Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 39

Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 39
KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 39 Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa milli kl. 10 og 14 í neðri safnaðarsal kirkjunnar. Bæna- og fyrirbænastund kl. 12. Léttur há- degisverður að lokinni bænastund. Allir vel- komnir. Tólf spora fundur kl. 19 í neðri safn- aðarsal. Grensáskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12.10. Orgelleikur, ritningarlestur, altaris- ganga, fyrirbænastund. Léttur málsverður á sanngjörnu verði að helgistund lokinni. Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Eldri borgara starf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Háteigskirkja, eldri borgarar. Félagsvist mánudaga kl. 13, brids miðvikudaga kl. 13. Bridsaðstoð á föstudögum kl. 13. Þátttaka tilkynnist til Þórdísar í síma 511 5405. Á morgun, miðvikudag: „Morgunstund og fyr- irbænir“ í kirkjunni kl. 11. Stund fyrir alla sem eru heima við og hafa tækifæri að sækja kirkju á virkum degi. Allir velkomnir. Laugarneskirkja. Sumarhlé hjá Fullorðins- fræðslu og Þriðjudegi með Þorvaldi. En guðsþjónustur sumarsins verða alla sunnu- dag kl. 20 og í júní mun sr. Bjarni bjóða upp á Biblíuspjall hvern sunnudag kl. 19 um texta og prédikunarefni sunnudagsins. Neskirkja: Litli kórinn – kór eldri borgara kl. 16.30. Stjórnandi Inga J. Backman. Allir vel- komnir. Foreldramorgunn miðvikudag kl. 10–12. Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgnar kl. 10–12. Kirkjuprakkarar kl. 16.00. Starf fyrir 10–12 ára kl. 17.30. Árbæjarkirkja. Kl. 10 foreldramorgnar í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börnum í safnaðarheimilinu. Kl. 15.30 TTT-starf með tíu til tólf ára börn- um í Ártúnsskóla. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefnum má koma til sóknarprests í viðtalstímum hans. Digraneskirkja. Unglingakór Digraneskirkju kl. 17–19. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Lindakirkja í Kópavogi. Mömmumorgnar í Safnaðarheimili Lindasóknar, Uppsölum 3, kl. 10–12. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10–12. SELA yngri deild kl. 20–22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10–12 ára börn í safnaðarheimilinu Strandbergi, Vonarhöfn frá kl. 17–18.30. Víðistaðakirkja. Dagskrá fyrir 8–9 ára í dag kl. 15.30–16.30. Dagskrá fyrir 10–12 ára (TTT) í dag kl. 17–18. Skemmtilegar stundir fyrir hressa krakka. Æskulýðsfélagið (Meg- as) heldur vikulegan fund kl. 19.30–21 í kvöld. Umsjón með starfi þessara hópa hafa Anna Hulda Einarsdóttir og Sigríður Rún Tryggvadóttir. Vídalínskirkja. Opið hús kl. 13–16.30 í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli. Karlar og kon- ur, yngri sem eldri, eftirlaunafólk, öryrkjar og atvinnulausir eru velkomnir. Spilað, spjallað og kíkt í blöðin. Samverunni lýkur með helgi- stund kl. 16. Umsjónarmaður Nanna Guð- rún djákni. Þorlákur sækir þá sem vilja og ekur þeim heim. Sími 869–1380. Grindavíkurkirkja. Foreldramorgnar alla þriðjudaga kl. 10–12. Borgarneskirkja. Helgistund í kirkjunni kl. 18.30– 19. Þorlákskirkja. Bænastund kl. 09. Keflavíkurkirkja. Alfahópur kemur saman í Kirkjulundi kl. 12–15. Léttur málsverður, samfélag og fræðsla um kristna trú. Ólafur Oddur Jónsson fjallar um áhrif atvinnuleysis á einstaklinga og samfélög. Umsjón María Hauksdóttir. Styrktaraðilar eru Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis, Verslunarmannafélagið og Iðnsveinafélagið ásamt Keflavíkurkirkju. Allir velkomnir. