Heimilistíminn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 3

Heimilistíminn - 07.03.1974, Qupperneq 3
Ofangreind orð voru raeðal þess sem datt upp úr Guðrúnu Á. Simonar, er hún var að taka upp afmælisgjafirnar sinar, sunnudagskvöldið 24. febrúar sl. Það er alveg áreiðanlegt, að ef allar afmælis- veizlur hennar verða jafn skemmtilegar og þessi, þá eru orðin sönn og ekki aððeins fyrir liana, heldur alla viðstadda. Guðrún átti tvöfalt afinæli þennan konudag, venjulegt afpiæli og söngaf- mæli. Vinkonur hennar og söngsystur, eitthvað 50 talsins fengu m jög svo upplifg- andi boðskort i Félagsheimili Fóstbræðra á afmælisdaginn og efnt var til veizlu. Það er að vei Það er ákaflega erfitt að 'ýsa svona ein- stakri veizlu i orðúm, en þó ætla ég að leit- ast við það og vonandi bæta myndirnar hans Gunnars mikið úr þegar orð vantar. Þuriður Pálsdóttir, söngkona, stóð við dyr veizlusalarins, hringdi bjöllu við hvern gest og kynnti hann með nafni, um leið og hann gekk inn. Eins og fyrr segir, var þetta kvennaboð, en nafnar tveir af karl- kyni fengu þó inni, þeir Gunnar M. Magnúss., rithöfundur og Gunnar, ljós- myndari Timans. Sá þriðji kom og bætti um betur, en meira um hann seinna. Guðrún stóð við hlaiðið, skrautlegt gjafaborðið og heilsaði hverjum gesti. Hún var klædd fagurgrænum kjól og að venju mikilfengleg i útliti og framkomu, enda ekki að ástæðulausu kölluð „hers- höfðinginn’’ af vinkonum sinum, eins og fram kemur i bók hennar. Þegar sezt var að boröum, hófst dag- skráin með þvi, að Gunnar M. Magnúss. sagði nokkur orð um samvinnu þeirra Guðrúnar við sköpun „afkvæmis” þeirra, bókarinnar „Eins og ég er klædd” sem þaut langt upp fyrir alla vinsælda- lista siðasta bókaflóðs. Hann gat þess, að Guðrún hefði oft talað um hvað hún hefði þráð að eignast dúkkuvagn, en aldrei fengið. Siðan afhenti hann afmælisgjöf sina, stóran kassa. Hvað skyldi svo sem hafa verið i honum — nema hinn langþráði dúkkuvagn? Mikil varð gleði Guðrúnar, og vagninn 'var meira að segja i uppá- haldslitnum hennar, blágrænn. Dúkkan, bara ga sem Guðrún eignaðist 13 ára, var sótt og sett i vagnÍTjiyog Guðrún ók honum alsæl um sviðið. „Það getur vel verið, að ég eigi eftir að sjást með hann i Vesturbænum” tilkynnti hún. Viðstaddir fögnuðu geysi- lega, þvi þetta var hin bezta skemmtun. Næst • söng Svala Nielsen „Summer- time” úr „Porgy og Bess” eftir Gerschvin og þá sungu þær Eygló Viktörsdóttir, Þuriður Pálsdóttir, Margrét Eggertsdótt- ir og Svala Nielsen „Mariuvers” Páls tsólfssonar. Guðrún Kristinsdóttir lék undir. Þar næst tók Þuriður Pálsdóttir til máls og óskaði Guðrúnu til hamingju fyrir hönd Félags islenzkra einsöngvara, en siðan kom Margrét Eggertsdóttir með kórónu eina mikla úr rauðum glanspappir og krýndi afmælisbarnið „drottningu is- lenzkra söngkvenna i dag” og ekki minnkaði reisn Guðrúnar við kórónuna. Til lesenda Heimilis-Tíminn, eins og þetta nýja blaö heitir, mun verða fylgirit Tímans fram- vegis, þar sem Sunnudags- blaðiö er nú hætt að koma út. Heimilis-Timanum er ekki beinlínis ætlað að vera neinn menningarviti, heldur er til- gangurinn, að allir í f jölskyld- unni geti þar fundið sér eitt- hvað að lesa og dunda við. I ritinu verða framhaldssög- ur, bæði fyrir börn og full- orðna, smásögur, matarupp- skriftir, handavinna og alls kyns heimiiisdútl, eitthvað um smíðar, húsráð, greinar um ýmis efni, til skemmtunar og fróðleiks, skrýtlur, gátur og fleira. Myndasaga fyrir börn mun vera á leiðinni, en kom ekki í tæka tíð f yrir þetta blað. Langi einhvern til að vita eitthvað, er bara að senda línu, því við höfum orðið okkur úti um alvitra manneskju, sem svarar spurningum. Utan- áskriftin er Heimilis-Tíminn, pósthólf 307, Reykjavik. Heimilis-Tíminn verður 48 síður vikulega og fylgir Tímanum til áskrifenda á fimmtudögum. Hins vegar fylgir það ekki blaðinu í lausa- sölu, en er selt á 50 krónur. Snjólaug Bragadóttir 3

x

Heimilistíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.