Íslendingaþættir Tímans - 23.01.1972, Side 26
Runólfur Sigtryggsson
fyrrum bóndi að Kleif Breiðdal
22. nóvember 1971, andaðist á
Borgarsjúkrahúsinu í Reykjavík
Runólfur Sigtryggsson fyrrum
bóndi að Kleif í Breiðdal. Runólf-
ur fæddist að Egilsstöðum í Fljóts-
dal 27. september 1894. Foreldrar
hans voru hjónin Sigtryggur Þor-
steinsson og Hallfríður Runólfsdótt
ir. Þau bjuggu lengst að Klaustur-
efni ungra vísindamanna í bók
menntum á komandi tímum.
Ásta Sigurðardóttir er öllum
harmdauði sem þekktu hana fyrr
og síðar.
Við félagar hennar sendum börn
um hennar. ei/ginmanni og öðrum
ástvinum okkar samúðarkveðiur.
Rithöfundafélag fslands.
f
K V E Ð J A
í dagsins önn
í dimmu vetrar
drjúpir hugur.
Löng er bið þess
er verða mun
eitt sinn öllum.
Kvöld um vor,
vegur i blómum,
vængjaþytur í lofti,
sólris 1 eldi;
sporlétt von þess
er vakir.
Gengin að vetri
vegferð á enda,
sárum fótum,
sviðnar iljar;
svo er vegurinn allur
Ásta. Krisfján Bender.
oen í joKuidal og Brunnahvammi
i Vopnafirði. Þannig ólst Runólfur
upp í fjallabyggðum við frelsi ör-
æfanna og sumardýrð, en fékk
einnig að reyna feikn þeirra og
harðneskju.
Árið 1919 gekk hann að eiga eft
irlifandi konu sína Þórunni
Jóhannsdóttir frá Hvammi í Fá-
skrúðsfirði. Voru þau gefin saman
í Hofteigskirkju á Jökuldal.
Þau dvöldu í dalnum fyrsta ár-
ið, en fluttu þá að Hvammi, og
litlu síðar að Kleif í Breiðdal, þar
sem þau bjuggu allan sinn búskap.
Þau fluttust til Reykjavíkur 1949
og dvöldust þar æ síðan. Þeim
hjónum varð 6 barna auðið,
og þau eru: Birna gift Sig-
urði Guðmundssyni, Sigtryiggur,
kvæntur Guðbjörgu Sigurpáls-
dóttur, Árný gift Vilhjálmi
Þorbjörnssyni, Rósmundur kvænt
ur Guðrúnu Finnbogadóttur,
Jóhann kvæntur Sigríði Guð-
björnsdóttur. Árið 1940 misstu þau
Frímann son sinn, andaðist hann
snögglega á afmælisdaginn sinn,
þegar hann var 17 ára, mesti efn-
is piltur.
Sorgin barði öðru sinni að dyr-
um hjá þeim, er dóttursonur
þeirra, Rúnar fórst úti í Englandi
með sviplegum hætti, er hann var
þar á ferð með íþróttaflokki í
keppnisferð, tvítugur að aldri.
Barnabörn þeirra eru nú 23 á lífi
og barnabarna börnin 18.
Hér sér maður dæmi þess hvern
ig borgin stækkar á kostnað hinna
dreifðu byggða því fjölskylda Run
ólfs býr öll í Reyikjavík.
Kynni okkar Runólfs hófust þeg
ar hann fluttist að Kleif, bættist
hann í hóp þeirra manna, sem
komu heim til mín haust og vor
á leið sinni til smalamennsku
á Þorvaldsstaðaafrétt. Gangna-
menn komu að kvöldi og gistu, því
að ekki veitti af að taka daginn
snemma, ef átti að draga og ikoma
fénu frá sér í björtu. Gangnadag-
urinn fyrsti var skemmtilegasti
dagur ársins, og biðum við strák-
arnir eftir því með óþreyju að
verða með á.fjall. Við litum upp
til gangnamanna, og menn eins og
Runólfur, sem komu á hverju ári,
urðu okkar menn, og bundumst við
þeim vináttuböndum er héldust
æ síðan. Ruólfur var dulur mað-
ur í skapi, hæglátur, rammur að
afli, þéttur fyrir, ef því var að
skipta, vinfastur og óáleitinn. Og
ætla ég að hann hefði reynzt ör-
uggur stafnbúi á langskipum forn-
aldarinnar, ef hann hefði verið
uppi á beirri ííð.
Runólfur minn, þú hefur gert
þín hinztu fjallaskil, og lagt á móð
una miklu. En skilið eftir það.
sem dýrmætast er hverjum manni
— hinn stóra og gjörvufega hóp
afkomenda, er þú munt lifa í um
ókomin ár. Svo sendi ég þér kærar
kveðiur og bið eftirlifandi konu
þinni og afkomendahópnum stóra
gengis og blessunar.
Sigurður Jónsson
frá Þorvaldsstöðum.
26
ISLENDINGAÞÆTTIR