Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Side 26

Íslendingaþættir Tímans - 12.05.1971, Side 26
ÁSGEIR GUÐMUNDSSON FRÁ ÓFEIGSFIRÐI F. 30. scpt. 1891. D. 6. marz 1971. Ásgeir Guðmundsson frá Ófeigs- firði lézt í Sjúkrahúsi Akraness 6. marz s.l. eftir stutta legu, tæp- lega áttræður að aldri. Útför lians var gerð frá Akraneskirkju 13. marz. Ásgeir fæddist í Ófeigsfirði á Ströndum 30. sept. 1891. Foreldr- ar hans voru Guðmundur Péturs- son frá Melum og síðari kona hans. Sigrún Ásgeirsdóttir frá Heydalsá í Steingrímsfirði. Fyrri kona Guð mundar var Elísabet Þorkelsdóttir frá Ófeigsfirði, en hún lézt eftir stutta sambúð frá 4 ungum börn- um, mislingasumarið 1882. Guð- mundur og Sigrún í Ófeigsfirði eignuðust 11 börn, en aðeins 7 þeirra komust til aldurs. Eru 5 þeirra á lífi. Systurnar: Hallfríður, Ravnheiður og Sigríður og bræð- urnir: Pétur og Guðmundur. Torfi bróðir þeirra — kaupfélagsstjóri á Norðurfirð'j — lézt á bezta aldri. Guðmundur 1 Ófeigsfirði var kunnur stórbóndi á sinni tíð, og hafði mikil umsvif. Hann var lengi hákarlaformaður á hinum kunna teinæringi — Ófeigi — og nytjaði ve! hin margþættu hlunnindi jarð- aritinar, enda var þá jafnan um 20 manns heimilisfast í Ófeigsfirði. Ásgeir hóf snemnta störf með föð- var þar unnið af sömu vandvirkni sem einkenndi störf hans öll. - Á heimili Magnúsar og Halldóru, sem er einstaklega hlýlegt, hefur ávallt ríkt sérstakur andblær, sent einkennir það bezta í fari aldamóta kynslóðarinnar. Þar hefur ávallt verið gestkvæmt, frændur og vin- ir margir, gestrisni og viðmót hús- ráðenda því aðlaðandi. Ánægjulegt var að njóta gleði- stunda með Magnúsi, hann naut sín vel í góðra vina hópi, fróður og skemmtilegur, hagmæltur vel, ur sínum og fór með honum í há- karlalegur 14 ára að aldri. Var hanp fljótt tápmikill til allra verka og hagur vel á tré og járn, eins og frændur hans margir, enda átti það fyrir honum að liggja síðar að stunda smíðar sem aðalatvinnu i mörg ár. Námsáhugi og góð greind kom snemma í ljós hjá Ásgeiri. Hann fór 16 ára í unglingaskóla að Hey- dalsá í Steingrímsfirði, sem Sigur- geir Ásgeirsson — móðurbróðir hans — rak þar í mörg ár. Þá fór en fór dult með, höfðinglegur og minnti á fornar kempur með glæsi leikann sér við hlið. sem ávallt hefur borið áskapaðan virðuleik. Slíkar minningar er gott að eiga. Því kveð ég með söknuði minn góða nágranna með einar saman Ijúfar myndir í huga. Að lokum sendum við lijónin frú Halldóru, sonum þeirra og öll- um ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Björgvin Frederiksen. hann 18 ára í bændaskólann að I-Ivanneyri og dvaldist þar í 2 vet- ur — 1909—1911. Þá var Ilalldór Vilhjálmsson skólastjóri á Hvann- eyri — mikill skörungur og leið* togi ungra manna — sem Ásgeir dáði rnjög. Bjó hann æ síðan að skólavistinni á Hvanneyri. Á þeim árum fór um landið hressandi vakn ingaralda. Sjálfstæðisbaráttan náði þá hámarki sínu, og ungmennafé- lagshreyfingin fór sem eldur í sinu um allar byggðir landsins. Það færðist ljómi yfir svip Ás- geirs, er hann minntist þessara ára. Svo var einnig um marga jafnaldra hans. Nokkru eftir heimkomuna frá Hvanneyri eða 1914, kvæntist Ás- geir, Valgerði Jónsdóttur bónda í Tröllatungu Jónssonar frá Lauga- bóli í Nauteyrarhreppi. En móðir hennar var Ilalldóra Jónsdóttir frá Hjöllum i Þorskafirði. Valgerð- ur var glæsileg og góð kona, eins og hún átti kyn til. Þau hófu bú- skap að Óspakseyri í Bitru, en flytja 1916 a'ð Krossnesi í Árnes- hreppi og búa þar í 27 ár eða til 1943 að Ásgeir flytur til Akraness með fjölskyldu sína. og þar bjó hann til æviloka. Krossnesið var lítil jörð,.en Ásgeir stórbætti hana með túnrækt og auknum bygging- um. Við þennan stað var hann oft kenndur síðan. í Árneshreppi gegndi Ásgeir mörgum trúnaðarstörfum. Var lengi hreppsnefndar- og sýslu- nefndarmaður. Formaður stjórnar kaupfélags Strandamanna í Norð- urfirði og kaupfélagsstjóri þar í 8 ár. Á Akranesi var Ásgeir bæjar- fulltrúi 1950—1954 og átti um langt skeið sæti í rafveitustjórn bæjarins. Valgerður, kona Ásgeirs, liafði löngum orðið að þola þung- bær veikindi. Var þetta aðalorsök þess, að hann fluttist úr sveitinni og átthögum sínum, svo hún gætl átt hægari daga. Valgerður andað- 26 ÍSLENDINGAÞÆTTIR

x

Íslendingaþættir Tímans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.