Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 45

Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 45 SVEN-GÖRAN Eriksson, landsliðs- þjálfari Englands, tilkynnti í gær hvaða 23 leikmenn skipuðu landslið Englands sem keppir á EM í Portú- gal í sumar. Þjálfarinn heldur einu sæti lausu enda vörnin dálítill höf- uðverkur fyrir kappann þar sem nokkrir lykilmenn hennar eru meiddir. Markverðir: David James (Man City), Paul Robinson (Tottenham) og Ian Walk- er (Leicester). Varnarmenn: Gary Neville (Man Utd), Phil Ne- ville (Man Utd), Ashley Cole (Arsen- al), Wayne Bridge (Chelsea), Sol Campbell (Arsenal), John Terry (Chelsea), Ledley King (Tottenham) og Jamie Carragher (Liverpool) Miðjumenn: David Beckham (Real Madrid), Paul Scholes (Man Utd), Nicky Butt (Man Utd), Steven Gerrard (Liver- pool), Frank Lampard (Chelsea), Owen Hargreaves (Bayern Münc- hen), Kieron Dyer (Newcastle) og Joe Cole (Chelsea) Sóknarmenn: Michael Owen (Liverpool), Emile Heskey (Liverpool), Darius Vassell (Aston Villa) og Wayne Rooney (Everton). Þeir sem eru til taks eru Jermain Defoe (Tottenham), Richard Wright (Everton), Matthew Upson (Birmingham), Gareth Southgate (Middlesbrough), Scott Parker (Chelsea) og Alan Smith (Leeds United). Eitt sæti enn laust í enska landsliðinu NJARÐVÍKINGAR hafa samið við bandaríska leikmanninn Troy Wiley um að hann leiki með liðinu í úrvalsdeildinni í körfuknattleik næsta vetur. Wiley lék tíu leiki með KFÍ á síðustu leiktíð og skoraði 28,9 stig að meðaltali í þeim auk þess sem hann tók 160 fráköst í heild- ina, eða 16 að meðaltali. Skotnýt- ing hans var góð því hann var með 54,4% nýtingu í tveggja stiga skotum, 33,3% í þriggja stiga skotum og 66,3% í vítaskotum. Þá varði kappinn 4,4 skot að meðal- tali í þessum leikjum og fékk verðlaun fyrir það á lokahófi KKÍ. Wiley er 203 sentimetrar og leikur stöðu miðherja. Wiley til Njarðvíkur KR Komnar: Elfa Björk Erlingsdóttir frá Stjörnunni Guðlaug Jónsdóttir frá FV Köbenhavn Guðný Guðleif Einarsdóttir frá Sindra María B. Ágústsdóttir frá Stjörnunni Petra Fanney Bragadóttir frá ÍBV Farnar: Alexandra Tómasdóttir í Þór/KA/KS Ásthildur Helgadóttir í Malmö FF Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, hætt Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir í Breiðabliki Hrefna Jóhannesdóttir í Medkila Þóra B. Helgadóttir, óráðið ÍBV Komnar: Bryndís Jóhannesdóttir frá ÍR Claire Johnstone frá Hibernian Elín Anna Steinarsdóttir frá Breiðabliki Mary McVeigh frá Philadelphia Charge Rachel Kruze frá Philadelphia Charge Farnar: Elva Dögg Grímsdóttir í Hugin Hanna G. Guðmundsdóttir, hætt Karitas Þórarinsdóttir, meidd Lind Hrafnsdóttir, hætt Petra Fanney Bragadóttir í KR Rachel Brown, meidd Valur Komnar: Ásta Árnadóttir frá Þór/KA/KS Katrín Jónsdóttir frá Kolbotn Margrét L. Hrafnkelsdóttir frá Fjölni Farnar: Engar Breiðablik Komnar: Erla Hendriksdóttir frá FV Köbenhavn Erla Dögg Sigurðardóttir frá Alvik Hólmfríður Ósk Samúelsdóttir frá KR Farnar: Elín Anna Steinarsdóttir í ÍBV Guðný P. Þórðardóttir í Keflavík Margrét R. Ólafsdóttir, hætt Stjarnan Komnar: Allison Jarrow frá South-Carolina Anna M. Gunnarsdóttir frá Haukum Jóna S. Jónsdóttir frá Haukum Margrét K. Pétursdóttir frá Grindavík Rósa Ragnarsdóttir frá Grindavík Sarah Lentz frá South-Carolina Tinna Mark Antonsdóttir frá Þór/KA/KS Farnar: