Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 41
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 41
Ljósbrá og Björn
öruggir sigurvegarar
í paratvímenningnum
Ljósbrá Baldursdóttir og Björn
Eysteinsson sigruðu næsta örugg-
lega á Íslandsmótinu í paratvímenn-
ingi sem fór fram um helgina. Annað
sætið var einnig öruggt hjá Maríu
Haraldsdóttur og Eiríki Jónssyn en
baráttan um 3. sætið stóð á milli 4
para og hömpuðu Geirlaug Magnús-
dóttir og Torfi Axelsson bronsinu í
lokin.
Alls tóku 40 pör þátt í mótinu. Pör-
um var raðað eftir styrkleika og spil-
aðar þrjár 30 spila lotur.
Lokastaðan:
Ljósbrá Baldursd. – Björn Eysteinsson 311
María Haraldsdóttir – Eiríkur Jónsson 245
Geirlaug Magnúsdóttir – Torfi Axelsson 155
Esther Jakobsdóttir – Guðm. Sv. Herm. 129
Dröfn Guðmundsd. – Ásgeir Ásbjörnss. 126
Hrafnhildur Skúlad. – Jörundur Þórðar 117
Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 89
Edda Thorlacius – Ísak Örn Sigurðsson 88
Svala Pálsdóttir – Randver Ragnarsson 81
Mary Pat Frick – Sigurður Sverrisson 79
Finna má öll úrslit og spil á
www.bridge.is
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 11. maí var spilað á
átta borðum. Úrslit urðu þessi:
N/S
Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 152
Árni Bjarnason – Þorvarður S. Guðm. 141
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 129
Bjarnar Ingimarsson – Friðrik Herm. 129
A/V
Björn Björnsson – Heiðar Þórðarson 145
Stefán Ólafsson – Oddur Jónsson 138
Kristrún Stefánsdóttir – Anna Hauksd. 130
Úrslit 14. maí
N/S
Bjarnar Ingimarss. – Friðrik Herma. 193
Sigurður Hallgr. – Filip Höskuldss. 168
Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 168
A/V
Sófus Berthels. – Haukur Guðmundss. 207
Hermann Valsteinss. – Ólafur Gíslason 176
Jón R. Guðmundss. – Kristín Jóhannsd. 173
Þau urðu í efstu sætunum í paratvímenningnum sem fram fór um helgina.
Frá vinstri: Torfi Axelsson, Geirlaug Magnúsdóttir, Ljósbrá Baldursdóttir,
Björn Eysteinsson, María Haraldsdóttir og Eiríkur Jónsson.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Nöfnum víxlað
Þau mistök urðu við vinnslu
fréttar, sem birtist á föstudag um
samtal tveggja útvarpsmanna á FM
95,7, að nöfnum þeirra var víxlað.
Voru orð Sigvalda Þórðar Kaldalóns,
sem kallar sig Svala, lögð í munn
Einars Ágústs Víðissonar og öfugt.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessu.
Mynd snýr vitlaust
Mynd af verki Tryggva Ólafsson-
ar, sem birtist með umsögn um sýn-
ingu hans á sunnudag, sneri vitlaust í
blaðinu á sunnudag. Um leið og
myndin birtist aftur er beðist vel-
virðingar á mistökunum.
Röng tala
Í frétt um hækkun atvinnuleysis-
bóta í blaðinu í gær var röng tala.
Bæturnar hækka úr 3.681 krónu í
4.096 krónur á dag, en ekki úr 2.752
krónum eins og stóð. Beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
Þingvallaþjóðgarður
og Kjölur
Í grein Hafsteins Hjaltasonar 16.
þ.m. varð misritun
„eign ríkissjóðs“ á að vera: Ríkis-
eign.
Hafsteinn Hjaltason.
LEIÐRÉTT
Gríma eftir Tryggva Ólafsson.
FULLTRÚAÞING Sjúkraliðafélags
Íslands sem haldið var á dögunum
krefst þess að frumvarp ríkisstjórn-
ar Íslands um takmörkun á tjáning-
arfrelsi þjóðarinnar verði afturkall-
að, segir í ályktun frá félaginu sem
borist hefur Morgunblaðinu.
„Verði fumvarpið samþykkt á Al-
þingi krefst fundurinn þess að þjóðin
fái tækifæri til að tjá sig um rétt-
mæti þeirrar ákvörðunar þingsins,
áður en lögin koma til framkvæmda.
Fundurinn skorar á forseta lýð-
veldisins að leggja það í dóm þjóð-
arinnar hvort afgreiðsla þingsins á
fjölmiðlafrumvarpinu verði að lög-
um.“
Frumvarp
verði
afturkallað
OPNAÐUR hefur verið nýr grill-
staður í Grafarvogi, Mango Grill að
Brekkuhúsum 1, þar sem áður var
Planet Chicken. Eigendur staðarins
eru Magnús Garðarsson mat-
reiðslumaður og Ívar Þ. Björnsson.
Á boðstólum eru ýmsir réttir, s.s.
nautasteikur, grillaður kjúklingur
djúpsteikt ýsa, hamborgarar o.fl.
Þá býður Mango Grill upp á snakk á
meðan beðið er eftir matnum. Einn-
ig er ókeypis áfylling á gosið. Í há-
deginu er boðið upp á heitan mat og
kaffi fyrir 790 krónur.
Mango grill er opið alla daga kl.
11.30–22.
Nýr grillstaður í Grafarvogi
SORPA hefur gert samning við
Blómaval um sölu á moltu, lífræna
jarðvegsbætinum. Jarðvegsbæt-
irinn er unninn úr garðaúrgangi
sem skilað er inn til Sorpu og er í
vinnslu þar í 1–2 ár. Einnig er hægt
að fá moltublöndu og trjákurl frá
Sorpu. Eftir sem áður er hægt að fá
moltu og moltublöndu í Álfsnesi á
Kjalarnesi.
Myndin er tekin við undirskrift
samningsins. Á myndinni eru
Trausti Gunnarsson Blómavali,
Björn H. Halldórsson Sorpu, Ög-
mundur Einarsson Sorpu og Krist-
inn Einarsson Blómavali.
Sorpa semur við Blómaval