Morgunblaðið - 18.05.2004, Síða 47
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 47
GENT frá Belgíu verður andstæð-
ingur Fylkis í fyrstu umferð Int-
ertoto-keppninnar í knattspyrnu í
næsta mánuði. Það réðst um
helgina þegar lokaumferðin í belg-
ísku 1. deildinni var leikin. Íslend-
ingaliðið Lokeren átti möguleika á
9. sætinu, sem hefði skilað liðinu
Íslandsför, en jafntefli gegn Mo-
eskroen og sigur Gent í St. Truid-
en, 2:0, varð til þess að Gent
hreppti sætið.
Lið Gent er ekki ókunnugt hér á
landi því það mætti ÍA í forkeppni
UEFA-bikarsins sumarið 2000. Þá
unnu Belgarnir öruggan sigur á
Laugardalsvellinum, 3:0, en mörðu
síðan sigur á heimavelli, 3:2, eftir
að Skagamenn náðu tvívegis for-
ystu í leiknum. Georges Leekens,
fyrrum landsliðsþjálfari Belga,
sem stýrði Moeskroen í vetur, tek-
ur við liði Gent í sumar og hann
þekkir til Íslands og Fylkis. Leek-
ens stýrði liði Roda frá Hollandi
þegar það mætti Fylki hér á landi
í UEFA-bikarnum haustið 2001.
Hann tók við liðinu eftir að Roda
hafði unnið fyrri leikinn í Hol-
landi, 3:0, og stjórnaði því í 3:1-
sigri á Árbæingunum á Laug-
ardalsvellinum.
Fyrri leikur Gent og Fylkis fer
fram í Belgíu 19. eða 20. júní og
sá síðari hér á landi viku síðar.
Sigurliðið mætir liði frá Kýpur
eða Makedóníu næstu tvær helgar
á eftir.
Fylkir mætir Gent
frá Belgíu í Intertoto
ARNAR Þór Viðarsson varð í öðru
sæti í kjöri á leikmanni ársins hjá
belgíska knattspyrnuliðinu Loker-
en, sem lýst var í lokahófi hjá fé-
laginu í fyrrakvöld. Arnar Þór
hlaut þennan titil í fyrra en nú féll
hann varnarmanninum Lezou
Doba í skaut.
Kjörið fór fram á vef Lokeren
allt tímabilið, með stigagjöf eftir
hvern leik, og hlaut Doba 17.817
stig, Arnar Þór fékk 17.429 og
Rúnar Kristinsson varð þriðji með
17.045 stig. Marel Baldvinsson
varð sjötti með 12.132 stig en Arn-
ar Grétarsson, sem missti mikið úr
vegna meiðsla, varð ellefti með
8.580 stig.
Rúnar Kristinsson var heiðraður
fyrir fallegasta markið á tímabilinu
en það skoraði hann gegn Man-
chester City í UEFA-bikarnum.
Marel Baldvinsson var kjörinn
myndarlegasti leikmaður liðsins en
Arnar Grétarsson hlaut þann titil á
síðasta ári.
Arnar Þór annar og Rúnar
með fallegasta markið
Rúnar Arnar Þór
JÓHANNES Harðarson var í
byrjunarliði Start í norsku 1. deild-
inni á útivelli gegn Vard Haugesund.
Start vann leikinn 3:0, og fór Jó-
hannes af leikvelli á 64. mínútu, en
hann fær 4 í einkunn hjá Verdens
Gang. Start hefur leikið sex leiki í 1.
deildinni og unnið þá alla og er að
sjálfsögðu í efsta sæti deildarinnar.
JÓHANNES Valgeirsson, knatt-
spyrnudómari sem dæmdi leik Fram
og Víkings í Landsbankadeild karla
á sunnudagskvöldið, fékk fyrir mis-
tök 0 í einkunn í umsögn um leikinn í
blaðinu í gær. Hið rétta er að Jó-
hannes stóð sig vel að mati blaða-
manns og á skilið fimm stig af sex
mögulegum. Beðist er velvirðingar á
mistökunum.
GÓÐ aðsókn var að leikjum í 1.
umferð efstu deildar karla í knatt-
spyrnu í ár. Um 700 fleiri áhorfendur
sóttu leikina fimm í 1. umferð þetta
árið samanborið við síðasta ár. Alls
mættu 7.196 áhorfendur á leikina
fimm, sem gerir 1.439 að meðaltali á
leik. Til samanburðar má nefna að í
fyrra mættu 6.488 á leiki 1. umferð-
ar, eða 1.298 að meðaltali, en árið
2002 voru áhorfendur í 1. umferð
7.019, 1.404 að meðaltali.
STEFÁN Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ, og Kristinn Reim-
arsson, sviðsstjóri afrekssviðs, héldu
í gær til Aþenu þar sem þeir munu
funda með forráðamönnum ólympíu-
leikanna og væntanlega tryggja að
vel fari um íslensku keppendurna
þar.
FULLTRÚAR fjögurra sérsam-
banda héldu síðan til liðs við þá fé-
laga í morgun, Einar Þorvarðarson,
HSÍ, Ragnheiður Ólafsdóttir, FRÍ,
Örn Sigurðsson, FSÍ og Hlín Ást-
þórsdóttir, SSÍ.
ÓÐINN Björn Þorsteinsson,
kringlukastari í FH, bætti fyrri ár-
angur sinn um 80 sentímetra á inn-
anfélagsmóti í Hafnarfirði í gær-
kvöld. Hann kastaði kringlunni
lengst 56,86 metra. Aðeins er vika
síðan hann bætti sinn fyrri árangur
þegar hann kastaði 56,06 metra.
AFP-fréttastofan greinir frá því að
líklega muni Felix Magath taka við
sem þjálfari þýska stórliðsins Bay-
ern München í sumar. Magath er
samningsbundinn Stuttgart fram til
ársins 2005 og segir formaður Stutt-
gart að Bayern München verði að
fara með sín mál í gegnum forsvars-
menn Stuttgart, en geti ekki rætt við
þjálfarann án þeirra samþykkis.
STAÐA Ottmar Hitzfeld núver-
andi þjálfara Bayern München þykir
ekki sterk um þessar mundir en hinn
55 ára þjálfari hefur skilað fjórum
meistaratitlum í hús, liðið vann einn-
ig Meistaradeild Evrópu árið 2001.
HOLLENSKI landsliðsmaðurinn
Jaap Stam, 31 árs, skrifaði í gær
undir tveggja ára samning við
ítalska meistaraliðið AC Milan.
FÓLK
SVO kann að fara að handknatt-
leiksmaðurinn Sturla Ásgeirsson,
hornamaður í ÍR, gangi til liðs við
danska úrvalsdeildarliðið Århus
GF, sem Róbert Gunnarsson og
Tjörvi Ólafsson hafa leikið með
undanfarin ár. Á heimsíðu Århus
GF er greint frá því að Sturla hafi
æft með Árósarliðinu og svo kunni
að fara að hann leiki með liðnu á
næsta keppnistímabili. Sturla
hyggst flytja til Danmerkur fái
hann inni í námi í arkitektúr við há-
skólann í Árósum.
Forsvarsmenn Århus GF hafa að
undanförnu leitað að hornamanni
sem gæti fyllt skarð Tjörva en
samningur Tjörva við félagið var
ekki endurnýjaður þegar hann
rann út við lok leiktíðarinnar í vor.
Sturla til Århus GF?
BJARNI Þór Viðarsson,
drengjalandsliðsmaður í
knattspyrnu úr FH, fer til
Englands í dag til að ganga
frá samningi við enska úrvals-
deildarfélagið Everton. Með í
för eru foreldrar hans, Ólafur
Garðarsson umboðsmaður og
Pétur Stephensen og Leifur
S. Garðarsson, fulltrúar FH.
Bjarni Þór gengst undir
læknisskoðun á morgun og
mun í framhaldi af henni
skrifa undir samning við
enska félagið, að öllu
óbreyttu.
Hann er nýorðinn 16 ára en
var fastamaður í drengja-
landsliðinu á síðasta ári og er
gjaldgengur með því áfram í
ár.
Bjarni skrifar
undir hjá
Everton
En síðustu tvö ár hafa verið erfiðhjá Garcia og á þeim tíma hefur
hann ekki sigrað á atvinnumanna-
móti, þar til í fyrradag er hann bar
sigur úr býtum á Byron Nelson-
meistaramótinu, eftir umspil.
Fyrir sigurinn fékk Garcia rúm-
lega 74 millj. kr. í sinn hlut en hann
lék á samtals 10 höggum undir pari.
Dudley Hart og Robert Damron
voru einnig 10 undir pari að loknum
72 holum en Garcia hafði betur á
fyrstu holu í umspilinu.
Garcia hefur gert gríðarlega mikl-
ar breytingar á sveiflunni sinni und-
anfarin misseri og er sú vinna að
skila sér. Þetta er í fjórða sinn sem
hann sigrar á atvinnumannamóti í
Bandaríkjunum. „Ég hefði viljað
leika betur á lokadeginum, einn yfir
pari er ekki viðunandi. Í hvert sinn
sem maður fer út á völl vonast maður
eftir því að leika sitt besta golf, en
það gerist ekki alltaf. Ég er gríðar-
lega ánægður með sigurinn sem
skiptir mig miklu máli hvað fram-
haldið varðar. Sjálfstraustið er að
aukast á ný,“ sagði Garcia sem er í
öðru sæti á styrkleikalista kylfinga í
Evrópu.
Tiger Woods frá Bandaríkjunum
var einu höggi frá því að komast í
umspilið en hann lék á 271 höggi líkt
og tveir aðrir keppendur.
Sergio Garcia
braut ísinn
FYRIR fimm árum lék Spánverjinn Sergio Garcia í fyrsta sinn sem
atvinnumaður á PGA-mótaröðinni í Bandaríkjunum, og var fyrsta
mótið Byron Nelson-meistaramótið. Garcia var þá aðeins 19 ára
gamall og lét mikið að sér kveða á sínu fyrsta ári, varð í öðru sæti á
PGA-meistaramótinu eftir harða baráttu við Tiger Woods og Garcia
lék í Ryderliði Evrópu þá um haustið.
Reuters
Sergio Garcia fékk veglegan bikar í Texas og rúmlega 74 millj.
kr. í verðlaunafé eftir sigurinn á Byron Nelson meistaramótinu.
Heimamenn voru síðan hægt ogbítandi að ná völdum þegar
Adolf Sveinsson skoraði fyrsta mark
Stjörnunnar með
skalla eftir horn á 10.
mínútu. Haukar voru
varla búnir að jafna
sig þegar Jóhann
Guðmundsson átti skot frá miðjum
vallarhelmingi Hauka, markvörður
Hauka varði en hélt ekki boltanum
sem rúllaði rólega í markið. Markið
hleypti lífi í Hafnfirðinga, Ómar Karl
Sigurðsson þrumaði í slá hjá Stjörn-
unni og Sævar Eyjólfsson skaut í
markið eftir aukaspyrnu Jóns Gunn-
ars Gunnarssonar en var dæmdur
rangstæður. Þessi færi komu Hauk-
um aftur í gang og Sævar skoraði úr
vítaspyrnu á 24. mínútu eftir að Jón
Gunnar var felldur af Þorgils Þorgils-
syni, sem fékk fyrir vikið gult spjald.
Mínútu síðar braut Þorgils klaufalega
af sér, fékk aftur gult og því rautt og
Garðbæingar því einum færri. Það
breytti ekki miklu en á 39. mínútu fór
Adolf af velli og inn á kom Jónmundur
Grétarsson, sem skoraði þriðja mark
Stjörnunnar með fyrstu snertingu.
Eftir hlé var vart hægt að merkja
hvort liðið væri einum leikmanni
færra enda töldu sumir áhorfendur
leikmenn til öryggis. Það átti samt
ekki við um sóknarleik liðanna því
Haukar voru duglegri við að skapa
sér færi. Um miðjan hálfleik tóku
Stjörnumenn viðbragð enda tilbúnir
að sæta færis í sókninni og hurð skall
nærri hælum Hafnfirðinga. Þeir
brugðust við með því að skipta vara-
mönnum inn á og skerpa á sókninni
en enn vantaði yfirvegun í sókn
þeirra. Á 86. mínútu fengu Haukar
loks gott færi þegar Jón Gunnar og
Ómar Karl undu sér í gegnum vörn
Stjörnunnar en Sveinn Magnússon
hljóp þá uppi og stöðvaði sóknina.
„Við náðum aldrei takti í leiknum
og þetta var ekki nógu gott,“ sagði
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari
Hauka, eftir leikinn. „Við gáfum þeim
eitt klaufamark og dómarinn tók af
okkur löglegt mark. Eftir að við urð-
um einum færri vorum við í lagi um
tíma en svo datt botninn úr leik okkar
í fyrri hálfleik og í seinni hálfleik
rembdumst við of mikið en náðum
aldrei takti í spilið.“
Heldur var þjálfari Stjörnunnar,
Ragnar Gíslason, hressari. „Við höf-
um ekki staðið okkur alltof vel á und-
irbúningstímabilinu svo það var frá-
bært að ná þessu forskoti en við
spiluðum vel og vorum grimmir. Þeg-
ar við misstum mann út af var eins og
það kæmi aukakraftur í aðra leik-
menn svo að ég get ekki annað en ver-
ið sáttur,“ sagði Ragnar.
Maður leiksins: Ólafur Gunnars-
son, Stjörnunni.
Óskabyrjun
Stjörnunnar
ÓSKABYRJUN Stjörnunnar fleytti þeim langt ef ekki alla leið þegar
þeir sóttu Hauka heim í Hafnarfjörðinn í gærkvöldi. Með tveimur
mörkum á innan við 15 mínútum varð hlutskipti Hauka að vinna það
upp og þó að Garðbæingar misstu mann út af á 25. mínútu tókst
Hafnfirðingum ekki að færa sér það í nyt. Hvort lið bætti við marki
og þar við sat, 3:1 fyrir Stjörnuna.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Morgunblaðið/ÞÖK