Elfa Björk Erlingsdóttir í KR Jóna Júlíusdóttir í Keflavík María B. Ágústsdóttir í KR FH Komnar: Aðalheiður Sigfúsdóttir frá Haukum Eva María Árnadóttir frá Breiðabliki Nanna Rut Jónsdóttir frá Haukum Svava Björnsdóttir frá Haukum Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir frá Þrótti R. Farnar: Engar Þór/KA/KS Komnar: Alexandra Tómasdóttir frá KR Ásdís Jóna Sigurjónsdóttir frá Tindastóli Inga Birna Friðjónsdóttir frá Tindastóli Margrét G. Vigfúsdóttir frá Tindastóli Farnar: Ásta Árnadóttir í Val Guðrún Soffía Viðarsdóttir í danskt lið Tinna Mark Antonsdóttir í Stjörnuna Fjölnir Komnar: Anna Rún Sveinsdóttir frá Sindra Kristín Lilja Friðriksdóttir frá HSH Ratka Zivkovic frá Masinac Nis Vanja Stefanovic frá Masinac Nis Farnar: Hjördís Símonardóttir í Gróttu Margrét L. Hrafnkelsdóttir í Val Sirrý H. Haraldsdóttir í UMF Bessast. Soffía Ásmundsdóttir í Gróttu Breytingar á liðunum Morgunblaðið/Þorkell Guðlaug Jónsdóttir er kom- in á ný til liðs við KR.  LORENA Ochoa, 22 ára mexíkósk stúlka, sigraði um helgina fyrsta sinni á LPGA móti í golfi. Hún hafði oft verið nærri því að sigra, m.a. þrettán sinnum verið meðal tíu efstu, en um helgina tóks það loks og varð hún þar með fyrsti Mexíkaninn til að sigra á golfmóti í bandarísku móta- röðinni hjá konum. Hún lék alls á 16 höggum undir pari.  Á SAMA tíma og hún sigraði tókst 27 ára bróður hennar, sem hefur ver- ið kylfusveinn hennar, að komast á topp Mount Everest, en þau lofuðu hvort öðru því að honum tækist að komast á toppinn og henni að sigra.  ÍTALSKI knattspyrnudómarinn Pierluigi Collina mun dæma úrslita- leik UEFA-keppninnar á morgun á Ullevi í Stokkhólmi, þar sem Val- encia og Marseille mætast.  ÓLAFUR Örn Bjarnason, lands- liðsmaður í knattspyrnu, fær 6 í ein- kunn hjá netmiðlinum Nettavisen eftir leik Brann gegn Ham/Kam í norsku úrvalsdeildinni á sunnudag. Ólafur Örn hefur fengið 5,8 að með- altali í einkunn hjá Nettavisen það sem af er leiktíðinni og er hann í 32. sæti á þessum lista. Aðrir fjölmiðlar í Noregi hafa ekki tekið saman slíka lista þar sem að verkfall blaðamanna hefur staðið yfir undanfarna daga í Noregi.  SÆVAR Þór Gíslason bætti markamet sitt fyrir Fylki í efstu deildinni í knattspyrnu þegar hann skoraði mark Árbæinga gegn ÍA í fyrstu umferðinni. Sævar hefur skorað 32 mörk fyrir Fylki í deildinni en næst markahæsti Fylkismaður- inn er Kristinn Tómasson með 23 mörk.  GRÉTAR Hjartarson lék sama leik fyrir Grindavík með marki sínu gegn ÍBV á sunnudaginn. Grétar er markahæstur Grindvíkinga í efstu deild með 38 mörk en Sinisa Valdi- mar Kekic er næstur með 34 mörk.  ÍSLENSKU kylfingarnir Tómas Salmon og Rúnar Óli Einarsson náðu ekki að komast í gegnum nið- urskurðinn á Opna enska meistara- mótinu í höggleik sem lauk á sunnu- dag. Tómas lék á 76 og 80 höggum. En Rúnar Óli lék á 79 og 74 höggum. Kylfingurinn sem sigraði á mótinu lék á samtals 10 undir pari.  ARON Bjarni Stefánsson úr GK, Guðjón Karl Þórisson GKj og Ásta Birna Magnúsdóttir úr GK fengu öll 36 punkta á vormóti GK sem fram fór á Hvaleyrarvelli á laugardag. Alls tóku 117 keppendur þátt.  