Heimilistíminn - 07.03.1974, Síða 21
Gary Glitter hel'ur viðurkennt, aö
hann hafi raunverulega ábyrgðartil-
finningu gagnvart aðdáendum sinum.
Han vill hugsa um þær þúsundir, sem
gerðu draum hans að veruleika.
Draumurinn var að verða þekki popp
Stjarna. Allt frá þvi Gary gekk i stutt-
buxum. hefur hann ætlað sér þetta. t
hvert sinn sem einhver spurði hann,
hvaðhann ætlaði að verða, þegar hann
yrði stór, svaraði hann hiklaust: — Ég
ætla að verða frægur söngvari.
Fjórtan ára gamall gerði hann fyrstu
tilraunina. Honum fannst nafn sitt,
Paul Gadd, vera heldur flatneskju-
legt, svo hann tók að kalla sig Paul
Raven.Pessi fjórtón ára peyi var full-
ur af áætlunum og hikaði ekkort viö
hlutina, en hannvar þó i vandræðum
með að finna áheyrendur, sem likaði
við hann. Hann ferðaöist mikið um
England. en árangurinn var smár, að-
dáendurnir létu á sér standa.
I^oks kom að þvi, aö enginn þorði að
ráða til sin söngvarann Paul Raven frá
Banbur i Oxfordshire.
Skortur á tilboðum i heimalandinu
varð til þess. aö Paul fór til Þýzka-
lands. Þar dvaldist hann i fimm ströng
ár og sneri heim til Englands reynsl-
unni rikari, þó án þess aö hafa slegið i
gegn.
Paul Raven var vonsvikinn og
langaði mest til að gefast upp. Hann
ætlaði að fá sér venjulega vinnu, en
vinur hans i skemmtanaiðnaðinum
taldi, að fyrst ætti hann að reyna aftur.
Það fyrsta, sem hann stakk upp á, var,
að Paul skipli al'tur um nafn. Gary
Glitter áleit hann ágætis nafn á þeim
timum, þegar rokkið var að snúa aft-
ur. En Paul Raven var ekki viss um að
Gary Glitter væri gott nafn, en sam-
þykkti þó að reyna það.
Þannig fæddist Gary Glitter, og frá
fvrstu stundu ákvað Gary að láta rentu
fylgja nafni. Enginn gat komizt hjá þvi
að veita honum athygli á götu: Sóla-
þykkir skór og litskrúðugur. stundum
skinandi fatnaður. Og engin leið er að
lýsa þvi glitrandi umhverfi, sem hann
söng i.
Fyrsta platan var tveggja laga
..Rock’n Roll—Part I og Ilf’ Fjórum
mánuðum eftir útkomuna var hún efst
á vinsældalistum. Gary Glitter var
nýtt nafn ó stjörnuhimni poppsins.
Loksins — eftir 14 ár — rættist
bernskudraumur Pauls Gadd. Eítir
fyrstu plötuna komu aðrar: ,,I did ’nt
know I loved you until I saw you
Rock’n Roll* ,,Dö you wanna touch
me?” ..Hello, hello, I'm back again’’
og ,,I’m the leader of the gang”. 011
þessi lög enduðu sem topplög. og nú
siðast ,.I love you love me love". Gary
hefur einnig sent frá sér tvær breiö-
skifur „Glitter” og „Touch me" og
báðar hafa þærkomiztá vinsældalista.
Að lokum er vert að geta þess, að Gary
Glitter fæddist 8. mai 1944.
21