Íslendingaþættir Tímans - 25.10.1968, Side 1
10. TBL. 1. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 25. OKT. 1968
NR. 10
Hallur L. Hallsson
tannlæknir
Hallur Hallsson hét hann, elzti
tannlæknir landsins, stofnandi
Tannlæknafélags íslands, formað-
ur þess lengur en nokkur annar,
sverð og skjöldur stéttar sinnar,
er stilla vildi öllum kröftum í hóf,
en standa fast á rétti sínum ef
þess gerðist þörf.
Hallur Hallsson var fæddur 23.
apríl 1890 að Syðri Görðum í Kol-
beinsstaðahreppi. Foreldrar hans
voru Hallur Björnsson bóndi þar
og kona hans, Valgerður Konráðs-
dóttir. Höfðu þau hjón bæði áður
Verið gift og átti Hallur fjögur hálf-
systkini, — tvö af föður og tvö af
móður. Valgerður móðir Halls var
bróðurdóttir Gísla Konráðssonar,
hins merka sagnaþuls. En föður-
bróðir Halls var Jósep Björnsson
skólastjóri á Hólum, einnig merk-
Ur fræðimaður í sinni grein. Voru
þessir tveir náfrændur Halls merk-
ir og djarfir framfaramenn á erf-
iðum tímum þjóðarinna-r. Átti Hall
ur því ekki langt að sækja djörf-
ung sína og stórhug. Alsystkin-
in voru aðeins tvö, Ásta tannsmið-
ur, búsett hér í Reykjavík, og var
einkar kært með þeim systkinum.
Er Hallur var 10 ára varð hann
fyrir þeirri miklu sorg að missa
föður sinn. Vegna hinna erfiðu
tíma leystist heimilið upp og varð
Hallur að fara frá móður sinni og
mskuheimili. Hygg ég ekkert atvik
í ævi hans hafa haft djúpari áhrif
á hann og mótað meira lífsskoð-
anir hans og viðhorf. Bauð þá föð-
urbróðir hans Jósep skólastjóri á
Hólum, Halli til sín, en undarleg
atvik örlaga urðu til þess að hann
ílentist á Ölvaldsstöðum í Borgar-
firði og vildi ekki þaðan fara. 17
ára dreif Hallur sig, með aðstoð
Guðmundar Loftssonar, er hann
síðan nefndi oft' „fóstra“, á Flens-
borgarskólann í Hafnarfirði. Var
hann þar t.d. samtímis Bernharð
Sefánssyni, fyrrum Alþingisfor-
seta. í samtölum við mig hefur
Bernharð látið mikið af gáfum
Halls.
Er Hallur hafði lokið prófi frá
Flensborg, fór hann til ísafjarðar
og gerðust þar tveir atburðir í
lífi hans: Þar kynntist hann konu
sinni, Amalíu Skúladóttur, er ver-
ið hefur honum tryggur förunaut-
ur í 56 ár. — Þar komst hann
fyrst í kynni við tannlækningar,
er hann hóf þar tannsmiðanám
hjá Steinbeck tannsmið þar. Næsta
ár fór Hallur til Reykjavíkur og
vildi Ijúka tannsmíðanáminu, en í
Reykjavík voru þá aðeins tveir
tannlæknar, þeir Brynjólfur
Björnsson og Vilhelm Bernhöft og
þurftu hvorugur á tannsmíðanema
að halda. Sýndi Hallur þá enn
djörfung sína og fór til Kaup-
mannahafnar og nam þar tann-
smíðar. Næstu tvö ár var Hallur
í Helsingborg í Svíþjóð hjá mjög
merkum og kunnum tannlækni,
Sá hann hvað í Halli bjó og greiddi
mjög götu hans, t.d. tók hann
Hall inn á lækningastofu sína og
fræddi hann um margt og mikið.
í Helsingborg kvæntist Hallur
eftirlifandi konu sinni, Amaiiu
Skúladóttur, útgerðarmanns á ísa-
firði. Er hún merk kona og góð-
gerðarsöm, svo að hún má ekkert
aumt sjá. Studdi Hallur hana í því
og vildi oft verða margt á heimili
þeirra hjóna af þeim, er aðstoðar
þurftu við. Fyrri sti'íðsárin 1914—
1918, gerðist Hallur tannsmiður í
Færeyjum og var kf.nn eini tann-
smiðurinn þar á þeim árurn. Eft-
ir stríðið sýndi Hallur enn þann
stórhug, sem með honum bjó og
vildi hann ljúka tannlæknanámi,
en til þess þurfti hann að vera
við nám í eitt ár í Hafnarháskóla
til að öðlast réttindi til inngöngu
á danska tannlæknaskólann. Þar
hóf hann nám árið 1920. Fyrstu
kynni mín af Halli voru árið 1922,
er ég kom ung stúlka á tann-
læknaskólann, þá í fyrsta bekk en
Hallur var þá í efsta Ólíka nem-
endur að þroska hafði ísland sent
til náms á Hinum konunglega
danska tannlæknaháskóla eins og
hann hét þá. Hallur var þá kom-
inn yfir þrítugt. Hafði hann brot-
izt áfram á eigin spýtur af mikl-
um dugnaði, þar að auki útlærð-
ur tannsmiður og vel undir nám-
ið búinn. Ég var aftur á móti
framtakalítill unglingur, innan tví-
tugs, einkabarn foreldra minna í
minni fyrstu för út í heiminn.
MINNING