Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Qupperneq 23

Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Qupperneq 23
SJÖTUGUR: ÓLAFUR TRYGGVASON HUGLÆKNIR Einn af kunnari íslendingum síð tistu áratugina er sjötugúr — mað ur, sem hefur varið miklum hluta ævi sinnar til þess að lina þraut- ir og sefa sorgir Tífs og liðinna, og ástundað samband við herra Ijóssins af meiri reisn og trúnaði en flestir aðrir — maðu-r, sem með líferni sínu hefur sýnt, að hann getur tærri rödd sungið af innsta hrjartans grunni: „Ég trúi á kærleiks blæinn blíða, sem birtist, Jesús, fyrst í þér“. Ólaf Tryggvason huglækni frá Hamraborg við Akureyri er annars óþarft að kynna, svo þekktur sem hann er af lífi sínu og starfi. Og ætt hans og einstaka æviþætti kann ég lítt að rekja. En rætur Ólafs liggja í langgróinni bænda- menningu, enda Þingeyingur og gæddur mörgum þeim eðliskost- um, sem öld fram af öld hafa ver- ið aðalsmerki okkar beztu manna. Það sýndi sig líka meðan hann bjó í sveit —- og það voru ekki svo fá ár — að hann skorti ekkert til framkvæmda og fremstu forystu meðal sveitunga sinna. Hins vegar grunar mig, að Ólafur hafi ekki til full's „verið ineð sjálfum sér“ þau árin, er hann var innanbúðar- maður, enda þótt það væri hjá KRON og hann heilshugar sam- vinnumaður! En æðri kraftur leiddi þennan að sumu leyti undarlega gerða sveitamann frá orfi, hrífu og búð- arborði til æðri starfa á hærra plani, svo sem þjóðinni er fyrir Töngu fullkunnuigt um. Huglækn- ^ngar Ólafs i áratugi og til viðbót- ar merk ritstörf hans síðari árin, hafa leitt þemnan hógværa og hjartalítilláta mann til höfðings- skapar í sveit andlegra leiðtoga á hinum nærtækasta og viðkvæm- asta vettvangi. Þeir eru margir, sem dá Ólaf og telja hann í orð- úm og athöfn hafa veitt þeim meiri hlessun en flestir ef ekki allir aðr- ir menn. Sárar reynslustundir vina °g vamdamanna, þegar líðan og ÍSLENDINGAÞÆTTiR jafnvel líf þeirra nánustu blaktir á skari gleymast ekki svo gjarna, og e.t.v. enn síður þá, er rofa tók til á myrkum sorgarhimni og sól kornst hæst á loft. Kraftaverk ske enn í dag. Guðd sé lof. En þau koima ekki algerlega af sjálfu sér, hvar og hvenær sem er. Krafta- verk þurfa vissar lágmarksforsend ur. Þau hafa ekfci svo fá átt sér stað fyrir milligöngu og framlag Ólafs Tryggvasonar, þessa hugum- stóra boðbera ljóssins og kærleik ans, sem svo lengi hefur átt stór- brotna og dýrlega tveggja heima sýn útfyrir mannleg örlög. og gert sér svo einstætt far um að veita þessari náðargáfu sinni út til sam- ferðamannanna af dæmafárri dirfsku og karlmennsku. Hann hef ur auðgað anda sinn og annarra flestum frem.ur. En ekkert er fjær Ólafi Tryggva syni en að láta þakka sér. Hann hefur alla tíð í lotningu og auð- mýkt litið á sig sem verkfæri í hendi alföður. Hins vegar hefur hann ekki afneitað hlutverki sínu og nauðsyn þess — ekki farið dult með skoðun sína á „þöirf almættis- ins“, ef ég má komast svo synd- samlega að orði — fyrir meðal- göngu og sambandsgjöf í ljóskerfi lífsins, rétt eins og nauðsyn ör- yggjanna í rafkerfinu, þannlg, að orkustraumur lífs og ljóss geti óhindrað náð til yztu marka með bjargandi og blessandi hjálpráð síin. Ekki get ég endað þessi fátæk- legu orð min af tilefni sjötugsaf- mælis Ólafs Tryggvasonar án þess að minnast þess, hversu aðgengi- legur og aðlaðandi maður hann er í mikilleik sínum. Suniir, sem ekki þekfcja til persónuleika Ólafs, en aðeins álengdar til hinna alvarlegu verka hans og í hæsta máta ábyrgu lífsafstöðu, gætu e.t.v. freistazt til þess að halda, að hann sé einn af þessum heldur leiðinlegu andstæð- um hinna glaðbeittu og lifsglöðu manna, er taka undir vísdómsorð- in: „Grátandi augu fá aldrei guð séð“. En Ólafur er allra manna kátastur og skemmtilegastur í vina hópi — gersamlega fordómalaus og sýnt um að eygja hinar bros- legu'hliðar lífsins ekki síður en þær alvarlegu. Hann er hafsjór lif- andi sagna úr mannlífinu i kring um hann, elskulegur og blátt áfrarn til orðs og æðis. Það þarf því ekki að setja upp nein settleg- heit eða fara í ákveðnar sparistell- ingar í návist hans. Það er ógleym- anlegt að eiga með Ólafi kyrrar kvöldstundir og bergja af nægta- brunni vitsmuna hans, rökhyggju og göfgi, sem allt mótast af sér- stæðrj lífsreynslu hans og heiðri lífssýn. En veifiskati er Ólafur eng inn, skapríkur og fylginn sér, vel máli farinn og ágætlega ritfær, eins og bækur hans bera með sér, lyriskur og söngvinn. Ég færi Ólafi vini mínum þakk- ir ofckar hjóna fyrir góðar stund- ir á heimili okkar, þótt færri séu en við vildum. Óg mér er vist óhætt að segja, að við, sem lítil'lega höfum tekið þátt í bænarhreyf- ingu þeirri, er hann hefur lirund- ið af stað meðaT fáirra manna enn- þá, styrkt og leitt, vottum þessum bjarta talsmanni ljóss og kærleifca þakklæti og virðingu á merkum 23

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.