Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1970, Qupperneq 18

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1970, Qupperneq 18
ATTRÆÐ: Svava Þórhallsdóttir f fallegu húsi við hreiniega og kyrrláta götu, Selvogsgrunn í Reykjavík, býr nú, hiá dóttur sinni, háöldruð kona, fri Svava Þórhallsdóttir fyrrum skóla- stjórafrú á Hvanneyri í Borgar firði. Þessarar góðu og göíugu konu, sem ég á mikið að þakka frá æskuárunum, þegar ungling urinn mótast hvað mest og varan- legast, langar mig til að minnast með fáum orðum í tilefni af ný liðnum merkisdegi í lífi hennar, áttræðisafmælinu. Svava Þórhallsdóttir er fædd í Reykjavík 12. apríl 1890, dóttir Þórhalls biskups Bjarnarsonar og konu hans Valgerðar Jónsdottur, en þau bjuggu til æfiioka í Laui ási í Revkjavík og þar ólst frú Svava upp ásamt sysckmum sín- um, Tryggva, síðar forsætisráð herra, Dóru, síðar forsetafrú og Birni sem dó ungur. Laufás var í tið Þórhalls biskups mikið lær- dóms og athafnasetur og voru börnin látin vinna alla algenga vinnu á heimilinu og búinu á sumrum en stunduðu nám á vetr- um. Þórhallur biskup var, eins og kunnugt er, mikill búsýslumaður og brautryðjandi í landbúnaði auk þess sem hann var stjórnsamur kirkjuhöfðingi. Frú Svava stundaði nám við Kennaraskóla fslands og lauk kennaraprófi þaðan 19 ára gömul vorið 1909, í fyrsta árgangi þeirra sem útskrifuðust úr þeim skóla. Næsta ár sótti hún kennaranám skeið við Kennaraháskóla í Sví- þjóð. Að upplagi mun frú Svava hafa verið alvörugefin og nokkuð dul og gætti þess þegar í æsku í Sví þjóð kynntist hún hinni nýju vakn- ingu, sem fór þá um öll Norður lönd og æskulýður landanna hreifst svo mjög af. Hingað til lands barst sá straumur undir mafninu Ungmennafélagshreyf ingin og flutti þjóðinni bjartsýni og trú á lífið og framtíðina. Frii Svava var einn af brautryðjendum þeirrar hreyfingar. Hún átti þátt i stofnun að minnsta kosti þriggfa ungmennafélaga og er mér þar minnisstæðust stofnun Ung- mennafélagsirts fslendings á Hvanneyri í desember árið 1911. Frú Svava átti mestan þátt í stofn un þess félags og vann ötullega að því að það héldi upp heilbrigðu íþrótta- og skemmtanalífi í byggð arlaginu. Hvanneyri varð því sjálf kjörin miðstöð þeirrar starfsemi. Skemmtanalífið á Hvanneyri tók- miklum breyíingum við komu frú Svövu þangað. Fyrir þann tíma voru það karlmannaskemintan ir: íþróttir, glímur og aflraunir, sem þar bar hæst, en með frú Svövu kornu þjóðdansir og úti- leikir, sem allir, konur jafnt sem karlar, tóku þátt í oftast undir hennar stjórn. Allir hlöklcuðu til laugardags og sunnudagskvölda á sumrin þegar farið var i þessa leiki. Þau kvöld hygg ég, að fleir um en mér hafi orðið ógleyman- leg, þegar frú Svava stjórnaði þjóðdönsum úti á kirkjubalanum á Hvanneyri og fjöldi fóltks, yngra og eldra, tók þátt í skemmtunirni af lífi og sál. Þá var vor í lofti á fslandi sólskin og gróandi í lífi þjóðarinnar. Engan grunaði, að fyrsta heimstyrjöldin væri þá svo skammt undan sem raun varð á . Námsdvöl sína í Þvíþjóð varð frú Svava að stytta meira ein ætl að var vegna veikinda móður sinn- ar, og hverfa heim til fslands. f kveðjuræðu, sem skólameistar inn, dr. Holm, flutti þegar hún fór heim lýsti hann henni sem gæsi- legri og gáfaðri fegurðardís frá Sögueyjunni, sem skólanum hefði verið heiður og sæmd að hafa í nemendahópi sínum. Sjálf segir frú Svava að þar hafi hún notið mestrar sólar og gleði í lífinu. Frá Svíþjóð kom frú Svava heim með nýja trú á lífið. Eftir heim komuna kenndi hún í barnaskól- skólaniim í Reykjavík og á náms skeiði í Kennaraskólanum þegar hún gat því við komið frá heimil- isstörfum í Laufási. Frú Svava var mjög listhneigð þegar í æsku. Hún lærði snemma að leika á hljóðfæri og stjórnaði oft hópsöng á Hvanneyri. í Kenn .araskólanum lærði hún listmálun hjá hinum ágæta kennara Þórarni Þorlákssyni listmálara. Síðar lærði hún postulínsmálningu í Dan- mörku og hefur mikið fengizt við þá listgrein hin síðari ár. Ég kom að Hvanneyri sem vika drengur, 12 ára gamall, vorið 1910. Þá var Halldór Vilhjálmsson tekinn við skólastjórn þar fyrir þremur árum og var enn ógiítur. En vorið 1911 giftist hann frænku sinni; Svövu Þórhallsdóttur í Lauf- ási. Ég man vel þann atburð o g það indæla vor þegar frú Svava kom til Hvanneyrar. Henni fylgdi nýr tími og ný viðhorf og það var eins og allt yrði hlýrra og bjartara eftir að hún kom. Hún var falleg, ung og hraust og tilbúin að takast á við hin óleystu viðfangsefni, sem biðu hennar á höfuðbólinu Hvann eyri. Hvanneyrarhjónin báru af hvar sem þau fóru. Ég hafði þá verið tvö sumur á Hvanneyri en í Reykjavík hjá foreldrum minum a vetrum og í barnaskóla þar. En nú voru foreldrar rnínir flutt þaðan og bjuggu ekki saman um sinn. Þegar frú Svava vissi að svo var vildi hún með engu móti að ég færi frá Hvanneyri um haustið 1911, heldur að ég yrði þar um veturinn og tók sjálf að sér að 18 <SLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.