttur,
f. 2. sept. 1974. Sonur þeirra er;
Óliver Adam, f. 4. okt. 1999. Börn
Kristjáns eru: Alexandra, f. 22.
júní 1989; Jakob, f. 23. des. 1991.
d) Heimir Freyr, fæddur andvana
20. mars 1976. e) Gunnlaugur, f. 5.
maí 1981, maki Katrín Einarsdótt-
ir, f. 4. nóv. 1982. Sonur Hlöðvers
frá fyrra sambandi er Haukur, f.
18. sept. 1992. Synir Jónínu: Jón
Örn Þorsteinsson, maki Ólína Þor-
valdsdóttir. Ingvar Björn Þor-
steinsson, maki Sigríður Júl-
íusdóttir. 4) Munda K.
Jóhannsdóttir, skrifstofumaður, f.
Sex barna móðir einstæð og ein-
stök í sinni röð. Kraftur, atorka,
fylgni. Spáð var í bolla, hvort barn
væri í vændum eða bjart yfir næsta
ferðalagi sem viðkomandi færi í.
Kleinur og kökur bakaðar og seld-
ar til búdrýginda. Félagsmála-
manneskja í átthagafélögum Bol-
víkinga og Breiðfirðinga.
Forustumanneskja í Húsmæðraor-
lofi Kópavogs og Kvenfélagi Kópa-
vogs. Vinnusöm með afbrigðum,
stundum á tveim eða þrem stöðum
í einu. Var vinamörg. Bú að Kárs-
nesbraut 4a, Ásbraut 11 og Voga-
tungu 67 í Kópavogi en síðustu ár á
Hrafnistu í Hafnarfirði. Sambýlis-
maður Bjarni Hermann Finnboga-
son. Þakka þér, Hermann minn,
fyrir mildi þína, hlýhug og þolin-
mæði á erfiðum stundum í lífi móð-
ur minnar. Þakka þér, móðir mín,
fyrir allt og allt.
Minninga öldurnar rísa
þær eru stignar
eins og þú
kenndir mér forðum.
Í friðarhöfn
er skip þitt komið.
Minninganna sjó þú siglir nú
í hugum og hjörtum þeirra
sem á hafnarbakkanum
standa.
Þinn sonur,
Steinþór Jóhannsson.
Elsku amma mín, þá er komið að
kveðjustundinni. Ekki bjóst ég við
því þegar við mæðgurnar heimsótt-
um þig nokkrum dögum fyrir and-
lát þitt að svo stutt væri eftir. Síðar
sagði mamma mér að þig hefði
dreymt fyrir þessu og að þú hefðir
alveg vitað hvert stefndi. Þú varst
alltaf mjög næm, þig dreymdi fyrir
því sem koma skyldi eða spáðir fyr-
ir því í bolla. Það voru ófá skiptin
sem þú spáðir fyrir þér og þínum í
gegnum tíðina og ég held þú hafir
séð flest barnabörnin og barna-
barnabörnin í bollunum og auðvitað
hvers kyns þau voru.
Ég man fyrst eftir Helgu ömmu
á Kársnesbrautinni en þar var hún
með Magga og Steina þau ár sem
við fjölskyldan bjuggum einnig við
sömu götu bara aðeins vestar. Hún
kom oft til okkar og ekki hvað síst
eftir að við fengum sjónvarp, þá
trítluðu hún og Maggi iðulega yfir
til okkar til að horfa á eitthvað
skemmtilegt í sjónvarpinu. Síðar
fluttum við í Fögrubrekkuna og
amma á Ásbraut 11.
Barnabörnin hennar ömmu urðu
19 talsins og meira og minna allt
strákar. Við stelpurnar erum bara
fjórar af öllum þessum hóp. Ég er
fjórða barnabarnið og fyrsta af
okkur frænkunum fjórum. Amma
var stolt þegar stelpan fæddist og
fannst auðvitað að hún ætti að
heita Helga. Stelpan var skírð
Hildur í höfuðið á móður sinni og
fékk faðir minn því framgengt.