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Kefas. Bænastund kl. 20.30. Nánari upp- lýsingar á www.kefas.is Akureyrarkirkja. Morgunsöngur kl. 9. Glerárkirkja. Kyrrðarstund í kapellu kl. 18.10. Safnaðarstarf FRÉTTIR Bryngljái á bílinn! Endist árum saman - verndar lakkið - auðveldar þrif. Mössun - blettun - alþrif. Yfir 20 ára reynsla! Litla Bónstöðin, Skemmuveg 22 sími 564 6415 - gsm. 661 9232. Jeppapartasala Þórðar, Tangar- höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum okkur með varahluti í jeppa og Subaru. Nýrifnir: Patrol '95, Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol '92, Legasy '92, og Vitara '91-'97 Bifhjóla og ökukennsla Eggert Valur, ökukennari. Ökukennsla/skóli/mat. Nýr M. Benz. Uppl. í símum 893 4744/565 3808/853 4744. Ökukennsla Ökukennsla, endurhæfing, akstursmat og vistakstur. Upplýsingar í símum 892 1422 og 557 6722, Guðbrandur Bogason. Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla akstursmat. Sverrir Björnsson Wolksvagen Passat, 892 4449/557 2940. Vagn Gunnarsson Mersedes Benz, 894 5200/565 2877. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Nissan Almera, 892 0002/568 9898. Snorri Bjarnason Toyota Avensis, bifhjólak. 892 1451/557 4975. Óska eftir Combi-Camp tjald- vagni. Verðhugmynd 150-180 þús. Uppl. í s. 892 0295. Verður heppnin með þér í sum- ar? Tjaldvagnar til leigu. Leigjum einnig út aukabúnað. Uppl. á www.alaska.is, sími 848 1488. VW Golf GL, árg. '96, ek. 139 þús. km, samlitur, 5 g., CD, vind- skeið, sumar- og vetrardekk á felgum. Vel með farinn og góður bíll á frábæru verði: 370.000 kr. Upplýsingar í síma 690 0919. BÍLAR - BÚSLÓÐIR! Geymi bíla, búslóðir og fleira og fleira. Upphitað og loftræst. Upplýsingar í síma 897 1731. Athafnafólk ath. Gríðarlegir möguleikar fyrir alla sem vilja auka tekjurnar. Skoðið www.Markmid.com og/eða www.Samskipti.com eða sendið fyrirspurn á Info@markmid.com. Til sölu Benz 1622, árg.´85 með HMF krana árg.´95 með fjarstýr- ingu. Verð 1.300.000 kr. Upplýsingar í síma 892 1986. mbl.is Ársfundur Heimssýnar Í dag, þriðjudaginn 18. maí, kl. 17.15 verð- ur ársfundur Heimssýnar, hreyf- ingar sjálfstæðissinna í Evrópu- málum, haldinn í sal Apóteksins við Austurvöll. (Í húsi gamla Reykjavík- urapóteks, 5. hæð). Auk venjulegra aðalfundarstarfa munu nokkrir félagsmenn flytja stutt erindi um viðhorf ungs fólks á Íslandi til Evr- ópumála. Í DAG Fyrirlestur til meistaraprófs við raunvísindadeild HÍ Sigríður Sif Gylfadóttir, meistaranemi við eðlisfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla Íslands, mun á morgun, miðvikudaginn 19. maí kl. 13, flytja fyrirlestur sem hún nefnir: Manip- ulating the persistent current in quantum rings. Fyrirlesturinn er á ensku og fjallar um rannsóknir Sigríðar á áhrifum örskammrar rafsegul- geislunar á THz tíðni á sístæða rafstrauma í skammtahringjum