Morgunblaðið - 18.05.2004, Side 43
HÉR er fyrst lítið próf:
Lesandinn hefur orðið
vitni að frábærri spila-
mennsku hjá makker og
vill láta í ljósi hrifningu
sína. „Makker, þú spil-
aðir þetta eins og ...“
Hvaða nafn kemur fyrst
upp í hugann?
Norður
♠K4
♥8532
♦D86
♣ÁG73
Suður
♠ÁDG975
♥ÁKD
♦Á432
♣--
Var það Belladonna?
Það er ekki ólíklegt, þótt
Garozzo og Zia séu líka
heitir möguleikar. En í
dag er ekki skynsamlegt
að spila eins og Bella-
donna, því hér er á ferð
gamall fingurbrjótur
ítalska meistarans. Hann
varð sagnhafi í sex spöð-
um og fékk út lauftíu.
Hvernig myndi lesandinn
spila?
Belladonna spilaði
beint af augum: Henti
tígli í laufás, tók trompin
og spilaði tígulás og tígli
á drottninguna.
Norður
♠K4
♥8532
♦D86
♣ÁG73
Vestur Austur
♠2 ♠10863
♥764 ♥G109
♦G1075 ♦K9
♣109862 ♣KD54
Suður
♠ÁDG975
♥ÁKD
♦Á432
♣--
Ekki gekk það og vest-
ur fékk annan slag á tíg-
ul.
Spilið kom upp í leik
Ítalíu og Argentínu á
HM fyrir margt löngu. Á
hinu borðinu spiluðu
Argentínumenn sex
hjörtu í NS, sem unnust
vegna 3-3 legunnar.
Ósanngjarnt, en á hinn
bóginn hefði Belladonna
átt að jafna spilið. Ekki
með því að spila upp á
tígulkónginn annan í
austur (sem er á móti
líkum), heldur með því að
skilja laufásinn eftir í
blindum. Trompa sem
sagt lauf í fyrsta slag, af-
trompa vörnina, taka
ÁKD í hjarta og spila svo
tígulás og tígli á drottn-
inguna. Austur á ekkert
nema lauf eftir og suður
losnar við tvo tígulhunda
niður í laufás og frí-
hjarta.
Vonandi spilaði lesand-
inn þetta EKKI eins og
Belladonna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 43
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert umburðarlynd/ur
og víðsýn/n á sama tíma
og þú ert og mikil hug-
sjónamanneskja. Nánasta
samband þitt verður í
brennidepli á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til að
fara yfir neysluvenjur þínar
og hugsanlegar leiðir til
sparnaðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Finndu eitthvað eitt sem þú
getur gert til að bæta nán-
asta samband þitt og reyndu
svo að fylgja því eftir. Ekki
ætla þér um of því þá eru
meiri líkur á að þú gefist
upp.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Gefðu þér tíma til að velta
því fyrir þér hvað skiptir þig
mestu máli í lífinu. Jafnvel
trúleysi er ákveðin hug-
myndafræði.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Nýlegar rannsóknir sýna að
vinamargt fólk lifir lengur en
fólk sem á fáa vini. Hvernig
vinur ert þú?
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú ættir að huga að því
hvernig þú kemur öðrum
fyrir sjónir. Gerðu svo eitt-
hvað til að bæta ímynd þína.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Leitaðu leiða til að auka
skilning þinn og lífsreynslu.
Þú getur hugsanlega gert
þetta með því að fara í nám
og ferðalag.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Með nýju tungli færðu tæki-
færi til að breyta viðhorfi
þínu til þess hvernig aðrir
velja að lifa lífi sínu. Reyndu
að temja þér umburðarlyndi
og virðingu fyrir viðhorfum
annarra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú ættir að velta því fyrir
þér hvað þú getur gert til að
bæta samband þitt við maka
þinn og nánustu vini. Mundu
að þú þarft að henta þeim
ekki síður en þau þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það má alltaf bæta hlutina.
Leitaðu leiða til að bæta
vinnuvenjur þínar.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft á fríi að halda.
Gerðu það sem gera þarf til
að þú getir komist í frí.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Við þurfum öll á heimili og
fjölskyldu að halda. Með
nýju tungli gefst þér gott
tækifæri til að bæta heimilis-
aðstæður þínar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fólk dæmir annað fólk ekki
síður af hegðun þess en því
sem það segir. Reyndu að
senda fólkinu í kringum þig
skýr skilaboð.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁRNAÐ HEILLA
85 ÁRA afmæli. Í dag,þriðjudaginn 18.
maí, er 85 ára Finnbogi
Guðmundsson (Bóbó), fyrr-
um matsveinn til sjós. Finn-
bogi dvelur á Dvalarheim-
ilinu Ási í Hveragerði.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6
4. e5 Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3
Rc6 7. Re2 cxd4 8. cxd4 f6 9.
exf6 Rxf6 10. Rf3 Bd6 11.