Þetta fannst ömmu alveg ótrúleg
frekja af Grétari tengdasyni sínum
og talaði oft um það í gegnum tíð-
ina. Næsta stúlka sem fæddist inn í
fjölskylduna fékk nafnið Hanna
Rúna. Þá kom Helga Rós og sú
yngsta heitir Jórunn Helga, en
amma hét einmitt Jórunn Helga þó
hún hafi ekki oft notað Jórunnar-
nafnið. Það erum því bara við
Hanna Rúna sem ekki berum nafn-
ið hennar. Fyrir rúmum tveimur
árum eignaðist ég síðan stúlku og
var ákveðið að sú litla fengi nafnið
hennar ömmu og var hún skírð
Þórdís Helga. Þessi litla stelpa
varð augasteinn langömmu sinnar
og reyndum við mæðgurnar að
heimsækja hana og Hermann afa
eins oft og við gátum. Þórdís Helga
hefur alltaf haft mjög gaman af því
að koma til ömmu og afa á Hrafn-
istu en það verður skrítið að koma í
heimsókn nú þegar amma er ekki
lengur til staðar. Hermanni vil ég
þakka allan þann stuðning og ástúð
sem hann hefur alla tíð sýnt henni
Helgu ömmu og vona að guð veiti
honum styrk á þessum erfiðu tíma-
mótum.
Elsku amma, þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við höfum
átt saman í gegnum tíðina. Hvíl þú
í friði.
Þín
Hildur.
Elsku amma. Snemma á sunnu-
dagsmorgni hringdi síminn. Þar
var rödd sem sagði mér: Amma þín
dó í nótt. Ég tók þetta mjög nærri
mér og fannst þetta rosalega skrít-
ið. Við amma vorum ekki mjög nán-
ar síðustu árin. En það breytir því
ekki að við áttum margar góðar
minningar saman. Það er eitt sem
mér er mjög minnisstætt en þannig
er mál með vexti að er ég er eina
nafna hennar ömmu. En það
þekktu allir hana undir nafninu
Helga en ekki sem Jórunni Helgu.
Mér fannst mjög gaman á yngri ár-
um að segja frá því að við værum
nöfnur. Það voru margir mjög
hissa og trúðu því varla að hún
Helga sem þau hefðu þekkt í mörg
ár héti Jórunn Helga.
Það dró fyrir sólu
tárin byrjuðu að streyma
ég fann að hárin risu
ég vaknaði upp við vondan draum,
elsku amma mín
er dáin.
Vona að englar guðs
muni gefa þér vængi
til þess að fljúga um
og njóta lífsins
hinum megin.
Elsku amma, þakka þér fyrir all-
ar góðu stundirnar sem við áttum
saman. Vona að við hittumst aftur
hinum megin.
Ég bið góðan Guð að varðveita
ömmu og gefa henni frið.
Megi Guð gefa elsku afa, pabba,
systkinum pabba og öðrum ná-
komnum styrk í sorg sinni.
Blessuð sé minning ömmu.
Jórunn Helga Steinþórsdóttir.
Helga amma fæddist í Bolung-
arvík og ólst þar upp til 14 ára ald-
urs og flutti síðan á höfuðborg-
arsvæðið. 1945 keyptu hún og afi
minn, Jóhann Steinþórsson, hús á
Kársnesbraut 4 í Kópavogi. Amma
bjó líka um tíma á Ásbraut 11 og í
Vogatungunni í Kópavogi og síð-
ustu árin var hún á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
Amma hafði mjög gaman af að
spila bridge og fékk oft verðlaun í
bridge. Það er óhætt að segja að
hún hafi verið snillingur í spila-
mennsku. Amma var alltaf svo
,,grand“ og þegar hún varð áttræð
bauð hún öllum börnum sínum,
barnabörnum og langömmubörnum
út að borða á Hótel Loftleiðum.
Amma spáði oft í bolla fyrir mér
og þeir spádómar rættust næstum
alltaf. Síðustu orð hennar við mig
voru: ,,Guð veri með þér, Eyþór
minn.“
Kæra amma, innilegar þakkir
fyrir allt, og sérstaklega fyrir að
hafa hughreyst mig og gefið mér
sjálfstraust ef ég var eitthvað leið-
ur. Núna ertu komin til himna, til
Guðs, og einhvern tímann kem ég
þangað líka og þá fáum við okkur
kaffi og konfekt og spjöllum saman
um daginn og veginn.