í hálfleiðurum. Sigríður hefur með tölvureikningum sýnt að hægt er að breyta sístæða straumnum og seglun skammtahringsins sem honum fylgir og jafnvel er hægt að snúa straumnum við með því einu að auka styrk geislunarinnar. Fyrirlesturinn fer fram í stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga 2–6. Ráðstefna um stöðu miðaldra fólks á vinnumarkaði verður á morgun, miðvikudag 19. maí kl. 13 í Kiwanishúsinu við Engjateig 11. Árni Magnússon félagsmálaráð- herra setur ráðstefnuna. Erindi helda: m.a. Åsmund Lunde fram- kvæmdastjóri Senter för Senior- politikk í Ósló, Guðmundur S. Guð- mundsson tæknifræðingur, Ólafur Ólafsson tölvunarfræðingur, Hug- rún Jóhannesdóttir forstöðumaður Vinnumiðlunar höfuðbogarsvæðis- ins, Elín R. Líndal forstöðumaður nefndarinnar, Kristinn Tómasson læknir, Alda Sigurðardóttir fræðslustjóri VR, Ögmundur Jón- asson formaður BSRB, Hannes G. Sigurðsson aðstoðarframkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins og Gylfi D. Aðalseinsson lektor við Háskóla Íslands. Að ráðstefnunni standa: Áhuga- hópur umatvinnumál miðaldra fólks, félagsmálaráðuneytið, Vinnumálastofnun, Samtök at- vinnulífsins, BSRB, VR, Félag bókagerðarmanna, Efling, Sam- band íslenskra bankamanna, Raf- iðnaðarsambandið og Landssam- tök lífeyrissjóða. Ráðstefnan er öllum opin og fer skráning fram hjá Vinnumála- stofnun í síma og einnig er hægt að skrá sig á www.vinnumalastofn- un.is Á MORGUN Námskeið fyrir leiðbeinendur í skólagörðum Garðyrkjuskólinn verður með námskeið fyrir leiðbein- endur í skólagörðum í húsakynnum skólans miðvikudaginn 26. maí kl. 9– 16. Leiðbeinendur verða þeir Björn Gunnlaugsson tilraunastjóri og Gunnþór Guðfinnsson garð- yrkjufræðingur. Fjallað verur m.a. um skipulag reita, jarðvinnslu, áburð og kalk, sáningu og grisjun og gróðursetningu. Þá verður fjallað um notkun gróðurhlífa og farið yfir helstu plöntusjúkdóma og meindýr og talað um illgresiseyð- ingu o.fl. Einnig verður matjurta- ræktun í gróðurhúsi kynnt og fjallað um ræktun á einstökum teg- undum matjurta. Skráning og nán- ari upplýsingar um námskeiðið fást á skrifstofu skólans eða á heimasíðu hans, www. reykir.is Á NÆSTUNNI ÁTTATÍU rúm frá Landspítala – háskólasjúkrahúsi verða meðal þess sem flogið verður með til Afg- anistans á vegum utanríkisráðu- neytisins í lok mánaðarins, en þá tekur Ísland við stjórn alþjóða- flugvallarins í Kabúl. Magnús Pét- ursson, forstjóri LSH, afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar þessa gjöf frá spítalanum í gær, en samtökin vinna nú að því að safna hjúkrunar- gögnum sem send verða til Kabúl að þessu tilefni. Þegar hafa safnast rúmlega hundrað dýnur, kerrur fyrir fötluð börn, göngugrindur, hjólastólar og hækjur, auk þess sem von er á fæð- ingarrúmi, skurðarborði, svæfinga- vél og fjölda annarra hjúkrunar- gagna frá heilsustofnunum og fyrirtækjum um allt land. Þá gefur Pharmaco berkla- og sýklalyf að verðmæti 10 milljónir króna. Lyfin eru framleidd í verksmiðju fyrir- tækisins í Búlgaríu, en vélin mun lenda þar á leið sinni til Kabúl, að því er fram kemur í fréttatilkynn- ingu frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Jónas Þ. Þórisson, framkvæmda- stjóri