GUÐMUNDUR Rúnar Hallgríms- son GS sigraði á Opna Bláa lóns- mótinu sem fram fór á Leirunni á laugardag, en Guðmundur lék á 75 höggum, eða þremur yfir pari. Jeff- rey Danzer, GKj, sigraði með forgjöf á 69 höggum. Alls tóku 65 keppendur þátt. FÓLK Páll Ólafsson tók við þjálfunkarlaliðs Hauka í febrúar þegar Viggó Sigurðsson hætti og sam- þykkti Páll þá að stýra liðinu út leik- tíðina þar sem hann var aðstoðar- maður Viggós. Undir stjórn Páls urðu Haukar Íslandsmeistarar á síð- asta fimmtudag eftir stutta og snarpa rimmu við Val. Haukar leita að eftirmanni Páls um þessar mund- ir. Sama er upp á teningnum hjá kvennaliðinu þar sem Ragnar Her- mannsson hætti þjálfun þess eftir að það féll úr keppni á Íslandsmótinu í 8 liða úrslitum eftir tap fyrir FH. Haukar fá liðssyrk Kvennalið Hauka hefur endur- heimt tvo fyrrverandi leikmenn sína og hefur verið gengið frá samningum við þá. Hanna Guðrún Stefánsdóttir er komin aftur til liðs við Hauka en hún lék með Tvis/Holstebro í vetur. Þá er Nína K. Björnsdóttir komin á ný í Haukana eftir að hafa verið í herbúðum Íslandsmeistara ÍBV, en Nína lék með Haukum fyrir örfáum árum. Þá hefur Gunnar Ingi Jóhannsson gengið frá samningi um að leika með Haukum á næstu leiktíð. Gunnar Ingi, sem er hornamaður, lék með Stjörnunni á síðustu leiktíð. Gunnar er fjórði leikmaður Stjörnunnar sem yfirgefur liðið á skömmum tíma, hin- ir eru Arnar Jón Agnarsson, sem er á leið í FH, Vilhjálmur Halldórsson fór yfir í Val og Jasek Kowal mark- vörður fékk ekki áframhaldandi samning í Garðabæ. Pauzoulis frjálst að fara Þá staðfesti Eiður að deildin ætl- aði ekki að standa í vegi fyrir því að Robertas Pauzoulis léki utan land- steinanna á næstu leiktíð þrátt fyrir að hann ætti ennþá eitt ár eftir af samningi sínum við Haukana. Pauz- oulis hefur í hyggju að reyna fyrir sér í Þýskalandi og mun hafa verið í sambandi við umboðsmenn og félög þar að lútandi, m.a. Íslendingaliðið Tusem Essen sem Guðjón Valur Sig- urðsson leikur með. Þá er ljóst að Ásgeir Örn Hall- grímsson leikur með Haukum á næsta vetri en hann hefur verið und- ir smásjá nokkurra evrópskra hand- knattleiksliða, þar á meðal þýska stórliðsins Lemgo. Atli tekur ekki við Haukum ATLI Hilmarsson, fyrrverandi þjálfari KA, tekur ekki við þjálfun Ís- landsmeistara Hauka í handknattleik karla eins og vonir forráða- manna Hauka stóðu til. Þetta staðfesti Eiður Arnarson, formaður handknattleiksdeildar Hauka, í samtali við Morgunblaðið í gær en Atli var efstur á óskalista forráðamanna Hauka. Eiður sagðist von- ast til þess að nýr þjálfari yrði ráðinn bæði til meistaraflokks karla og kvenna fyrir vikulokin en vildi ekki á þessu stigi tjá sig um hverjir ættu í viðræðum við deildina. Sævar Þór Gíslason er meiddur á læri SÆVAR Þór Gíslason, framherji Fylkismanna, er þokkalega bjart- sýnn á að geta leikið gegn FH-ingum á fimmtudag en þá hefst önn- ur umfer úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Sævar haltraði af velli um miðjan síðari hálfleik í leiknum gegn ÍA á sunnudaginn en hann varð fyrir meiðslum á framanverðu læri. „Ég var að koma frá sjúkraþjálfaranum og hann telur að ég geti verið með á fimmtudaginn. Það er hugsanlegt að vöðvi sé rifinn eða um tognum sé að ræða. Ég er aumur í lærinu en ég get skokkað og vonandi næ ég að hrista þetta af mér í tæka tíð. Ég fékk minn skammt af meiðslum í fyrra og ég vil ekki lenda í því aftur í sum- ar,“ sagði Sævar Þór en hann opnaði markareikning Árbæjarliðs- ins á Íslandsmótinu í ár þegar hann kom Fylkismönnum yfir á móti ÍA.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.