Íslendingaþættir Tímans - 13.02.1970, Page 25

Íslendingaþættir Tímans - 13.02.1970, Page 25
 stjórn Framsóknarkvenna • eiiiasins Freyju, og var einnig vrkj pált- takandi í öðrum kvenfélöguni Þeg ar Samkór Kópavogs var stofriað- ur, gerðist hún þegar áhugasamur félagi og starfaði þar siðan af lífi og sál, enda var hún ágaeilega söngvin og hafði góða rödd. Hún átti um tíma sæti í stjórn Kven- félagasambands Kópavogs og gegndi ýmsum öðrum trúnaðar- störfum. Þeim, sem komu með ung böm sín á jólatréssamkomur í Kópavogi, er það minnisstætt, hve skemmtilega þessi unga og mynd- arlega kona leiddi sönginn við jóla tréð, en til þess var hún stundum fengin, og hafði gott lag á því að laða hina ungu samkomugestj með sér í sönggleðna. Kristín ísleifsdóttir var kona, sem hlaut að afia sér vinattu og trausts allra þeirra sem kynntust henni, enda fór það ekki milli mála að hún átti hvort tveggja í rík- um mæli, bæði meðal þeirra, sem í nágrenni hennar bjuggu og nulu óvenjulegra mannkosta heunar í góðum kynnum nábýlisins og oft- lega mikillar hjálpsemi, og ann- arra, sem áttu með henni samleið skamma eða langa. Börnum sínum var hún mikilhæf og góð móð'ir og eiginmanni Ijúfur og traustur föru nautur. Kristin ísleifsdóttir var öndveg- iskona, sem maður hugsar um sem fyrirmynd og geymdir í þakklátu minni. AK. t Fréttin um, að hún Kristin okk- ar væri farin yfir landamærin miklu, kom okkur ekki á óvart, því við mikla vanheilsu hafði hún búið undanfarið. Engu að síð- ur urðum við harmi slegnar við fréttina um andlát hennar. Endurminningin um hana er þó björt i hugum okkar, sem fengum að njóta viðkynningar við hana. Erosið bjarta, dugnaður hennar og ósérhlífni gleymast seint. Við í Freyju, félagi framsóknar- kvenna í Kópavogi, vorum svo heppnar, að fá að njóta starfs- krafta hennar frá því að félag okk- ar tók til starfa. Var hún okkur ómetanleg stoð þar sem annars staðar. Ymsum trúnaðarstörfum gegndi hún fyrir félag okkar. Var hún t.d. okkar fyrsti fulltrúi í stjórn Kvenfélagasambands Kópa- V°gs, og var dugnaður hennar og GUÐMUNDUR GiSU KENNARI Fæddur 30. sept. 1927. Dáinn 14. des 1969. Stundum berast þau tíðindi að eyrum, að nokkurn tíma þarf til að átta sig á þeim. Svo fór mér, þegar ég frétti lát Guðmundar Magnússonar, kennara í Skóga- skóla. Ég varð höggdofa. Og enn er það svo, að þegar ég nú sezt niður til að kveðja hann að síð- ustu verða mér torfundin þaú orð, sem mér finnst hæfa minningun- um, sem sækja fastast fram í hug- ann. Fyrstu kynni mín af Guðmundi Magnússyni urðu haustið 1948. Þá kom liann sem settur kennari við Brúarlandsskólann. Hann hafði þá lokið stúdentsprófi vorið 1947, og prófi í forspjallsvísindum við Háskólann vorið 1948. Ætlun hans var að lesa til B.A. prófs á næstu árum, en jafnframt þurfti hann að vinna fyrir sér. Og hann valdi sér kennslu. Það kann að vera, að flest störf hefði hann unnið vel, það var ekki reynt, en hitt veit ég, að kennslustörfin rækti hann með ágætum. Hann var mjög á- hugasamur kennari, enda náði hann mjög góðum árangri. Vissu- lega var hann nokkuð kröfuharð- ur við nemendur sína, en þó aldrei glaðlegt viðmót einnig þar til mik- ils styrks. Þegar við nú kveðjum hana, er okkur því efst í huga þakklæti fyrir r.'lt það góða, sem hún vann okkur ig fyrir þær ljúfu samveru stundii sem við áttum með henni. Manr hennar og sonum send- um við innilegar samúðarkveðjur. Sólveig Runólfsdóttir. t - Kæra Kristín: Aðeins örfá orð til þess að þakka þér allt of stutt en ánægjuleg kynni. Okkur félögum þínum í Samkór Kópavogs mun lengi til þín hugsað fyrir þá uppörvun og styrk sem þú veittir okkur með nærveru þinni, oft fárveik en fáir munu hafa gert sér ljóst að hverju stefndi. Mættum við aðeiifis eign- ast brot af þínu þreki. Hafðu þökk fyrir allt. Eiginmanni og sonum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðúur. Kórfélagar. (V. Fannar). ÍSLENDINGAÞÆTTIR 25

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.