Hjálparstarfsins, fer til Kabúl og mun afhenda Hjálparstarfi norsku kirkjunnar hjálpargögnin, og sér það um að dreifa þeim á sjúkrahús í Kabúl. Þetta verður ekki fyrsta framlag Hjálparstarfs kirkjunnar til neyðaraðstoðar í Afganistan, því í október árið 2001 var 5,4 milljónum króna varið í hjálparstarf í gegnum ACT- Alþjóðaneyðarhjálp kirkna. Morgunblaðið/Árni Torfason Sjúkragögn og lyf til Afganistans UM helgina voru 15 öku- menn grunaðir um ölvun við akstur og 61 ökumað- ur um of hraðan akstur. Þá voru tilkynnt til lögreglu 47 um- ferðaróhöpp með eignatjóni. Aðfaranótt sunnudags var til- kynnt um árekstur á Laugavegi, austan Hlemmtorgs. Þarna missti ökumaður stjórn á ökutæki sínu, ók yfir umferðareyju og grindverk. Ökumaður var handtekinn og færð- ur í fangamóttöku en hann er grun- aður um ölvun við akstur. Skömmu síðar var bifreið ekið á ljósastaur á Austurbergi. Ökumaður hennar er einnig grunaður um ölvun við akstur. Mjög rólegt var í miðborginni að- faranótt laugardags og lítið af fólki. Hins vegar var mikið af ölvuðum unglingum víða um borgina að halda upp á lok samræmdra prófa sem voru sl. þriðjudag. Aðfaranótt laugardags var maður fluttur á slysadeild frá veitingahúsi en hann hafði verið þar í slagsmál- um og þurfti að sauma tvo skurði á höfði hans. Þegar hallaði að morgni var mað- ur fluttur á slysadeild frá veitinga- húsi í Þingholtunum en hann var mikið skorinn í andliti eftir slags- mál. Þá var tilkynnt um innbrot í fyrirtæki við Hverfisgötu. Maður klifraði þar upp vinnupalla á húsinu og fór inn um glugga. Hann var handtekinn og færður á aðalstöð þar sem hann var vistaður í fanga- geymslu. Einnig var tilkynnt um líkams- árás í Síðumúla. Þar réðust 2 piltar á mann og var hann fluttur á slysa- deild. Ekki er vitað um árásarmenn- ina. Hópslagsmál á Laugavegi Seint um kvöldið var tilkynnt um hópslagsmál á Laugavegi við Klapp- arstíg og síðar um að hópur manna væri að misþyrma einum. Að sögn manna munu upptök átakanna vera þau að maður hafði verið að kasta glösum í fólk inni á veitingastað og var honum hent út af hópi fólks. Aðfaranótt sunnudags var gríðar- lega margt fólk í miðborginni í hlýju og góðu veðri og var mannfjöldinn svipaður því sem gerist á menning- arnótt. Mjög mikill erill var þar og einnig í öðrum hverfum m.a. vegna ungmenna. Engin stórmál komu þó upp en nefbrot og kjaftshögg komu til kasta lögreglu þar sem fólk var flutt á slysadeild. Maður sem gekk um og sparkaði í bíla var handtek- inn og vistaður. Annar maður var stunginn í fótinn við Vesturbæjar- skóla og fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild ásamt öðrum sem fékk glas í höfuðið á veitingastað. Röð fólksins sem beið eftir leigubifreið- um náði að Skólabrú kl. 04 en þá var líka margt fólk á gangi víða í kring- um miðbæinn að leita leigubifreiða. Snemma á sunnudagsmorgni var tilkynnt um hópslagsmál í Hafnar- stræti. Þau voru leyst upp og nef- brotinn maður fluttur á slysadeild. Þá var tilkynnt um innbrot í nokkrar bifreiðar við Álfabakka. Stolið var geislaspilara, radarvara, farsíma og geisladiskum. Úr dagbók lögreglu 14.–17. maí Læti í bænum á laugardagskvöldið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.