Heimilistíminn - 07.03.1974, Side 16

Heimilistíminn - 07.03.1974, Side 16
i dagvöruskápnum Þetta venjulega, hveiti, sykur, rasp, kakó. te, kaffi og svoleiöis, er alltaf til — en munið að skrifa hjá ykkur, þegar langl er gengið á birgðirnar. Auk þessa er gott að eiga talsvert af hrisgrjónum og spag- hetti, pakka af kartöflumús, saltkex og tómatmauk i litlum dósum. Þá ætti að vera til ein eða fleiri kryddsósur á flöskum. Niðursoðnar rauðrófur, asiur, pickles og gúrkur gæti lika komið i góðar þarfir. Corn flakes, kex, þurrkaðir ávextir, matarlim. súkkulaði, kremduft og búðingsduft ýmiss konar er gott að hafa til að búa til ábæti af einhverju tagi. í niöursuöudósum Nokkrar tegundir af súpum, fiskbollur og fiskbúðing, cocktailpylsur, hrogn og niðursoðið kjöt. Auk þess l'ást ýmsar tegundir af tilbúnum réttum i dósum og slikur matartilbúningur tekur enga stund. Annað gott i dósum er til dæmis sardinur, túnfiskur, rækjur, lifrarkæfa sveppir, kræklingur. Þetta má geyma von úr viti i venjulegri geymslu, en vert er að muna, að flestar tegundir af sild i dósum eru þess eðlis, að þær þarf að geyma i kæliskáp. Grænmeti geymist bezt i frysti, en piparávextir og tómatar eru þó undan- tekningar. Þó að ekki sé smábarn á heimilinu, er ágætt að eiga barnamat i krukkum. Kjöt- og grænmetisréttirnir eru prýðileg fylling i eggjaköku og ávaxtamaukið er gott á tertur og ábæti og til eru nær óteljandi tegundir af þvi. í kæliskápnum Egg, tómatar, gúrkur, mayonnaise og remoulaði, ostur heill eða rifinn, geymist allt lengi i kæliskáp. Sitrónur og appelsinur mega gjarnan vera þar lika og ekki þarf að minnast á smjör og smjörliki. Nokkrir pakkar af niðurskornu bacon koma i góðar þarfir og eins og áður er sagt, á sild i dósum að geymast i kæli- skápnum einnig. i frystinum Þegar timinn er naumur, er bezt að snúa sér að kjöti og fiski i litlum stykkjum, en ekki heilar steikur eöa neitt stórt. Kótelettur, lærissneiðar, lifrar- sneiðar, tilreidd buff eða medisterpylsa lögð i hringi, svo hún passi á pönnuna, fiskbollur, kjötbollur, fiskflök og fisk- sneiðar er allt fljótmatreitt úr frystinum. Allt þetta þarf að frysta með smjörpappir eða seilófani á milli stykkja, þannig að ekki verði úr einn stór klumpur. Þegar frosinn matur er soðinn eða steiktur er hæfilegt, að ætla honum helmingi lengri tima en þiðum mat. Hægt er einnig, aö tilreiða heila rétti i álform og stinga i frysti. Þá er bara að stinga formunum inn i ofninn. Fransk- brauð, pylsubrauð og lagkökubotnar þiðna fljótt i 170 stiga heitum ofni. Að visu er ekki meiningin, að allt sem hér hefur verið talið, eigi að vera til á heimilinu. Hver og einn verður að meta þörfina og möguleikana. Hægt er að safna birgðunum smátt og smátt og fljótlega kemur i ljós, hvers er þörf i þeirri fjölskyldu. Hér koma þá nokkrar uppskriftir, sem fljótlegt er að gripa til, ef óvænta gesti ber aö garði: Pottréttur með mais 4-5 sneiðar beinlaust kjöt ca. 50 gr smjörliki 1 tsk. karrý 2 msk. hveiti sait og pipar 3-4 dl. kjötseyði eða súpa Hálfdós blandað grænmeti Frosin mais i kornum 1/4 gúrka Ef kjötið er tekið beint úr frysti, er það steikt á pönnu við hægan hita, þar til það er þitt. Þá er það skorið i bita, ekki mjög litla og sett i pott ásamt smjörlikinu af pönnunni. Karrý og hveiti stráð yfir. Kjöt úr kæliskáp er brúnað i pottinum i smjörliki og karrý. Látið krauma i pottinum þar til það er ljósbrúnt, bætið þá súpunni i og látið suðuna koma upp. Það er gaman að geta boðið óvæntum gestum að borða — en það getur stundum verið mikil list, einkum þegar ekki er til nema einn kjötbiti eða þar um bil til að metta marga munna. Hér eru uppskriftir á réttum, sem fljótlegast er að búa til, ásamt nokkrum ráðum um hvað gott er að hafa við hendina. Miðað er við 6-8 manns. 16 <

x

Heimilistíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.