Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Page 26

Íslendingaþættir Tímans - 26.08.1970, Page 26
MINNING VILBORG JÓNSDÓTTIR ég alltaf ríkari af reynslu og trá á landið og framtíðina. Prú Sigurlaug dvelur nú á heirn ili dóttur sinnar og tengdasonar — frú Vigdísar og Jóns Sigbjörnsson- ar. Ég vil að endingu þakka þér Sigurlaug fyrir störfin þín í sveit- inni okkar, og óska þér allrar blessunar. Daníel Kristjánsson frá Hreðavatni. Sigurlaug Guðmundsdóttir fyrr verandi húsfreyja að Hvammi í Norðurárdal átti áttræðisafmæli hinn 24. iúlí. Hún er dóttir Guð- mundar Ólafssonar, bónda á Lund um og konu hans Guðlaugar Jóns- dóttur. Sigurlaug ólst upp við mik inn og mjög myndarlegan búskap og bar jafnan merki rismikillar sveitahúsfreyju. Hún var í tölu glæsilegus'u jafnaidra sinna, há, beinvuKin, Lrileg og vel farin í andliti. Ung að árum fór hún í Kvennaskólann á Blönduósi og brautskráðist þaðan Árið 1916 gekk Sigurlaug að eiga Sverri Gíslason (prests Einars sonar í Stafholti) og hófu þau bú- skap að Hvammi sama ár. Þar var ekki til einnar nætur tjaldað. Þau hjón bjuggu þar síðan stóru búi og annasömu þangað tl Sverrir lézt vorið 1967. Guðmundur sonur þeirra hafði þó búið á meiri hluta jarðarinnar síðari árin. Síðan hef- ir Sigurlaug lengstum dvaiið hjá Vigdísi dóttur sinni og rnanni hennar, Jóni Sigurbjörnssyni, að Skólabraut 37 á Seltjarnarnesi og mýtur þar góðrar umönnunar á efri árunum. Þótt búsönn væri jafnan mikil í Hvammi og margt þyrfti að fram kvæma jörðinni til nytja og efl- ingar bústofnsins, við fremur þröngan fjárhag framan af, er vænkaðist þó síðar fyrir atorku þeirra hjóna og forsjálni, var aldrei látið sitja við hugsunina um búskapinn einan. Sverrir tók jafn- ' an afdrifamikinn þátt í öílum helztu málefnum sveitar sinnar og sýslu og var þar jafnan i fremstu röð. Þar á ofan bættist svo for- mennska í Framleiðsluráði og Stéttarsambandi bænda. Leiddi af þessum störfum húsbóndans tíðar fjarvistir hans frá heimilinu. Gestagangur var og jafnan mik- 111 á heimilinu, sem að Tíkum læt ur, þar sem margir áttu erindi við heimilið. Hlutur húsfreyjunnar á Frá bernsku og unglingsárum á ég margar minningar, sem tengd- ar eru hjónunum í vesturbænum á Hlemmiskeiði, þeim Vilborgu Jónsdóttur og Þorgeiri Þorsteins- syni. Milli þeirra og foreldra minna var órofin vinátta, sem ent- ist, þar til yfir lauk. Vilborg Jónsdóttir fæddist í Efra-Langholti í Hrunamanna- hreppi 9. maí 1887 og lézt í Beykja vík 2. aprfl' síðastliðinn eftir stutta legu. Foreldrar Viiborgar voru Jón Jónsson, bóndi og smiður, er lengst bjó á Hlemmiske'iði á Skeið um, og kona hans, Vilborg Guð- laugsdóttur frá Hellum á Landi, Þórðarsonar. Foreldrar Jóns á Hlemmiskeiði voru Jón Árnason, bóndi á Lága- felli í Landeyjum, og kona hans, Margrét Jónsdóttir frá Næfurholti. Jón á Lágafelli var sonur Árna Finnbogasonar, bónda á Reynifelli (Reynifellsætt). Voru þeir Jón á Hlemmiskeiði og Guðni hrepp- stjóri í Skarði bræðrasynir, og Jón og Guðmundur Árnason hrepp- stjóri í Múla voru af öðrum og þriðia að frændsemi. Vilborg Guðlaugsdóttir, kona Jóns á Hlemmiskeiði, var systir Þórunnar, konu Árna Kollin Jóns- sonar í Látalæti á Landi, en sonur Árna Kollin og Þórunnar var Guð mundur hreppstjóri í Múla. slíkum heimilum verður hvorki metinn né veginn, en geymist í hugskoti þeirra, er að garði ber. Börn þeirra voru þegar í æsku óvenju þroskuð og jukust áhuga- mál þeirra, er árin liðu. Foreldrar og börn áttu sameiginleg hugðar- mál i afstöðu til þjóðmáTa og hér- aðsmála, og ræddu um þau af áhuga. Sigurlaug er kona vel greind og gerir sér glögga grein fyrir þjóð- málum og félagsmálum í sveit og sýslu. Hún mun og hafa tekið góð an þátt í kvenfélagsmálum sveitar sinnar. Börn þeirra eru: Guðmundur hreppstjóri í Hvammi, kvæntur Sigríði Stefánsdóttur, Andrés, bif- reiðarstjóri, kvæntur Ernu Þórðar- Þau hjón, Jón Jónsson smiður og Vilborg Guðlaugsdóttir, byrj- uðu búskap með sama og engin efni. Vorið 1882 voru þau farin að hugsa til búskapar og voru bú- in að koma sér upp nokkrum bú- stofni. En þá um sumarmálin dundi yfir sandveðrið mikla, sem næstum því hafði lagt Landsveit og Rangárvelli í auðn. Margar fjöl skyldur, sem höföu verið vel efna lega sjálfstæðar, komust þá næst- um á vonarvöl. Margar jarðir, sem þá fóru í eyði, hafa ekki byggzt síðan. Þetta vor misstu þau Jón og Vilborg næstum allar skepnur sínar, af sextíu ám lifðu aðeins sjö. Einnig áttu þau nokkuð af kaupi inni hjá húsbændum sínum, en eftir þetta mikia áfall gat eng- inn borgað neitt. Þau bjuggu á ýmsum stöðum, en lengst í Efra-Langholti. Vorið 1901 fluttu þau að Hlemmiskeiði, og við þann stað voru þau kennd. Upp úr aldamótunum fór Ioks að rofa nokkuð til um efnahag bænda. Á Suðurlandi stofnuðu bændur rjómabú, sem bjuggu til smjör fyrir enskan markað. Þessi starfsemi markaði tímamót í sveit- unum. Nokkrum árum seinna kom svo ungmennafélagshreyfingin, sem oTli ekki minni tímamótum i menningar- og félagsmálum, þar sem hún náði verulegri fótfestu. f bókinni Víkingslækjarætt, dóttur, Vigdís gift Jóni Sigur- björnssyni deildarstjóra, Ólafur kaupfólagsstjóri 1 Borgarnesi, kvæntur Önnu Ingadóttur, Ásgeir, tónlistarmaður, kvæntur Sigríði Magnúsdóttur, Einar, viðskipta- fræðingur, kvæntur Vilborgu Þor- geirsdóttur kennara. Sem móðir og eiginkona hygg ég, að Sigurlaug eigi fáa sína líka, enda hefir hún verið þar heppin með hlutskipti sitt. Ég flyt Sigurlaugu mágkonu minni þakkir fyrir ágæt kynni og góðar viðtökur jafnan á heimili hennar fyrr og síðar og óska þess, að hún megi, sem lengst lifa við friðsæl og hamingjui'ík efstu ár. Kristján Jónsson frá Garðsstöðum. 26 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.