0–0 0–0 12. Bf4 Bxf4 13.
Rxf4 Re4 14. Re2 Hxf3 15.
gxf3 Rg5 16. Kh1 e5 17.
dxe5 Rxf3 18. Bxh7+ Kh8
19. Rg1 Rcd4 20. He1 Bg4
21. He3 Dh4 22. Rxf3 Dxf2
23. Hc3 Dxb2 24. Dc1
Svartur á leik
Staðan kom upp á
pólska meist-
aramótinu sem lauk
fyrir skömmu. Artur
Jakubiec (2.532)
hafði svart gegn
Piotr Murdzia
(2.455). 24. … Dxc3!
Nákvæmast og best.
25. Dxc3 Bxf3+ 26.
Dxf3 Rxf3 27. Bc2
Rxe5 28. Hd1 Hd8
29. Be4 hvítur vinn-
ur nú eitt peð til
baka en frípeð svarts
á d-línunni gerir út
um skákina. 29. … d4 30.
Bxb7 g5 31. Kg1 Kg7 32.
Be4 Kf6 33. Kf2 Rg4+ 34.
Kg3 Re3 35. Hb1 d3 36. Bf3
d2 37. Bd1 og hvítur gafst
upp um leið enda fátt um
fína drætti. Skákhátíð
Hróksins og UMFÍ stendur
nú yfir á Vestfjörðum og
Snæfellsnesi og lýkur með
alþjóðlegu atskákmóti 21.
og 22. maí nk. Nánari upp-
lýsingar um hátíðina er að
finna á skak.is og á heima-
síðu Hróksins.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyr-
irvara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Það þarf mikla útsjónarsemi þegar maður býr í lítilli íbúð!
MEÐ MORGUNKAFFINU
Alþjóðleg ferðamarkaðsfræði
„Að geta sýnt fram á lokapróf í Alþjóðlegri ferða-
markaðsfræði frá jafn virtri stofnun sem IATA/UFTAA
er, hlýtur að teljast gulltrygging fyrir atvinnu innan
ferðaþjónustunnar hvar sem er í heiminum.“
Sigurlaug Valdís Jóhannsdóttir,
Allrahanda.
Námsefnið kemur frá IATA/UFTAA og tekin eru próf í mars nk. og
veitir því alþjóðlega viðurkenningu, en kennslan fer fram á íslensku.
Námið hentar öllum þeim, sem áhuga hafa
og vilja auka þekkingu sína á ferðaþjónustu.
www.menntun.is
Bíldshöfða 18 • Sími 567 1466 • Opið frá kl. 8—22
Nýi söngskólinn
Tónlistarhúsinu
Ými
Innritun í allar deildir.
Inntökupróf í einsöngsdeild 19. og 27. maí.
Einsöngsdeild.
Hefðbundið söngnám samkvæmt námsskrá.
Grunnnám - miðnám - framhaldsnám.
Óperudeild - ljóðadeild.
Söngdeild fyrir áhugafólk.
Undirbúningur fyrir einsöngsdeild.
Söngnám sér til gagns og gamans.
Unglingadeild 11-14 ára og 14-16 ára.
Tónlistarnám með röddina sem aðalhljóðfæri.
Barnadeild 4-6 ára.
Að þroska og efla sköpun, taktskyn og söng er
markmið okkar.
Símar: 552 0600 og 893 7914.
Netfang: songskoli@vortex.is
Vefsíða: songskoli.is
„Hjartansmál“
SMS
tónar og tákn
FJALLIÐ SKJALDBREIÐUR
Fanna skautar faldi háum
fjallið, allra hæða val,
hrauna veitir bárum bláum
breiðan fram um heiðardal.
Löngu hefur Logi reiður
lokið steypu þessa við.
Ógnaskjöldur bungubreiður
ber með sóma réttnefnið.
Ríð ég háan Skjaldbreið skoða,
skín á tinda morgunsól,
glöðum fágar röðulroða
reiðarslóðir, dal og hól.
Beint er í norður fjallið fríða,
– fákur eykur hófaskell, –
sér á leiti Lambahlíða
og litlu sunnar Hlöðufell.
– – –
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT