Morgunblaðið - 18.05.2004, Page 49
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ 2004 49
JÓN Sæmundur Auðarson opnaði
nýja innsetningu, Herbergið, á
þriðju hæð veitingahússins 22 um
helgina. Vel var mætt á opnunina
sem fór fram á miðnætti á laug-
ardagskvöldið og stóð fjörið fram
eftir nóttu.
Jón Sæmundur hefur undanfarin
misseri samtvinnað myndlist og
hönnun undir vörumerkinu Dead
en þann varning má finna í verslun
Jóns, sem heitir Nonnabúð og
stendur við Laugaveg 11.
Samhliða þessu hefur þróast hlið-
arsjálf Jóns, sem ber nafnið Dauð-
ur, og skipar hann stóran sess í inn-
setningunni. Sem stundum fyrr
vísar Jón í dauðann og veltir upp
tilfinningum gagnvart honum. Sýn-
ingin samanstendur af veggfóðri,
ljósmynd, jakka og vélarhlíf. Sýn-
ingin er varanleg.
Dead-innsetning á þriðju hæðinni á 22 opnuð
Veggfóðrað með hauskúpum
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þessi jakki er hluti af innsetningunni en hann er með
áletruninni „Engir Guðir – Ekkert stríð“.
Ingólfur Þór og Sigríður Ásta á opnuninni á Herberg-
inu, innsetningu á þriðju hæð 22. Hauskúpuveggfóðrið
fær að njóta sín á staðnum.
Sími 534 6868 - Ráðgjöf í síma 908 6868 - sga@sga.is
www.sga.is
199 kr. mín
Viltu hafa
háar tekjur?
Þá gæti hentað þér að vera kynningarfulltrúi ClaMal.
Um er að ræða heimakynningar á dönskum kvenfatnaði
sem hefur slegið í gegn á Íslandi.
Góðir söluhæfileikar, frumkvæði og jákvætt viðhorf
eru þeir eiginleikar sem þú þarft að búa yfir.
Við förum fram á 2-3 kynningar á viku, og við veitum
þér fræðslu, þjálfun og stuðning til þess að þú náir þeim
markmiðum.
Nánari upplýsingar veitir Anna Bára í síma 565 3900 milli
kl. 10 og 14 eða sendu tölvupóst á sala@sga.is