Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Side 15

Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Side 15
vinur“, til nýrra bjartari hugheima og þökk fyrir ástundun þína í sam fylgdinni. Frænd- og vinkona. f Þann 28. febrúar s.l., andaðist á Landspítalanum Guðmundur Guðjónsson, Saurum í Helgafells- sveit, eftir langa og erfiða sjúk- dómslegu. Var hann á 75. aldurs- ári er hann lézt. Ég ætla ekki með þessum línum að fara að rekja ævi feril hans og störf. eða lýsa gáfum hans og menntun, sem hvort tveggja var einstakt. Ég vantreysti mér til þess og veit einnig að það hefði ekki verið að hans skapi. Mig langar aðeins að^enda þess um vini mínum og frænda fjöl- skyldu minnar, fáein þakklætis og kveðjuorð. Hann var ætíð tilbúinn að taka viljann fyrir verkið, svo ég veit það verður fyrirgefið þó þessar línur verði fátæklegar. Guðmundur kom ungur að Saur um og átti þar heima upp frá því við mjög breytilegar aðstæður. Á yngri árum í stórum systkinahópi, seinna meir með tveimur systkin- um í sambýli við bróður hans og fjölskyldu. Nú síðustu ellefu árin voru þeir þar tveir, hann og Þor- steinn bróðir hans. Það hefur sagt mér merk kona, sem dvaldist á æskuheimili Guðmundar, að meira hreinlæti og snyrtimennsku inni og úti, hafi hún hvergi séð á nokkru heimili. Við þetta ólst hann upp og mótaðist þannig, að hreinlætið var hluti af honum sjálfum, hann hirti minna um skartklæði og tízkufatnað, því allt slíkt var hégómi í hans augum. Guðmundur unni mjög sinni heimabyggð og vildi hlut sveitar sinnar sem mestan og beztan. Þar hafði hann starfað beztu ár ævinn- ar við barnakennslu, svo ekki fór hjá því að áhrifa hans gætti hjá unga fólkinu, sem þar óx úr grasi. Einnig hafði hann sívak^ndi áhuga á félagsmálum. Hann var einn af þessum sönnu félögum í ung- mennafélagshreyfingunni og í þeim anda vann hann að hverju því máli, sem honum þótti til bóta horfa og var þá jafnan trúr sinni sannfæringu við hvem, sem var að glíma. Guðmundur var ókvæntur og barnlaus, en það voru samt marg- ir sem nutu hans föðurumhyggju. Ekki sízt þau bróðurbörn hans, sem tiltölulega ung misstu föður sinn. En frændrækni hans og um- hyggja náðu samt miklu lengra, því fjarskyldari smáfrændur nutu þess hver af öðrum, að vera í skjóli þeirra bræðra, sumarlangt og jafnvel vetrartímann líka. Því dáðist ég oft að, af hve mikilli kostgæfni þeir hugsuðu um vel- ferð þessara drengja, sem liðu svo sannarlega ekkert fyrir, þótt kven- fólk, þeir margrómuðu hornstein- ar heimilanna, fyrirfyndist ekki í bænum. Það eru nú nær sextán ár frá því ég hitti Guðmund á Saurum fyrst. Þá strax mætti ég þessari góðvild og hlýju, sem einkenndi alla hans framkomu við mig og mína alla tíð. Betri og sannari frænda en hann var okkar heimili, get ég ekki hugsað mér. Að fá hann í heimsókn var ævinlega gleðiefni og þá hafði ég alltaf sér- staka löngun til að sitja í ró og næði, spjalla og njóta stundarinn- ar því gáfur hans, fróðleikur og ekki sízt góður hugur til manna og málefna, urðu til þess, að það var ætíð svo rnikill ávinningur, að ræða við hann. Hitt er svo annað mál, að hugur hans sveif oft miklu lengra og hærra, en svo að hægt væri að fylgjast með honum á fluginu. En eins og allir vita sem til þekktu, þá þurfti ekki lengi að ræða við hann til þess, að í ljós kæmi, að hann bjó yfir óvenju- legri þekkingu, enda var hann alla tíð að lesa og afla sér meiri fróð- leiks og átti ógrynni góðra bóka. Margar ferðir höfum við átt að Saurum í góðu veðri bæði sumar og vetur, þessi ár, sem við höfum búið hér í nágrenni við þá bræð- ur. Við höfum notið þess að vera þar eins og heimagangar, hVort heldur var í Sauraskógi eða heima við. En eiga svo rólega stund yfir góðum veitingum hjá þeim bræðr- um á eftir. Þetta eru stundir, sem börnin eiga sem ljósgeisla í minn- ingunni, enda oft á það minnzt. Guðmundur dvaldist nokkra mánuði á sjúkrahúsi í fyrravetur og fram á sumar, en eins og hann orðaði það siálfur, þá fékk hann frest til að skreppa heim og vera nokkrar vikur. Hann naut þess, að vera heima á Saurum þetta síðasta sumar og þótt heilsan væri ekki góð var hans meðfæddi kjarkur ávallt sá sami. Hann vissi svo vel að hverju iró, en var þakkiátur fyrir þessar fáu vikur. Svo tók önnur spítalalega við, sem einnig stóð í marga mán- uði. Þetta varð erfítt og langt stríð, en aldrei var kxartað í eitt einasta sinn, honum var alltaf ofar í huga áhvggjur af því, að ættingj- arnir hefðu of mikla fyrirhöfn sín vegna. En svona var hann ævinlega, hann siálfur var aukaatriði, ann- ara velferð var honum ofar í huga. Þessar línur eru skrifaðar, sem þakkarkveðia, en svo þakklát, sem ég er lionum fvrir svo ótal margt, þá er ég fyrst og fremst þakklát fvrir kvnnin af Guðmundi á Saur- um og fvrir vináttu hans. Guð blessi minningu þess sanna drengskaparmanns, sem við kveðj- um nú með bakklátum hug. María S. Gísladóttir. fSLENÐINGAÞÆTTIR 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.