Íslendingaþættir Tímans - 13.02.1970, Qupperneq 8
Jósep Hjálmar Jónsson,
bóndi á Skógum í Vopnafirði
Fæddur 15. ágúst 1901.
Dáinn 11. nóvember 1969.
Jósep fæddist að Skógum, sonur
hjónanna Sigríðar Jósepsdóttur og
Jóns Jónssonar sem bjuggu í Skóg-
um allan sinn búskap.
Sigríður var ættuð úr Vopna-
firði, en Jón Skaftfellingur að ætt.
Sagt var um Sigríði að hún væri
sérstaklega myndvirk. Sneið hún
og saumaði allan fatnað bæði peysu
föt og annað, ekki einasta fyrir
heimilið, heldur og oft fyrir aðra.
Þótti hún bæði mikilvirk og vel-
virk. Hafð'i hún þó ekki lært hanrt-
yrðir nema í foreldrahúsum, eins
og þá var títt með flestar ungar
stúlkur.
Jón var einnig mjög hagur mað-
ur. Hann var bæði timbur- og járn
smiður, og sérstakt snyrtimenni í
allri umgengni. Hestamaður og
hafði yndi af hestum. Sat hann
hesta rnjög vel, og minnist ég
þess, hvað mér fannst hann ridd-
aralegur þegar hann var kominn á
hestbak.
Þau hjón eignuðust 3 börn sem
upp komust: Jóna Kristín, býr að
Ytra-Núpi ásamt börnum sínum,
ekkja eftir Þorgeir Þorsteinsson,
sem var Fljótsdœlingur. Sigríður
Aðalborgj ógift, var alltaf ráðskona
hjá bróður sínum. Jósep Hjálmar,
er var yngstur Þeirra systkina.
1907 fór frændfólk Sigríðar til
Ameríku og höfðu þau hjónin Sig-
ríður og Jón þá ákveðið að fara
Hka. Seldu þau bú sitt og voru
flutt ofan í Vopnafjörð. En á með-
an þau biðu þar skips veiktist Jó-
6ep svo þau hættu við ferðina.
Fluttu þau aftur í Skóga og bjuggu
þar allan sinn búskap eftir það.
Var fyrirhyggja, nýtni og hirðUr
eemi sérstakt einkenni á þeirra
heimili, ásamt rausn yið gesti og
gangandi.
í hörðum árum þegar viða var
Iknappt um hey var aEtaf sagt að
Jón væri vel byrgur fyrir sig, og
var þá fremur veitandi en Þiggj-
andi.
Jósep byrjaði búskap 1929, þá
hætti faðir hans, en hann dvaldi
hjá Jósep það sem hann átti eítir
ólifað.
Jósep var sérstáklega mynd- og
mikilvifkur smiður, bæði á tré og
járn. Einnig var hann söðlasmiður
og var það eina iðnin sem hann
lærði, hitt kom eins og af sjálfu
sér. Verklagnin og hagsýnin virtist
honum meðfædd. Hann var mjög
greiðugur og var oft leitað til
hans eins og gefur að skilja með
svo afkastamikinn og hagan mann
sem hann var. Hann stundaði
söðlasmíði í ígripum á vetrum, og
luku allir lofsorði á verk hans.
Annars var búskapurinn alltaf
aðalstarfið, þvi hann var bóndi af
lífi og sál. Alltaf var hann stál-
byrgur með hey, og fór vel með
skepnur sínar, sérstaklega á seinni
árum, enda með allra hæstu bænd-
um með afurðir eftir hverja á.
Hann var með afbrigðum fjárglögg
ur og markglöggur og réttarstjóri
á Fellsrétt í fjölda ára.
Tvílyft vandáð íbúðarhús hyggði
hann á jörð sinni og sömuleiðis
gripahús. Hann hafði einnig mik-
inn áhuga fyrir rœktun og var
fljótur að tileinka sér vélar þegar
þær komu til sögunnar.
Jósep var fjölda ára 1 stjórn
Búnaðarfélags Vopnafjarðar. Einn-
ig var hann formaður Fóðurbirgða
félags Vopnafjarðar í mörg ár.
Hvatti hann bændur til að setja vel
á, og sýndi þeim áþreifanlega með
fordæmi sínu hvers virði það er
að vera ætíð birgur af heyjum.
Fyrir nokkrum árum varð hann
fyrir því slysi að lærbrotna er hest
ur datt með hann, og var hann
alltaf haltur eftir það. Einnig sótti
mjög á hann brjóstveiki á seinni
árum, svo hann átti erfitt um störf.
En áhuginn var svo mikill að hann
vann samt alltaf, og varð að síð-
ustu bráðkvaddur við störf sín.
í þessum veikindum sýndi hann
alitaf sömu karlmenrrskuna, og
gerði að gamni sínu livenær sem
færi gafst, svo maður áleit að þetta
heilsuleysi hans væri ekki eins al-
varlegt og raun varð á.
Jósep kvæntist aldrei, en bjó
alltaf eins og áður segir með Sig-
ríði systur sinni, sem reyndist hon-
um mjög vel, og átti áreiðanlega
sinn þátt í rausn heimilisins. og
því, hve þeirra búskap farnaðist
vel.
Þau ólu upp tvö fósturbörn: Jón
Þorgeirsson, systurson þei’-ra, sem
nú er bóndi í Skógum. kvæntur
Jónínu Björgvinsdóttur frá Ás-
laugsstöðum. Þau eiga 3 börn.
Teódóra Hallgrímsdóttir. Gift og
búsett á Skagaströnd.
Reyndust þau þeim sem beztu
foreldrar.
Jósep var jarðaður að Hóii 21.
nóv., að viðstöddu fjölmenni.
Að síðustu þakka ég fyrir
ánægjulegt samstarf, og bið guð
að blessa þig og alla ættingja þína.
Traustur bústólpi er til brautar
genginn. Blessuð sé minning hans.
Friðrik Sigurjónsson.
8
fSLENDINGAÞÆTTIR