Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1970, Qupperneq 25

Íslendingaþættir Tímans - 12.06.1970, Qupperneq 25
/ SJÖTUGUR: Guömundur R. Guðmundsson bóndi í Bæ á Steingrímsfirði „Nú vorar og sólhlýir vindar biása úr vetrarins dróma raknar. Nú yngist heimur og endurfæðist og æskuglaður hann vaknar;‘. (St. frá Hv.dal). Þegar suðvestan garrinn þeytir regnskúrum inn yfir Faxaflóa og Suðumes, liður mildur hnúkaþeyr norður um Húnaflóa og Strandir, og bræðir klakafjöturinn, sem norðanstornnur og andblær isa hef ur lagt um byggð og ögur. Minningar liðinna ára losna úr læðingi og vaka í vitund þeirra, sem öldufall áranna hefur rifi'ð frá rót og skolað á fjarlæga sand- strönd. í hinum napra einmanaleik fjöl- býíisins getur það stytt næturvöku að raða saman brotasilfri minninga liðinna ára. Og nú, þegar ég horfi á eftir sunnangolunni norður um heiðar, minnist ég þess, að einn þeirra manna, sem um tugi ára hefur sett svip sinn á mína heimabyggð, hefur á þessu ári fyllt sjöunda ára- tug ævi sinnar. Guðmundur Ragn- ar Guðmundsson, stórbóndi í Bæ í Steingrímsfirði, varð sjötugur 13. jan. síðast liðinn. Segja má, að síðbúin sé afmælis- kveðjan, en við Strandamenn ól- umst upp við þær aðstæður að vinsæll og vel metinn af öllum sveitungum sínum. Munu margir Iþeirra minnast ljúfa og glaðra samverustunda á heimili þeirra \ hjóna í Mörk og þakka margan góðan greiða sem Friðrik hefur gert öllum þeim mörgu, sem feng ið hafa þar fyrirgreiðshi og góðan beina. í hópi þeirra er sá, sem ritar þessar línur.Þær eiga að vera, þótt fáar séu og fátæklegar — innileg afmælisósk til þessa gamla granna míns og góða vinar, með kærri kveðju og hjartans þökk fyrir sam- veruna á Síðunni í næstum þrjá- tíu ár. G.Br. V f$LEMDINGÁÞÆTT!R þurfa jafnan nokkuð að bíða eftir andsvari hugrenminga. Foreldrar Guðmundar Ragnars voru valinkunn sæmdarhjón, Ouð- mundur Guðmimdsson og Ragn- heiður Halldórsdóttir, sem lengi bjuggu í Bæ, en dvöldu síðast hjá bömum símum á Hólmavík. Þegar ég fyrst man Guðmund Ragnar, var ég sex ára hnokki. Hann átti að fermast þetta vor og kom til dvalar á heimili foreldra minna meðan hann gekk til spurn- inga. Þótt ég væri þá ekki glöggur á dagsins fyrirbæri man ég þetta at- vik vel. Það hafði verið austan hlý- viðri, snjóa var sem óðast að leysa og ár og lækir voru í vexti. Ég man að faðir minn spurði Guð- mund, hvernig hanin hefði komizt yfir Skammá, hvort hún hefði ver- ið væð. „Nei, hún var ekki væð, en ég feenti mér yfir hana“. Þetta, að henda sér yfir á, var i mínum augum slíkt afrek, að það hlaut að verða ógleymanlegt. Ef til vill voru það barnaórar. En þó vir'ðist mér, að síðar hafi kom- ið í ljós, að Guðmundur Ragnar hefur ekki alltaf leitað lengi að færasta vaði hverrar smásprænu, sem á vegi hans hefur orðið, hafi hann viljað komast leiðar sinnar. Hann hefuir þá bara hent sér yfir, og að því ég bezt veit alltaf náð bakkanum. Á þessaxi öld bókfræðslu- manna, yrði fermingarundirbúning ur Guðmundar R. sjálfsagt talinn heldur lítið veganesti til mikils frama á lífsleiðinni, — en gjörst tala verkin þar um. Strax í æs'ku tók hann virkan þátt í öllum umsvifum á barn- mörgu heimili foreldra sinna. 4f þeim lærði hann verkshátt allan til lands og sjávar eins og bezt þekkt- ist á þeim árum, og haiði auk þess fengið í vöggugjöf þat hyggindi, sem í hag koma. Guðmundur var sneiirma þrek- mikill kjarkmaður. Hann iðkaði talsvert glímu, sem þá var vinsæl ungra manna íþrótt, og náði þar þeim árangri að flestir töldu sig mega við una, þótt gistu góll, gengju þeir til leiks við hann. Ein var sú íþrótt, sem hann öðr- um fremur lagði sig miög eftir. Hann byrjaði ungur að fara með byssu, og varð bar flescum mönn- um færari. Þeir feðgar höfðu lengi refaeldi i Grimsey. Litðu refirnir þar í al- geru sjálfræði, því að eyjan er stór og býður upp á mikla möguleika. Það þurfti þvi snialla sKotmenn til að ná þeim öHom á réttum tíma. Ekki var Guðmundur síður sporadrjúgur um Bjarnarfjarðar- háls, ætti hann þar von viihrefa. Hann þurfti heldur ekki að ganga marga kynliði til baka, svo að hann gæti fundið uppruna áráttu sinnar, faðir hans var víðfræg grenjaskj’tta, og þótti flest vel tak- ast í viðureign sinni við melrakk- ann. En það voru ekki refir einir, sem urðu skotfimi Guðmundar Ragnars að bráð. Sagt var, að sum ár hefði hann verið full svo drjúgur sei- fangari, sem þeir bændur, er yfir selplöndum réðu. Mun þeim ýms- um hafa fundizt nóg um veiðigleði hanis, og jafnvel þótt nærri sér höggvið. En í því sem öðru á langri leið, kunni hann að aka þannig segl um eftir vindi, að engum mætti hann áföllum. Guðmundur Ragnar kvæntist Margréti Guðbrandsdóttur hrepp- stjóra frá Veiðileysu í Árneshreppi. Hún var fósturdóttir þeirra Reykja víkurhjóna, Arngríms Jónssonar og Kristbjargar Róselín Magnús- dóttur. Ekki hygg ég að Guðmundur telji á sinn hlut hallað, þótt sagt sé, að þar hafi hann eignazt lífs- förunaut, sem gerði sór far um að stækka hann í ljósi beztu eðlis- eiginda þeirra beggja. Þau hjón, Guðmundur og Mar- grét hófu búskap í Bæ og hafa bú- ið þar farsælu, sífellt vaxandi rausnarbúi langa ævi, hjónaband þeirra hefur verið eins og vænta mátti, byggt á gagnkvæmum skiln- ingi, ást og umhyggju. Ekki er það of mælt, að Bær í 25

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.