Eyþór.
Elsku amma. Þegar maður
stendur frammi fyrir því að ástvin-
ur deyr fer maður ósjálfrátt að
hugsa til baka og rifja upp liðnar
stundir. Segja má að heimili þitt á
Kársnesbraut 6 hafi verið mitt ann-
að heimil fyrstu ár ævi minnar eða
á meðan foreldrar mínir bjuggu á
Kársnesbraut 28. Ávallt var gaman
að vera hjá þér, amma, líf og fjör
og margt við að vera. Eftir líflega
barnæsku þá tóku við spennandi
spádómar sem oftar en ekki rætt-
ust. Það var mikið lán að þú skyldir
hitta Hermann, þann eðalmann.
Sameiginlegur áhugi ykkar á ferða-
lögum og spilamennsku veitti þér
margar ánægjustundir.
Elsku amma, takk fyrir þína
hlutdeild í mínu lífi. Andlát þitt bar
skjótt að og eftir situr í huga mér:
Bara ef ég hefði gefið mér meiri
tíma undanfarið til að heimsækja
þig og verja meiri tíma með þér.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ég kveð þig með ást og söknuði.
Jóhann Grétarsson.
Hún Helga er dáin, Helga amma
eins og við kölluðum hana, er farin.
Þessi stórkostlega kona er farin frá
okkur og örugglega komin á mjög
góðan stað Ég hitti hana fyrst og
kynntist inni í Fögrubrekku hjá
tengdaforeldrum mínum. Ég sjálf
hafði ekki notið þeirrar gæfu að
eiga ömmu en að hitta Helgu sem
var amma Sigurðar mannsins míns
var mér mikil gæfa. Ég leit á hana
sem ömmu mína líka. Þessi kven-
skörungur sem allir gátu tekið sér
til fyrirmyndar. Það sem mér
fannst svo stórkostlegt við Helgu
var hversu hugrökk hún ávallt var,
hún sagði sína skoðun hvort sem
það var jákvætt eða neikvætt. Hún
var ætíð hreinskilin þó stundum
hefði hún getað verið diplómat-
ískari en það var ekki hennar.
Mér er það svo minnisstætt þeg-
ar hún tók bílpróf orðin ansi gömul
að mér fannst og ég sjálf rétt nýbú-
in að fá mitt bílpróf. Það fannst
mér sýna hugrekki hennar og
kjark.
Það var alltaf gott að tala við
Helgu, hún kunni ráð við flestu og
svo var spáð í bolla þess á milli.
Alltaf til í að taka slag og kíkja í
bolla.
Við vorum auðvitað óttalegir
krakkar en aldrei lét hún mann fá
það á tilfinninguna að við vissum
minna og að hún væri vitrari og
eldri. Henni þótti svo vænt um
barnabörnin sín og um strákana
okkar. Því miður hittumst við ekki
eins oft eftir að hún veiktist og var
bundin við hjólastól en ég veit að
strákunum okkar þótti hún ótrú-
lega merkileg kona nákvæmlega
eins og mér, og elskuðu hana og
dáðu eins og við.
Elsku Helga amma, við kveðjum
þig með söknuði með þeirri vissu
að þér líði betur núna.
Elsku Hermann, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Ykkar
Ýr, Sigurður og strákarnir.
Elsku amma. Ég fór til afa í dag
16.5. Það var virkilega skrýtið að
þú varst ekki þar. Ég man þegar
þú kenndir mér ljóð sem þú samd-
ir. Ég man það enn þá:
Ef fjúkið úti fýkur
og frostið bítur kinn
þá er best bók að taka
og byrja lesurinn.
Þetta man ég endalaust.
Ég sendi þér annað ljóð:
Ég elska þig, þú stjarna hrein og heið,
þótt hulin sértu oft að skýjabaki.
Hve gott átt þú að búa á ljóssins leið.
Ég lyfti minni sál með vængjataki.
Ég kem, ég kem, þá kveður tunga mín.
Nú kem ég bráðum, stjarna, upp til þín.
(Hugrún.)
Ég sakna þín voða mikið.
Bless, elsku amma mín.
Haukur.
HELGA
ÁMUNDADÓTTIR
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is